Fálkinn - 10.08.1960, Qupperneq 34
r
K A K
SMYSLOFF OG HOLMOFF
SIGRUÐU í MOSKVU
(^jtir ^Jreyátein j^orlercjááon, -
Eins og í fyrra, var nú boðið til
alþjóðlegs skákmóts í Moskvu í vor.
Er það ætlun Rússa, að slík mót
þarna á vorin verði að sams konar
hefð, eins og skákmótin eru í Hast-
ings. Friðriki Ólafssyni var aftur
boðið, en eins og menn muna tefldi
hann þarna í fyrra, ásamt Larsen
og öðrum frægum köppum. Þá fóru
þeir Smýsloff, Bronstein og Spasský
með sigur af hólmi, en að þessu
sinni urðu það Smýsloff og Holmoff,
sem efstir urðu með 8% vinning úr
11 skákum, og tapaði hvorugur þeirra
skák á mótinu. Ekki er mér kunnugt
um keppendur mótsins, en þeir voru
frá sex þjóðum, væntanlega flestir
frá Austur-Evrópu. Friðrik Ólafsson
gat að sjálfsögðu ekki þegið boðið,
þar sem hann var staddur í Argen-
tínu um þessar mundir (mótið hófst
i lok mai og stóð til 7. júní), en ekki
er óliklegt, að honum verði enn boð-
ið að ári.
Núverandi skákmeistari Sovétrikj-
anna, Korchnoj, varð þriðji í röðinni,
og er það eitt af mýmörgum dæm-
um, er styðja þá almennu skoðun,
að „toppurinn" þar eystra sé mjög
breiður, það er að segja, Rússar
eigi fjölda skákmanna, sem ekki eru
miklu lakari en Botvinik og Tal. Svo
virðist, eftir þessum úrslitum, sem
Smýsloff sé engan veginn af baki
dottinn, þótt hann hafi hrapað nokk-
uð að undanförnu.
Við skulum nú líta á skák, sem
tefld var í annarri umferð Moskvu-
mótsins í ár. Er hún allt annað en
molluleg, þótt endalokin séu friðsam-
leg.
Sikileyjarvörn.
Hvítt: Smýsloff -— Svart: Korchnoj.
1. e4 c5. 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 g6 6. Be2 Bg7 7. Rb3
Rc6 8. g4
Djarflegur leikur, sem oft skapar
miklar flækjur.
8. —b6 9. f4 Bb7 10. BÍ3 0—0 11. h4
Árangur slíkrar peðárásar fer oftast
eftir því, hvort andstæðingnum tekst
að sprengja upp á miðborðinu og ná
þar gagnsókn. Takist það, má hvítur
biðja fyrir sér, þar sem kóngur hans
getur þá orðið berskjaldaður vegna
f jarveru peðanna, að öðrum kosti get-
ur peðsóknin hægilega ráðið svört-
um bana.
11. — a5
Svartur hótar 12. — a4.
12. a4 Rb4 13. h5 d5! 14. e5 Rxg4!
Svartur hefu náð tilgangi sínum.
15. Rd4
Ef 15. Bxg4, þá 15. — d4L
15. — Rh6 16. hxg6
Smýsloff tekur þann kost að vinna
skiptamun, þótt sókn hans fjari út
um leið. Til greina kom að leika 16.
f5, en flækjurnar sem þá kæmu upp,
eru torleystar, t. d. 16. — Bxe5 17.
Bxh6 Bxd4 18. hxg6 fxg6 19. Bxí8
Dxf8 20. fxg6 hxg6, og svartur hef-
ur tvö peð fyrir skiptamuninn.
16. ■— fxg6
Ef 16. — hxg6, þá 17. Í5! 17. Re6
Dd7 18. Rxf8 Hxf8 19. Rb5
Hvítur hefur í hyggju að hrekja
svarta riddarann af b4 með því að
lpikíi pQ
19. —d4! 20. Bxb7 Dxb7
Svartur hefur nægilega gagnsókn
fyrir skiptamuninn.
21. 0—0 Rf5 22. Rxd4 Rxd4 23. Dxd4
Dc8
Vitaskuld ekki 23. — Rxd2? 24. —
Dc4t
24. De4 Rxc2 25. Ha2
Hvítur hótar nú 26. b3, ásamt flutn-
ingi hróksins til kóngsvængsins.
25. — Dg4t 26. Dg2
Ekki 26. Khl? Hf5!
26. — De6 27. b3 Rd4 28, Be3 Rf5
29. Bf2 Dxb3 30. Hd2 Db4 31. He2
Dxf4 32. He4 Dd2 33. Bxb6 Dd5
34. Hfel Dc6 35. Da2t e6 36. Bf2
Hc8 37. Db3. Samið jafntefli.
Framköllun - Kopiering
Látið myndir geyma góðar endurminningar yðar! —
Framköllum myndir yðar fljótt og vel.
Allar myndir, framkallaðar hjá okkur, eru afgreiddar
í yfirstærð, þ. e. eftir 6x6 filmu skilum við yður 9x9
sentimetra myndum.
Filmur, allar stærðir og gerðir!
VERZLUN HANS PETERSEN H.F.
Bankastræti 4. — Sími 1-32-13.