Stúdentablaðið - 01.12.1968, Qupperneq 48
Minningarorð
GUÐMUNDUR THORODDSEN
F. 1.2. 1887
D. 6.7. 1968
Guðmundur Thoroddsen, fyrrverandi prófessor í handlæknisfræði við
Læknadeild Háskóla íslands, andaðist 6. júlí 1968, 81 árs að aldri. Með
honum er genginn einn af fremstu mönnum og einn litríkasti persónuleiki
íslenzkrar læknastéttar á fyrri helmingi þessarar aldar.
Guðmundur fæddist á ísafiröi 1. febrúar 1887, sonur hjónanna Skúla
sýslumanns og ritstjóra Jónssonar Thoroddsen og Theodóru Guðmunds-
dóttur, prófasts að Breiðabólstað á Skógarströnd. Hann lauk námi við
Latínuskólann í Reykjavík vorið 1905, en lagði síðan stund á læknisfræði-
nám við Hafnarháskóla og lauk þaðan prófi vorið 1911. Að loknu próli
starfaði hann við læknisstörf í Danmörku í þrjú ár, en í september 1914
var hann settur og síðar skipaður héraðslæknir í Húsavíkurlæknishéraði.
Því embætti gegndi hann þó aðeins í tvö ár, en árið 1916 fór hann að nýju
til Kaupmannahafnar og þá til framhaldsnáms.
Á árunum 1916—1920 stundaði hann nám og starfaði á handlæknis-
deildum Frederiksbergs spítala í Kaupmannahöfn og lagði þá einnig stund
á kvensjúkdóma- og fæðingarfræði.
Árið 1920 hvarf hann að nýju heim til íslands og hóf störf í Reykjavík,
fyrst við almennar lækningar, en í janúar 1922 byrjaði hann að starfa við
læknadeild háskólans sem kennari í handlæknisfræði í forföllum Guðmund-
ar Magnússonar prófessors. Hinn 1. janúar 1923 var hann settur dósent í
almennri sjúkdómafræði og réttarlæknisfræði við læknadeildina, og ann-
aðist hann kennslu í þessum fræðum þar til í október 1926.
Haustið 1924 tók hann við embætti Guðmundar Magnússonar sem pró-
fessor í handlæknisfræði og yfirsetufræði við I-æknadeild Háskóla Islands.
Hann var rektor háskólans árin 1926—1927.
Fram til ársins 1931, eða þar til Landsspítalinn var fullbyggður, hafði
Guðmundur starfsaðstöðu á Landakotsspítala, bæði við kennslu og fyrir
sjúklinga sína. Er Landsspítalinn tók lil starfa í árslok 1930, var hann
skipaður yfirlæknir handlæknisdeildar og fæðingardeildar Landsspítalans
og jafnframt forstöðumaður Ljósmæðraskóla íslands. Gegndi hann þessum
störfum öllum þar til í júní 1952, að hann lét af störfum sökum alduts.
Hann hætti þó ekki að starfa sem læknir, þótt hann fengist lítið við
skurðlækningar eftir þetta. Allt fram til dauðadags starfaði hann sem
ráðgefandi skurðlæknir fyrir Kleppsspítalann. Árið 1952 var hann skipaður
prófdómari við læknadeildina og gegndi því starfi þar til árið 1965, að
hann fékk lausn frá því.
Læknisævi Guðmundar hefur náð yfir mjög viðburðaríkt tímabil í þróun
handlæknisfræðinnar. Þegar hann hóf starf, var handlæknisfræðin um það
bil að vaxa úr grasi. Meiri háttar skurðaðgerðir, sem nú um áratugi hafa
verið gerðar daglega, voru þá sjaldgæf afrek. Þróunin upp úr fyrri heims-
styrjöldinni varð hins vegar mjög ör, og þrátt fyrir einangrunina frá stóru
nágrönnunum, tókst okkar aðalskurðlæknum, þeim Guðmundi Thorodd-
sen, Matthíasi Einarssyni og Halldóri Hansen, að halda vel í horfinu.
Þeir munu, hvað allar algengar skurðaðgerðir snerti, í engu hafa verið
eftirbátar hinna stóru erlendis. Þessir þrír læknar mótuðu handlæknis-
fræðina í landinu á 30 ára tímabilinu frá 1920 til 1950, og er þáttur Guð-
mundar þar stærstur, enda hafa flestir núverandi skurðlæknar landsins
verið nemendur hans.
Sem kennari var Guðmundur mjög eftirminnilegur. Hann hafði ágætt
vald á efninu,. framsetning skýr, litrík, á stundum full kímni, en alltaf
hógvær. Hin augljósa hæfni hans sem skurðlæknis og kennara, kímnigáfa,
Ijúfmennska hans og látleysi, gerði það að verkum, að hann var uppáhald
allra stúdenta, og munu mörg þau vináttutengsl milli kennara og nemenda
hafa haldizt æ síðan.
Guðmundur var mjög fær skurðlæknir og farsæll í starfi. Góð þekking,
róleg yfirvegun og yfirveguð dirfska voru einkennandi þættir í starfi hans.
Hann var mannþekkjari, en mildur í dómum um breyzkleika annarra. Hins
vegar hafði hann glöggt auga fyrir hinu skoplega og listræna hæfileika til
þess að koma því á framfæri, en gætti þess ávallt að stera engan.
Við nemendur Guðmundar minnumst hans ekki aðeins sem kennara
okkar og læknis. í minningunni geymist ekki síður ljúfmennið, húmorist-
inn og listamaðurinn Guðmundur Thoroddsen. Snorri Hallgrimsson.
5TÚDENTABLAÐ
48