Fálkinn - 10.08.1960, Page 5
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
í VESTURVEG
I haust áformar Karlakór Reykja-
vikur að feta í spor Leifs heppna
og kynna Bandarikja- og Canada-
mönnum eina hlið á niðjum hans.
Þess er ekki getið um Leif, að hann
hafi verið söngmaður, en sennilegt
er að hann hafi verið það, þó varla
hafi hann verið sambærilegur við
hina þrautþjálfuðu raddmenn, sem
Sigurður Þórðarson hefur brætt sam-
an í eina fagra heild.
Karlakór Reykjavikur er orðinn
viðförlastur allra íslenzkra söng-
flokka. Áður hefur hann farið íimm
sinnum utarí, þar á meðal vestur um
haf einu sinni og til Þýzkalands og
Norðurlanda og haldið þar 86 hljóm-
leika, auk þess sem hann hefur víða
sungið í útvarp og um 50 lög á gram-
mófónplötur. Og það sem meira er
um vert: Kórinn hefur jafnan feng-
ið lofsamleg ummæli ábyrgra manna
fyrir vandaðan og fágaðan flutning,
góðar raddir og smekklegí val við-
fangsefna.
Sigurður Þórðarson tónskáld heíur
sem fyrr æft flokkinn undir þessa
söngför. Samvinna hans viö „sitt lif-
andi instrúment" er orðin löng, því
að kórinn er bráðum 35 ára, og hann
hefur verið söngstjóri hans frá upp-
hafi, enda hefur árangurinn orðið
sívaxandi þroski söngflokksins. Und-
irleikari verður sem fyrr Fritz Weiss-
happel, en einsöngvararnir verða að
þessu sinni þrír, nfl. Guðmundur
Jónsson, Kristinn Hallsson og Guð-
mundur Guðjónsson óperusöngvarar.
Á söngskránni verða 20 lög, íslenzk
og erlend, sungin á mismunandi
tungumálum. Sumir islenzku laga-
textarnir verða sungnir á ensku, og
ætti það að létta áheyrendum skiln-
ing á anda og efni þess, sem flutt
er. — Það er Columbia Artists Man-
agement Inc., sem sér um söngför-
ina vestra, én Gunnar Pálsson söngv-
ari hefur verið milligöngumaður þess
og kórsins. Ráðgert er að sungiö
verðf á 40 stöðum fyrir vestan, en
öll ferðin stendur 50 daga, svo að
þetta verður erfið ferð, þegar þess
er gætt, að víða eru óraleiðir milli
staða.
Þessi langferð verður kostnaðar-
söm. Og þó bæði riki og Reykjavikur-
bær leggi henni nokkurn styrk, þá
má þó betur eí duga skal. Þess vegna
hefur Karlakór Reykjavíkur efnt til
happdrættis til ágóða fyrir farar-
sjóðinn. Vinningarnir eru húsgögn í
fjórar stofur, samtals 50.000 króna
virði, en miðarnir kosta 100 kr. —•
• Einnig getur fólk fengio keypta miða
íyrir 150 krónur, og eru þeir þá jafn-
fram aðgöngumiðar að hljómleikun-
um, sem kórinn heldur áður en hann
leggur af stað í vesturförina. Svo
marga vini og velunnendur á Karla-
kór Reykjavíkur hér í borginni, að
lítill vafi ætti að vera á að þessir
miðar seljist greiðlega.
----Islendingum sem erlendis búa
hlýnar alltaf um hjartaræturnar þeg-
ar þeir fá tækifæri til að hlusta á
íslenzkan söng á erlendum vettvangi.
Svo hefur þeim farið, sem þessar
linur ritar. Ég hef hlustað á bæði
Fóstbræður, Karlakórinn Geysi og
Karlakór Reykjavíkur úti i Noregi,
og þær stundir hafa jafnan orðið
ógleymanlegar mér og öðrum íslend-
ingum, sem þeirra hafa notið. Og
það hefur líka verið gaman að hlusta
á tal manna um hina ágætu íslenzku
söngflokka og lesa ummæli gagnrýn-
enda um þá. Það er oft talað um
landkynningu í sambandi við komur
Enginn þarf aö efast um þœr til-
finningar, sem ríkja milli, þessara
tveggja vina á myndinni, svo aug-
Ijós er ástúöin, sem lýsir af andlit-
um þeirra, litlu stúllcunnar og snögg-
hæröa persneslca kattarins, sem hún
heldur á í fanginu,
íslendinga til útlanda, en ég hygg
að ýkjulaust megi segja, að enga
landkynningu Hefur Island fengiö
betri en þegar íslenzkir karlakórar
hafa sótt aðr-ar þjóöir heim.
Og þess ber að vænta, að í landi
hraðans, óðagotsins og fjölbreytn-
innar nái hinar íslenzku raddir Karla-
kórs Reykjavikur að fá hljómgrunn,
þó að hátt láti í auglýsingaskrumi
dægurlaganna. Og eitt er víst: íslend-
ingar í byggðum vestra munu ekki
hika við að leggja á sig langa ferð
til þess að fá tækifæri til að hlusta
á „raddirnar að heiman“.
Sk.
☆
Kórfélagar á
söngœfingu.
Söngstjórinn
Sigurður Þórö-
arson lengst
til hœgri.
Fálkinn, 25. tbl. 1960
5