Fálkinn - 10.08.1960, Síða 14
^»»»
5
MÍNÚTUM
JÓHANNES XXIII.
kvað vera grallaralegur karl og
ekki nærri eins hátíðlegur og margir
fyrirrennarar hans. I fyrri heims-
styrjöldinni var hann hjúkrunarmað-
ur í hernum. Fyrir nokkru kom hóp-
ur hjúkrunarfyrirliða til Róm, til að
óska honum til hamingju með, páfa-
kjörið. Þegar þessir menn gengu fyr-
ir páfa, féllu þeir á kné fyrir hans
heilagleik, eins og venja er til. En
páfinn brosti og sagði: „Nei, piltar
góðir, verið þið ekki að krjúpa á kné
fyrir mér. Þið verðið að muna, að ég
var ekki nema korpórall, en þið vor-
uð foringjar!"
★
Þetta er ekki listaverk eftir nýtízku
myndhöggvara, heldur listasmíö nátt-
úrunnar sjálfrar, þ. e. a. s. kartafla,
komin upp úr tyrkneskum kálgaröi.
HvaÖ á barniö aö heita?
★
ELIZABETH BRETADROTTNING
hefur síðar vorið 1956 haft fámenn
hádegisboð fyrir fólk ýmsra stétta
til þess að kynna sér sem bezt mis-
munandi sjónarmið og áhugamál í
þjóðfélaginu. Fram að síðustu ára-
mótum höfðu þessir gestir verið í
boðunum, samkvæmt yfirliti, sem
„Daily Express" hefur gert: 33 stjórn-
málamenn, 9 íþróttamenn, 4 verka-
mannafélagaformenn, 6 listamenn, 12
kennarar, 3 lögfræðingar, 6 vísinda-
menn, 12 leikarar og leikhússtjórar,
9 prestar, 35 hagfræðingar, 16 em-
bættismenn, 12 blaðamenn, 9 úr hern-
um, 11 skáld og 6 tónlistarmenn.
★
ARGENTlNUBÚAR
éta allra manna mest af keti. Svo
telst til, að sextugur Argentiumaður
hafi étið um ævina 372 rádýr, 403
kálfa, 109 sauði, 136 grísi og 6073
hænsn.
★
1 Vestur-Þýzkalandi er rússneska
kennd í 188 skólum, og auk þess er
framhaldsnám í 37 skólum þar, fyrir
unglinga, sem lært hafa rússnesku
í Austur-Þýzkalandi. En í Rússlandi
læra 7,8 milljón unglingar þýzku, seg-
ir í opinberri fregn frá Bonn.
GRUNSAMLEGT.
Dómstóll i Texas hafði til með-
ferðar ljótt bankaránsmál. Eitt vitn-
ið var spurt: „Hvers vegna grunið
þér ákærða um að hafa framið rán-
ið?“ Og vitnið svaraði: „Þegar ég
kom inn í bankann, var hann að enda
við að skjóta dyravörðinn og tvo
gesti, sem voru í bankanum. Síðan
barði hann gjaldkerann höfuðhögg
með skammbyssunni; og þá fór mér
að finnast athæfi hans grunsam-
legt ....“
★
5 ÞÚSUND STÚLKUR
eru í St. Goar-héraði við Rín, og
hafa litla von um að fá nokkum
tíma mann. Ástæðan er sú, að at-
vinnuskilyrði eru svo bág í sveitinni,
að ungu mennirnir hópast á burt
ókvæntir.
Stærsta bjóráma veraldar er í öl-
kjallara nokkrum í Heidelberg. Hún
er frá 1121 og rúmar ekkert minna
en 221126 lítra. Bezta hugmynd um
stærð keraldsins fœr maöur meö því
aö líta á dömuna, sem stendur fyrir
neöan hana. Hvort vildiröu heldur ef
þú mættir kjósa?
Eitt bjórglas, fröken. Þaö er ekki oft
að Ijón, raunverúleg Ijón, koma á vín-
stofur, en þó skeöi þaö á dögunum l
Liverpool. Þó þaö segöi þaö ekki meö
berum oröum, þá mátti sjá, aö Ijón-
ið mundi gjarnan þiggja eitt ölglas,
sem þaö líka fékk. Ljóniö var frá
nálœgum sirkus.
★
Tveir viskísmyglarar voru nýlega
teknir af tollvörðunum á landamær-
um Canada og Bandaríkjanna, og
höfðu þeir þó haft viðbúnað til þess
að komast óhindraðir. Því að í bíln-
um sínum höfðu þeir útbúnað til að
strá nöglum á veginn fyrir aftan
sig, ennfremur olíudælu, sem gusaði
olíu á veginn til að gera hann hál-
ann, og í þriðja lagi áhald til að
framleiða þoku!
PICASSO
hefur málað gríðarstóra mynd, sem
hann kallar „Dómsdag", fyrir UNES-
CO-stofnunina í París. Hefur myndin
vakið miklar deilur meðal listdóm-
ara, því að hver skýrir hana á sinn
hátt, en engum skýringunum ber
saman.
BETTY GRABLE
filmudís ætlaði að hvíla sig milli
leikatriða og hlammaði sér óvart á
nótnaborðið á opnu píanói. Hún
spratt upp aftur með felmtri og hróp-
aði: „Drottinn minn, þetta voru að
minnsta kosti tvær áttundir, sem
bossinn á mér náði yfir. Það er mál
til komið að ég fari að grenna mig."
Svona merkisskepnur sjást aöeins á
sítrónuhátíðinni í Menton viö MiÖ-
jnöarhafiö. Kvikindiö á aö tákna
skortítu, og er gerö úr eintómum
samfestum sítrónum í þúsundatali.
14
Fálkinn, 25. tbl. 1960