Fréttablaðið - 24.09.2009, Síða 34
24. SEPTEMBER 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vísindavaka
Þorsteinn Vilhjálmsson, próf-
essor í eðlisfræði við Háskóla
Íslands og ritstjóri Vísinda-
vefsins, ætlar að leyfa fólki
að spyrja hann um allt sem við-
kemur vísindum í daglegu lífi
á Vísindavöku í Hafnarhúsinu
í kvöld.
„Fólk hefur mjög mikinn áhuga á
vísindum almennt en Vísindavef-
urinn fær daglega um tuttugu til
þrjátíu fyrirspurnir um allt mögu-
legt,“ segir Þorsteinn Vilhjálms-
son sem verið hefur ritstjóri frá
því að vefurinn var stofnaður árið
2000.
„Frá upphafi hafa bæði fyr-
irspurnirnar orðið fleiri með
hverju árinu sem og aðsóknin.
Nú eigum við góðan gagnagrunn
8.000 fyrirspurna og svara
frá fræðimönnum innan
Háskóla Íslands.“
Að sögn Þorsteins eru
unglingar duglegast-
ir að spyrja Vísinda-
vefinn. „Áhuginn er
að öðru leyti mjög al-
mennur og sýnir að al-
menningur hefur áhuga á
umfjöllun um vísindi. Fólk
hefur mjög gaman af því að
pæla. Fjölmiðlar ættu því ef til
vill að sinna þessum málaflokki
betur.“
Eðlisfræðiprófessorinn segir
að á sviðinu í Hafnarhúsinu muni
hann hafa með sér tvo aðstoð-
armenn sem hægt sé að leita til
hafi hann ekki svörin
við spurningum
áheyrenda á
reiðum hönd-
um. Hann
getur hins
vegar ekki
leitað til
neins þegar
blaðamaður
ákveður að
punda á hann
fimm spurning-
um úr nýlegum grein-
um á Vísindavefnum. „Á ég bara
að svara núna?“ spyr ritstjórinn.
„Já, já, bara núna,“ segir blaða-
maður hlæjandi og setur sig í spor
áheyranda í Hafnarhúsinu.
- Þekktist tannpína á meðal Forn-
Grikkja? „Já, það er engin ástæða
til að ætla annað.“ (Rétt)
- Hvort eru fleiri karlar eða
konur í heiminum? „Það eru fleiri
konur.“ (Rétt)
- Á hvaða breiddargráðu er Ís-
land? „Reykjavík er á 64,07 sirka
og Ísland spannar svona rúmlega
3 til 5 gráður.“ (Rétt)
- Hvað er vinsælasta íþrótt í
heimi? „Ætli við skjótum ekki á
fótboltann.“ (Rétt)
- Hver er mannskæðasti sjúkdóm-
ur á jörðinni? „Nokkrir, svo sem
malaría, berklar og inflúensa.“
(1/2 stig, líka hjarta- og æðasjúk-
dómar). - uhj
Fólki finnst gaman að pæla
Þorsteinn Vilhjálmsson ætlar óhræddur að sitja fyrir svörum um vísindi í daglegu lífi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● LOFT, VATN, SNJÓR, JÖKLAR, JÖRÐ OG HAF
Veðurstofa Íslands kynnir mikilvægan gagnagrunn á Vísindavöku sem
mælir og safnar í gagnagrunn
upplýsingum um vatn, loft, jörð
og hafið við Ísland. Gögnin eru
notuð til rauntímavöktunar á nátt-
úruvá og í veðurspárgerð, til þess
að spá fyrir um snjóflóð, sjávarflóð
og flóð í ám, og til rannsókna á
veðurfari, vatnafari, eldfjöllum
og jarðskjálftum sem starfsmenn
stofnunarinnar og vísindamenn
um allan heim stunda. Enginn
birtir meira af upplýsingum
um náttúrufar til almennings á
hverjum degi í gegnum fjölmiðla
og vef stofnunarinnar. Þetta er
gert til þess að auka öryggi borg-
aranna og hagkvæmni í atvinnu-
starfsemi í landinu.
● HVAÐ ER Í MATNUM ÞÍNUM?
Veist þú hvað maturinn sem þú borðar inniheldur? Hjá Matís er haldið
utan um öflugan gagnagrunn um innihald í matvælum. Þar getur þú
skoðað úr hvaða mat þú færð mest af kalki og borðir þú þann mat sem
inniheldur mest af kalki minnka líkurnar á beinþynningu. Ertu kannski
lyftingakappi og vilt vita hvernig má fá sem mest af prótíni úr fæðunni?
Hleypur þú mikið og vilt vita hvar þú getur náð þér í mikið af C-vítamíni?
Á heimasíðu Matís, www.matis.is, er hægt að fá upplýsingar um meira
en 1.100 fæðutegundir og hvað er í þeim að finna. Er ekki kominn tími til
þess að taka heilsueflinguna föstum tökum og vita hvað er í matnum
sem við borðum? Í bás Matís á Vísindavöku 2009
verður kynning á gagnagrunni um
innihald matvæla. Sjá www.
hvaderimatnum.is.
Dagskrá Vísindavöku 2009
Þátttakendur og viðfangsefni
Opnun Vísindavöku kl. 17.00
Hallgrímur Jónasson forstöðumaður Rannís
býður fólk velkomið
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra
opnar Vísindavöku 2009
Afhending verðlauna fyrir teiknisamkeppni barna
„Vísindamaðurinn minn og vísindi í daglegu lífi “
25. september kl. 17.00 – 22.00
Listasafni Reykjavíkur Hafnarhúsinu
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Menntamálaráðuneytið
Iðnaðarráðuneytið
Amivox
Amivox fl ytur röddina þína hvert sem er
Einkaleyfastofan
Uppfi nningar og einkaleyfi
Hafrannsóknastofnun
Kort og kórallar: Kortlagning
hafsbotnsins og lífríki hans
HÍ - Danska
Á mótum danskrar og íslenskrar
menningar. Danir á Íslandi 1900-1970
HÍ - Efnafræði
Efnafræði himingeimsins
HÍ - Hagnýt menningarmiðlun
Ástin á tímum afa og ömmu
HÍ - Íþrótta- og heilsufræði
Íhlutunarrannsókn til bættrar heilsu
og betri lífsgæða
HÍ - Japanska
Japanskt mál og menning
HÍ - Jarðskjálftaverkfræði
Jarðskjálftinn í Ölfusi 29. maí 2008
HÍ - Jarðvísindi
Samsætur og ummyndun bergs á
jarðhitasvæðum
HÍ - Ungir vísindamenn
Líkan að gervitaug
HÍ - Náttúrufræðimenntun
Rannsóknarhópur í náttúrufræðimenntun
HÍ - Kínverska
Konfúsíus á Íslandi
HÍ - Líffræði
HÍ - Læknisfræði
Undur innra eyrans
HÍ - Mannfræði
HÍ - Málvísindi
„Oft má á máli þekkja...“
HÍ - Rafmagnsverkfræði
Tesla-spóla
HÍ - Næringarfræði
Er orkan í lagi hjá þér?
HÍ - Lyfjafræði
Hvað er „lyf“ og hvernig er nýtingin
á lyfjum og fjármunum til lyfjakaupa
hér á landi?
HÍ - Hjúkrunarfræði
Hjúkrun og heilsa
HÍ - Sálfræði
Heili, hugur og skynjun
HÍ - Sjúkraþjálfun
Þjálfun fyrir lífi ð
HÍ - Raunvísindadeild
Sprengjugengið!
HÍ - Stofnun fræðasetra
Háskólinn og hafi ð:
sjófuglar og sjávardýr
HÍ - Vélaverkfræði
HÍ - Vísindavefur
Veit Vísindavefurinn allt?
HÍ - Þjóðfræði og safnafræði
HÍ og Þjóðminjasafn Íslands - Fornleifafræði
Viltu teikna beinagrind
Háskólinn á Akureyri
Ránargull og aðrar gersemar
Háskólinn á Bifröst
Rannsóknir í Norðurárdal
Háskólinn á Hólum
Hestavísindi
Háskólinn í Reykjavík
Kennslufræði- og lýðheilsudeild
Háskólinn í Reykjavík
Lagadeild
Háskólinn í Reykjavík
Tækni- og verkfræðideild
Háskólinn í Reykjavík
Tölvunarfræðideild og Eff2
Háskólinn í Reykjavík
Viðskiptadeild
Hið íslenska náttúrufræðifélag
Náttúrufræðingurinn
Hjartavernd
Leitin heldur áfram: Áhættuþáttakönnun
Hjartaverndar
Íslenskar orkurannsóknir - ÍSOR
Jarðfræðikortagerð á ÍSOR
Kvika - Þekkingarsetur
Náttúra og mannlíf við heimskautsbaug
Landbúnaðarháskóli Íslands
Máttur moldarinnar
Landgræðsla ríkisins
Að breyta lofti
Landspítalinn
Fagmennska - Jafnræði - Virðing - Öryggi
- Þekking
Listaháskóli Íslands - Hönnun og arkitektúr
Íslensk sjónabók
Listaháskóli Íslands - Tónlistardeild
Tónsmíðaforritið CALMUS
Lífsmynd
Nýsköpun - Íslensk vísindi - Ný þáttaröð
í Sjónvarpinu
Marel
Gæðaskoðun matvæla með
röntgentækni
Marorka
Orkustjórnun fyrir skip
Matís
Okkar rannsóknir - allra hagur!
Mentor
Aukinn árangur í skólastarfi
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Sýningar - Rannsóknir - Ráðgjöf
Náttúrufræðistofnun Íslands
Pöddur
Nýherji
Þróun fartölva: frá saumavélinni
til fi stölva
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Virkjum hafi ð! Möguleikar
seltuvirkjana á Íslandi
ORF Líftækni
Íslensk orka – íslenskt hugvit
– sérvirk prótein í sameindaræktun
Oxymap ehf.
Súrefnismælingar í augum
ReykjavíkurAkademían
Fræðimenn í fl æðarmáli
RHA - Rannsókna- og þróunarmiðstöð HA
Hvar liggja tækifærin?
Roche NimbleGen Iceland
Örfl ögusmíði á norðurhjara veraldar
Star-Oddi
Prófaðu skynjarana þína!
Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness
Skoðum næturhimininn
Stofnun Árna Magnússonar
Vefnaður Árnastofnunar
Tungutæknisetur
Íslensk máltækni
Veðurstofa Íslands
Loft, vatn, snjór, jöklar, jörð og haf
Þekkingarnet Austurlands
Hríslur og hreindýr
Össur
Háþróuð skynjun
Rannís
Sjóðir og styrkir