Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 5
Frá ritstjóra
Kœri lesandi!
Með útgáfu pessa blaðs minnumst við
50 ára fullveldis þjóðarinnar. A þessum
timamótum verður okkur ósjálfrátt litið til
baka til þeirra atburða, er ófu örlagavef
þessarar litlu þjóðar. Höfum við leitað til
ýmissa valinkunnra manna, sem kunna frá
þessum atburðum að segja. En
„Höfum við gengið til góðs
götuna fram eft.ir veg?“
Eða erum við eftir 50 ára fullveldi að missa
sjálfstœðismeðvitund okkar? Þessar spurn-
ingar leita nú gjarnan á hugann og höfum
við freistað þess, að fá greinarhöfunda til
þess að svara þeim, þó allir geri sér Ijóst,
að ekki verða þœr brotnar til mergjar.
Hinn skammi timi, sem ritnefnd hefur
til þess að inna störf sin af hendi, er óvið-
unandi með öllu og til vansœmdar að œtla
eklii rýmri tima til þessa starfs. Kosninga-
fyrirkomulag Stúde7it.afélagsins veitir ekki
meira svigrúm. Þvi er breytinga þörf. Vit-
urlegra vteri að ganga til kosninga seinni
hluta vetrar. Mundi slíkt fyrirkomulag
gefa nefndum félagsms og stjórninni mun
rýmri tíma til þess að undirbúa starf sitt á
komandi starfsári. Augljóst er, að það tekur
jafnan nokkurn lima að koma starfseminni
í samt lag eftir að sverðin eru slíðruð að
kos7iÍ7igum loknum. Gildir þar einu liverjir
fara með völdin að aflokinni orrustu.
Margt bendir til þess, að haustmisseri sé
betur fallið t.il félagsstarfsemi og því sé nú
dýrmeetum tima varið til undirbúnings
starfsins. Jafnframt þvi hafa nýstúdent-
ar á seinni hluta vetrar fengið nokkra
innsýn i völundarhús félagslifsins, i stað
þess að vera leiddir á hverju hausti
að kjörklefanum eins og hvert a7inað
sláturfé. Kosningabaráttan verður um
leið fremur háð innan veggja skólans
og ætti á alla7i hátt að verða ná-
t:e7igdari félagslífinu og stúdentum sjálfum.
Er þetta málefni orðið knýjandi nauðsyn
og œrið ihugunarefni öllum oddvitum fé-
lagslífsins.
Rilnefnd þakkar svo öllum þeim, er
staðið hafa að útgáfu blaðsins, og þó sér-
staklega Astmari Ólafssyni auglýsingateikn-
ara fyrir afburða þolinmœði og skilning i
hennar garð.
Að lokum vill ritstjóri þakka ritnefndar-
mönnum fyrir einstaklega goll samstaif, og
leyfa sér að fullyrða, að sjaldan eða aldrei
hafi ritstjóri 1. ds. blaðsins haft yfir öðru
eins einvalaliði að ráða.
Ríkisstjórnin ósamt Sveini Björnssyni 1944
Fró hótíðahöldunum 1930
5
STÚDENTABLAÐ