Stúdentablaðið - 01.12.1968, Blaðsíða 55
Frá
tannlæknanemum
janúar s.l. Var þess rainnzt með mikilli
liátíð þann 20. janúar. Hátíðin var tvi-
skipt og fyrri hluti hennar hófst með há-
tíðafundi i Tjarnarbúð. I>ar flutti Jakob
Gíslason orkumálastjóri erindi, þar sem
hann fjallaði m. a. um verkfræðistörf og
framtíð verkfræði á íslandi. Seinni hluti
hátiðarinnar fór fram að kvöldi sama
dags í Dansskóla Hermanns Ragnars.
VeÍ7.1ustjóri var Guðmundur Iljörnsson.
Þótti gestum tuttugu ára afmæli félagsins
vel minnzt.
S.l. vetur var reist styrk stoð undir fé-
lagsstarfsemi Félags verkfræðinema. Fékk
félagið til umráða tvö herbergi í gömlu
Loftskeytastöðinni. Er þar góð lestrarað-
staða, auk þess sem húsnæðið er notað
af nemendum til ýmissa félagsstarfa.
Segja má, að félagsstarfseminni hafi bætzt
önnur stoð á s.l. vetri, en þá koin út í
fyrra sinn Segull, blað Félags verkfræði-
nema. Var blaðið vandað að frágangi og
flutti greinar verkfræðilegs eðlis og fréttir
af félagslífi. Ritstjóri Seguls var Ólafur
Bjarnason.
S.Í.S.E. leitaði á miðjum vetri til Félags
verkfræðinema um samstarf til undir-
búnings ráðstefnu um verkfræði og verk-
legar framkvæmdir á íslandi. í ágústmán-
uði s.l. var ráðstefnan lialdin á vegum
S.Í.S.E. og Félags verkfræðinema. Til
hennar var boðið öllum verkfræðinemum
heima og við nám erlendis, svo og helztu
framámönnum á sviði verkfræði. Segja
má, að Félag verkfræðinema hafi haft
veg og vanda af öllurn undirbúningi. í
undirbúningsnefnd áttu sæti: Óskar
Svcrrisson, Leifur Benediktsson og Páll
Jensson, allir við nám í Háskóla íslands.
Ráðstefnan var sett að kvöldi 15. ágúst
og stóð tvö kvöld. Fundarstjóri var Þórð-
ur Vigfússon, verkfræðinemi f Berlfn.
Milli 80 og 100 þátttakendur sátu ráð-
stefnuna bæði kvöldin.
S.l. vctur tóku nemendur i verkfræði-
deild að íhuga, hvort ekki mætti koma
við kcnnslutækjum til þess að lífga upp
á hið þurra fyrirlestrahald. Komust þeir
að þeirri niðurstöðu, að það væri hægt,
en einnig varð þeim ljóst, að þessi
kcnnslutæki kostuðu mikla pcninga. Þótti
ncinenduin eðlilegt, að þeir kæmu frá Há-
skólanum, en er leitað liafði verið til há-
skólayfirvalda kom í ljós, að skólinn var
svo að scgja févana og sá sér ekki fært að
lcggja til allt það fé, sem til kaupanna
þurfti. Ollum bar þó saman um, að þessi
tæki væru þarfleg og natiðsynleg. Endir-
inn varð sá, að nemendur hófu söfnun
fjár, sem hefur gengið mjög vel, og vil-
yrði fékkst hjá háskólanum uin framlag
til þcssara kennslutækjakaupa. í október
barst svo verkfræðideild höfðingleg pen-
ingagjöf frá Sjóvá, að upphæð kr.
100.000,00, og áskilið var, að þeirri upp-
hæð skyldi varið til kennslutækjakaupa
og samráð yrði haft við F'élag verkfræði-
nema um val þeirra. Hyggja nú stúdentar
í verkfræðideild gott til glóðarinnar og
ætla að taka tæknina í sína þjónustu.
Ekki er hægt að láta hjá líða, að minn-
ast lítillega á hina viðbjóðslcgu og lieilsu-
spillandi bekki í kennslustofum skólans.
Stúdentar í verkfræðidcild, sem sækja um
30 kennslustundir i viku, liafa setið á þess-
um bekkjum í 28 ár. Auk þess sem bekkir
þcssir eru sérlega óþægilcgir, eru þeir
allir brotnir og laskaðir, og marr, brak og
ískur eru yfirgnæfandi við fyrirlestrahald.
Ef ckkert verður að gert, er ekkert liklegra
cn stúdentar i verkfræðideild taki sig til
og liendi bekkjunum út um glugga skól-
ans og brenni þá á háskólalóðinni.
Rétt er að geta þess hér, að á aðalfundi
Félags verkfræðinema nú í haust var
nafni félagsins breytt, og lieitir það nú
Omcga, félag stúdenta í verkfræðideild.
Kosin var ný stjórn, og í henni eiga sæti
Hclgi Bjarnason formaður, Stefán Egg-
ertsson ritari og Rúnar Sigfússon gjald-
keri, og auk þeirra eiga sæti í stjórn
Kristján Már Sigurjónsson og Sigrún
Guðnadóttir. Úr stjórn gcngu Trausti
Eiríksson, Pétur K. Maack, Guðrún Zoega,
Jóhann Bergmann og Þorgcir J. Andrés-
son.
Hér hefur verið getið helztu atriða I
starfsemi félagsins s.l. starfsár og einstakra
baráttumála stúdenta i verkfræðideild.
í nóvember 1968.
Trausti Eiriksson.
Tannlæknadeild Háskóla íslands var
stofnu árið 1945, og þótti þá mörgum í
stórvirki ráðizt, því cnda þótt hún hafi
jafnan verið með ininni deildum skólans,
þá hefur hún yfirleitt verið með þeim
dýrari. Tannlæknadeild er ekki sjálfstæð,
hún er undir áhrifavaldi læknadeildar,
og er það að okkar áliti eitt mesta ólán
hennar. Umhyggja „stóra bróður" fyrir
„litla bróður" hefur að minnsta kosti liin
síðari ár verið heldur til skammar. — í
dag er deildin staðsett í kjallara Lands-
spítalans. Við flutning hennar þangað
urðu áhrif læknadcildar á liana enn meiri
og var sízt á bætandi. Tannlæknadeild
hafði upphaflega húsnæðið til ársins
1972, en leigusamningar hafa nú verið
framlengdir til 1974. Ekki veit ég, hvort
það getur talizt akkur hennar, því að hús-
næði þetta er bæði lítið og ámerkilegt.
Bezta lausnin hefði auðvitað verið sú, að
byggja sérstaklega undir tannlæknadeild
á háskólalóðinni sjálfri. Sú hugmynd að
liola deildinni niður með læknadeild í
framtíðarhúsnæði hennar er út í liött.
Þessar tvær deildir ciga enga samleið, og
cr hvorugii ágóði af liinni i námunda
við sig, enda er læknadeildarhúsið ekki
til á pappírnum ennþá.
Værð hefur sem sé færzt yfir yfirvöld
við það að stinga dcildinni í kjallarann.
Ekkert hefur bólað á viðleitni til öflunar
framtíðarhúsnæðis. Var málið orðið svo
alvarlcgt fyrir tveim árum, að enginn ný-
stúdcnt fékk þá inngöngu eins og frægt
er orðið. Bjuggust menn nú við, að tann-
læknadeildar biði liægfara dauði, enda
heyrðist héðan og þaðan að leggja ætti
liana niður. Svo stórhuga voru forráða-
menn skólans og læknadeildar, að meðan
rætt var um eflingu háskólans og stofnun
nýrra deilda, var í sömu andrá ekki talið
fráleitt að leggja niður rúmlega 20 ára
gamla deild til þess að flýja vandamálin.
F'élag tannlæknancma var stofnað 23.
marz 1949 og á því tvítngsafmæli á næsta
ári. Starfsemi þess licfur staðið með mesta
blóma undanfarin ár. Á vegum félagsins
er gefið út málgagn tannlæknanema,
„Harðjaxl", 3—4 tölublöð á ári. F'élagið
cr aðili að tveimur milliríkjasamböndum,
alþjóðasambandi tannlæknanema (I.A.D.
S.) og sambandi norrænna tannlækna-
nema (N.O.S.). Vetrarþing N.O.S. var
lialdið hér í Rcykjavík í febrúar síðast-
liðnum og sóttu það um 20 fulltrúar frá
hinum Norðurlöndunum. Kann nú ein-
kundur séu varla til mikils og lítt annað
hverjum að detta í hug, að slíkar sam-
en skemmtun ein. Sú er þó raunin, að
hér fer saman gagn og gaman. Menn
kynnast ekki aðeins tannlækningum og
kennslu í þeirri grein meðal annarra
þjóða, lieldur og er hér stofnað til pcr-
sónulegra kynna, sem ómetanleg eru.
Eitt mesta vandamál okkar tannlækna-
nema leystist nú í sumar eða haust. Al-
gert öngþveiti hefur ríkt í lestraraðstöðu
stúdenta yfirleitt þar sem háskólabóka-
safnið hrekkur skanunt. Félag okkar hef-
ur lcngi reynt að fá lestrarpláss í næsta
nágrenni Landsspltalans, en ekki orðið
ágengt fyrr en nú í sumar. Háskólinn tók
á leigu lestrarhúsnæði fyrir 23 nemendur
tannlæknadeildar. Þökkum við rektor
góðan skilning lians og háskólaritara
vaska framgöngu í málinu.
Tveir vísindaleiðangrar voru farnir á
starfsárinu. Annar upp á Akranes í boði
tannlæknisins á staðnum. Nú í haust voru
svo bandarískir tannlæknir á Keflavíkur-
flugvelli sóttir heim. Þeir starfa þar að
jafnaði 5 talsins, og má það teljast góð
þjónusta við ekki fjölmennari lióp en
þar er.
F’ræðslufundir um tannlæknisfræðileg
efni eru orðnir fastir liðir í starfsemi fé-
lagsins, og var á sfðastliðnu vori lialdinn
mjög fróðlegur fyrirlestur um tannholds-
sjúkdóma, sem mjög eru algengir liér á
landi.
Enn eitt baráttumál okkar, sem hafið
böfum nám 1 II. og III. hluta, hefur ver-
ið að fá aðgang að mastofu Landsspítal-
ans. Þetta mál er orðið allgamalt, en
imprað hefur verið á þvl við forráðamenn
Ríkisspítalanna ár eftir ár. Skóladagur
okkar er allstrangur, cða frá kl. 8—12 og
1—6 flesta daga, þannig, að örðugt er
fyrir nemendur að komast heim í mat.
l'yrir skömmu rættist svo úr, að heilsu
tannlæknanema verður ekki hætta búin.
Sigurjón H. Ólajsson.
55
STÚDENTABLAÐ