Fálkinn - 10.08.1960, Side 33
Myndin er af Júlíusi á Hítarnesi og Topp vini hans.
Júlíus og Toppur hans
Á hestamannamótinu að Faxaborg
við Hvítá mátti m. a. sjá gæðinginn
Topp frá Hítarnesi. Þessi góðhestur
er eigi aðeins frægur fyrir þá kosti,
sem reiðhest mega prýða, svo sem
vilja og fjölbreytni í gangi, heldur
og fyrir það hve vel hann ber ellina.
Hann er sem sé orðinn 31 vetra, og
þrátt fyrir þennan háa aldur kann
nÁÐNINGAM
SVAR viö HEILABROTI: 300 krón-
ur. Þepar % af karlmönnunum borg-
ar 15 kr., svarar það til þess, að allir
karlmennirnir gæfu 5 kr. að jafnaði.
Þegar helmingurinn af stúlkunum
gefa tiu kr. hver, svarar það til þess,
að allar stúlkurnar gæfu 5 kr. hver.
Og alls eru þetta 60 manns, á 5 kr.
að jafnaði eða 5 x 60 = 300 krónur.
Svar við heilabroti: 1) Þrjú, og
hálft dúsin (6) — alls 9. — 2) 147.
★
SVAR viö „MANSTU ÞETTA?“:
1) La Valetta, 2) Skrúði presta, 3)
Adam Oehlenschláger, 4) Kabyssa, 5)
Jóhannes Jósefsson í grisk-róm-
verskri glímu í London 1908, 6) Á
eða fljót, 7) Á Furuholmen við Ingöy
í Finnmörku, 8) 5 metrar, 9) Milli
Eldlands og meginlands Suður-Am-
eríku, 10) Árið 1906.
hann fótaburðinn vel, hvort heldur
hann töltir, skeiðar eða brokkar, því
að „lengi er eftir lag hjá þeim, sem
liðsmenn voru til forna“. Það var
þó einkum skeiðið, sem Toppur var
1 sambandi við Topp í Hítarnesi
vaknar spurning, sem margir mundu
vilja fá svarað. Hve gamlir verða
íslenzkir hestar? Stundum hafa sézt
í blöðunum frásagnir um íslenzka
hesta erlendis (í Danmörku og Sví-
þjóð), sem hafi orðið fjörgamlir, og
allmiklar líkur eru fyrir því, að þær
séu sannar.
Nú eru lesendur Fálkans beðnir
um að hjálpa til að upplýsa þetta
mál. Það eru tvær spurningar, sem
beðið er um að svara.
1) Hafið þér sannar sagnir af
mjög háum aldri hesta, þá óskast
upplýsingar um hve gamall hann
varð og hvernig hann bar ellina. Nafn
eiganda verður að tilgreinast og nafn
hestsins, litur og hæð eftir því sem
næst verður komizt.
2) Ef mjög gamall hestur er til
frægur fyrir meðan hann var upp
á sitt bezta.
Eigandi Topps er Júlíus Jónsson
bóndi í Hítarnesi. Hann sat á Topp
sínum, er hann kom fram á hesta-
mannamótinu, og virðist standast ell-
ina vel, eigi síður en Toppur hans.
Júlíus er nfl. 75 ára. En það mætti
geta sér þess til, að vináttan við
Topp hafi orðið til þess, að ellin hef-
ur lítil mörk sett á þennan hagyrð-
ing og hestamann, og líklega er það
gagnkvæmt hvað Topp snertir.
Um Topp var þetta kveðið á hesta-
mannamótinu:
„Hefur aukið yndishag
aldins gæðings fótaletur.
Lesa mátti lag og brag
af ljósri gljánni margan vetur.“
SKRÍTL VR
Jón hafði farið í kaupstaðinn og
fengið sér neðan í því, og endað
á „koges“. Eða svo mátti ætla, af
lyktinni, sem af honum var. í bif-
reiðinni heim til sín lendir hann
innan um margar fínar frúr.
Allt í einu segir ein frúin: —
Hvaða lykt er þetta? Það er líkast
og maður væri kominn inn í máln-
ingarvörubúð!
— Það er nú engin furða, segir
Jón, — jafnmálaðar og þið eruð.
★
Þjónninn: — Viljið þér sætt eða
þurrt sherry?
Gestur: — Það er bezt að hafa það
þurrt. Þá gerir ekkert til þó að eitt-
hvað skvettist á dúkinn.
★
— Sonur þinn ætlaði sér að verða
augnlæknir, hérna einu sinni, en svo
sé ég að hann er orðinn tannlæknir!
—- Það borgar sig miklu betur. —
Maðurinn hefur aðeins tvö augu en
32 tennur.
.1
í byggðarlagi lesanda, þá óskast
glöggar upplýsingar um aldur hans,
nafn, lit og hæð og hvort hann er
góðhestur eða ekki. Lýsingu á hest-
inum verður að fylgja vottorð við-
komandi hreppstjóra um, að rétt sé
skýrt frá. Mynd af hestinum þarf
helzt að fylgja.
Með því að senda Fálkanum grein-
argóð svör við þessum spumingum,
ætti að fást vitneskja um tvennt:
Hve gamlir hestar hafa orðið hér
á landi á síðari áratugum.
Hve gamall elzti hesturinn er!
Fálkinn væntir þess, að lesendur
um land allt verði honum hjálplegir
til að fá svör við þessum spurning-
um, en þau gætu óneitanlega orðið
mikilsverð upplýsing um bezta vin-
inn og þarfasta þjóninn í sögu þjóð-
arinnar frá upphafi til þessa dags.
Hver er elzti hesturinn á íslandi?
Fálkinn, 25. tbl. 1960
83