Stúdentablaðið

Árgangur

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Síða 43

Stúdentablaðið - 01.12.1968, Síða 43
FYRSTII HATÍDAHÖLDIN háskólann. Svo segir um þetta í árbókinni: „Fól háskólaráð, sem ekki hafði á móti þessu, rektor að ræða málið við stúdenta- ráðið.“ Og hvernig fóru hdtíðahöldin fram þenn- an dag? Ég reyndi það sem ég gat að undirbúa dagskrána með stúdentum, og hefur hún að sumu leyti haldizt í svipuðu sniði fram að þessu: ræða af svölum Alþingishússins og síðdegisskemmtun, sem fyrst var haldin í Nýja bíó, en frá 1940 í húsakynnum há- skólans. Ræða mín var prentuð í Morgun- blaðinu, en ég hef ekki nennt að leita að henni. En hún gerði sitt gagn, því að all- mikill mannfjöldi safnaðist þarna saman og fólk gaf færi á sér að bjóða því happ- drættismiða, sem ég skal víkja að seinna. Salan gekk prýðilega. Um skemmtunina í Nýja bíó skal ég að- eins geta þess, að ég heimtaði að stúdenta- skáldin kæmu þar fram og læsu úr ljóðum sínum. Því var heldur dauflega tekið, en ég var harður við strákana og lét þá ekki komast upp með moðreyk. Þeir voru fjórir, að því er ég man. Langfeimnastur var Magnús Ásgeirsson, sem las þarna fyrstu þýðingar sínar, og ætlaði alveg að hníga niður uppi á pallinum. Þeir Gretar Ó. Fells og Sveinbjörn Sigurjónsson báru sig karl- mannlega í þessari eldraun. En sá, sem var skörulegastur og með öllu laus við að biðja afsökunar á sjálfum sér, var Sigurður Ein- arsson. Af þessum fjórum skáldum hefur Sveinbjörn sýnt ljóðagyðjunni minnsta ástúð á fullorðinsárum. En samt er ekki líklegt, að framlag hans til ljóðagerðar gleymist, því að þýðing hans á Internation- alen er sungin enn í dag og ekki horfur á, að önnur komi í hennar stað. Ég hef viljað minnast á þetta meðal ann- ars vegna þess, að mér finnst skemmtunina 1. desember ætti að nota til þess að láta almenning lieyra, hvað ungu stúdentarnir hafi að selja í sumblið. Nú á dögum ætti úr öllum þessum fjölda að vera úr nógu að velja, og fólki mundi eða ætti að vera forvitni á því að kynnast með þessu móti einhverjum af þeim viðarteinungum í ald- ingarði bókmenntanna, sem síðar kunna að verða þar miklar eikur. Hvað gerðu menn til að afla fjár? Stúdentar efndu fyrir fjársöfnunina vegna Garðs til happdrættis og fengu sem vinninga listaverk að gjöf. Þeir gengu að sölu happdrættismiðanna af reginkrafti, og m. a. fór Ludvig hringferð um landið í þeim erindum. Þó að þetta happdrætti og fjáröflun stúdenta til Garðs væri smávaxið í samanburði við háskólahappdrættið síðar, má fullyrða, að án þess hefði Gatður ekki komizt upp eða a. m. k. miklu seinna — og má vel staðhæfa, að þetta framtak hafi rutt brautina fyrir margt af því, sem síðar hefur gerzt í málum Háskólans og verið í stærra stíl. Þess er skylt að geta, að í sjóðinn til Garðs bárust ýmsar góðir gjafir, og má þar ekki sízt minnast á, að Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi gaf útgáfurétt að snilldarþýð- ingu sinni af Pan eftir Knút Hamsun. Hvers konar stofnun var Mensa academ- ica? Mensa academica, sem var til húsa uppi á lofti í suðurenda húss Sigfúsar Eymunds- sonar á horni Lækjargötu og Austurstrætis, varð miðstöð stúdentalífs, sem áður var ekki til og aldrei hefur verið slík síðan né verður þangað til stúdentar eignast félags- heimili. En það hefur dregizt allt of lengi, enda málið ekki sótt svo fast af stúdentum sjálfum sem Garðmálið á sinni tíð. Mensa var fyrst og fremst mötuneyti. Því var stjórnað með ágætum og var fjölsótt, líka nokkuð sótt af eldri stúdentum og margir kennarar Háskólans komu þar við og við að fá sér kaffibolla. Staðurinn var ákjósan- legur og það mötuneyti, sem í seinni tíð hefur verið á Garði, var ekki reist svo um þjóðbraut þvera, að það hafi laðað til sín aðra gesti en hið fasta lið. Með það fé í höndum, sem safnazt hafði 1. desember 1922, þótti tímabært að kjósa Garðnefnd til frekari framkvæmda og ráðs- mennsku. Það var gert 3. desember, og var Ludvig Guðmundsson kjörinn formaður hennar, en Lárus H. Bjarnason fjár- geymslumaður. En sú saga skal ekki lengra rakin, Jjví að hér var einungis tilætlunin að tala um upphaf þess, að 1. desember var gerður að hátíðisdegi og stúdentar helguðu sér hann. 43 STÚDENTABLAÐ

x

Stúdentablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stúdentablaðið
https://timarit.is/publication/350

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.