Fálkinn - 10.08.1960, Blaðsíða 3
FÁLKINN
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Afgreiðsla: Vesturgötu 3,
Reykjavík. Opið kl. 10—12
og 1 y2—6. — Sími 12210.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Félagsprentsmiðjan h.f.
^ktacMaraþaHkar
Islendingum er óþarft að rifast um
,,keisarans skegg“. Þeir eiga söguna
um kerlingarnar, sem rifust með orð-
unum: „klippt var það, skorið var
það“. Og rifrildi kerlinganna er miklu
þjóðlegra en nokkurt rifrildi um
keisarans skegg, því að keisara höf-
um við aldrei átt, en skæri og hnifur
hefur lengi verið til i landinu.
Kerlingar „klippts og skorins" hafa
orðið kynsælar í landinu, því að nú
á dögum fyrirfinnst varla sá maður,
sem ekki segir ,,klippt“ þegar sá sem
hann talar við, segir „skorið". Þrætu-
girnin — eða pexástríðan — er orðin
okkur svo töm, að það þykir bera
vott um vanþroska á sálarlífinu, eða
jafnvel fábjánsku, ef einhver er „al-
veg sammála síðasta ræðumanni".
Mikið er ég þakklátur þessum svo
kölluðu „fábjánum", sem eru sam-
mála, þó að þeir geri það ekki nema
með þögninni. Þeir eru hógværir og
af hjarta lítillátir, því að þeir stilla
sig um að andmæla geypi og gaspri
þeirra, sem hafa tekið sér „einkarétt
á hinu eina rétta".
Ef einhver lesandinn er i vafa um
hvað ég á við, skal ég ráðleggja hon-
um að setjast inn á kaffihús einn
sér, og hlusta á ræður manna, við
hin borðin. Það er hægt að sjá á
mönnunum, hvort þeir eru að ræða
einkamál, landsmál eða heimsmál. Ef
þeir tala einkamál, sitja þeir hægir
og rólegir, og gera hvorki að pata
né taka á sig fyrirlitningarsvip. Ef
þeir tala um landsmál, taka þeir á
sig sama svipinn, sem þingmanns-
efni gerir þegar það segir: „Hátt-
virtu kjósendur!" við bændur austur
í Flóa eða sjómenn suður við Faxa-
flóa, en svo þegar andmælin koma
breytist ásjónan í fyrirlitningarsvip-
inn. — Og þegar þeir tala um heims-
mál, tala þeir svo hátt, að maður
þarf ekki að sjá svipinn eða sviðin
á þeim: — Eisenhower hefur enga
þekkingu á stjórnmálum, de Gaulle
er viðrini, Krustsév er gáfaður band-
ítt og Nehru er heigull ....
1:
Heildsölubirgðir:
C^ert CJriótf i
anóóon,
& Co. J4.f.
Filkinn, 25. tbl. 1960
3