Fálkinn - 17.08.1960, Side 2
Rabbað við lesandann
Umbo&smenn: H.F. HAMAR, Reykjavík
OF MÖRG BLÖÐ?
Kringum 30.000 blöð eru gefin út
í heiminum, og af þeim koma 8.000
út daglega. Tveir þriðju allra dag-
blaða eru morgunblöð. Upplag dag-
blaðanna er samtals yfir 250.000.000
eintök, eða 92 blöð á hverja þúsund
íbúa að meðatali. Kringum þriðjung-
ur allra blaða kemur út í Norður-
Brezkt byggingarfélag hefur ákveð-
ið að veita um 2 millj. króna árlega
til að skreyta byggingar þær, er fé-
lagið reisir, eða umhverfi þeirra. Hér
er höggmynd við eina bygginguna,
og er hún af móður, sem kennir syni
sínum að ganga fyrstu sporin. Eins
árs gamall drengur, sem nýlega er
farinn að ganga, stendur við fótstdll
listaverksins og virðir það fyrir sér.
Ameríku og þriðjungur í Evrópu (að
Rússlandi meðtöldu), segir skýrsla
um blaðaútgáfu, sem UNESCO hefur
gefið út og nær til ársloka 1958.
★
UMFERÐIN ERLENDIS.
1 útlendu umferðatímariti lesum
vér þessi heilræði handa gangandi
fólki: Viljirðu komast óskaddaður
yfir þvera götu í ítalskri borg, þarftu
helzt að leiða fallega stúlku. En i
Bandaríkjunum er hollast að hafa
með sér þrjú lítil börn. 1 Englandi
er eina ráðið að hafa hund í bandi
með sér, og í Þýzkalandi ofursta eða
hershöfðingja. 1 Frakklandi er alls
ekki vert að reyna að komast yfir
götuna.
Forsiðumyndin í þessu blaði er af
hinum einkennilega Steðja á Austur-
Síðu. Stóð til að hún yrði af vígslu
Steingrímsstöðvar, en sú mynd var
ekki tilbúin frá prentmyndagerðinni
og verður því að bíða næsta blaðs.
Aðalgreinin í blaðinu er um Sogs-
virkjunina nýju, ásamt yfirliti um
eldri virkjanir og frásögn af vigslu-
hátíðinni. Hefur verið reynt að gefa
sem gleggsta lýsingu í stuttu máli
á þessum miklu mannvirkjum, sem
varða alla ibúa suðvesturlandsins svo
miklu. — Við þorum óhikað að mæla
með sögunni ,,Öngþveiti“ eftir hina
ágætu skáldkonu Dorothy Sayers í
þessu blaði. Greinin um hið fræga
skrýmsli í Loch Ness mun verða les-
in af mörgum.
Þá þökkum við ,,Lóu“ eftirfarandi
bréf, sem lýsir hlýjum hug til blaðs-
ins og gladdi okkur mikið:
„Reykjavík, 5/8 1960. — Kærar
þakkir fyrir allt það efni, sem Fálk-
inn flytur, og ekki hvað sízt nú, í
hinu nýja formi og broti, sem virðist
gera blaðið enn snoturlegra og
skemmtilegra. Vikublaðið virðist
hafa gert sér far um að flytja létt
og skemmtileg efni, og virðist tak-
ast það æ betur. Fyrst blaðið flytur
á annað borð fróðleiksmola um
stjörnur á himni kvikmyndanna, væri
ekki úr vegi að biðja blaðið um ein-
hvern fróðleik varðandi kvikmynda-
stjörnuna Claudette Colbert (sem að
visu er ekki alveg ný af nálinni á
léreftinu) í næsta eða næstu blöðum,
— sem sagt við fyrsta tækifæri. Virð-
ingarfyllst og með fyrirfram þakk-
læti. — Lóa.“
Fálkinn skal með ánægju birta sitt
af hverju um C. C. mjög bráðlega.
-----I næsta blaði Fálkans verð-
ur meðal annars efnis grein um svert-
ingja, sem var svo sterkur, að það
varð honum til óhamingju. — bráð-
skemmtileg og einkennileg saga, eft-
ir Jefferson Farjeon og mikið af
fjölbreyttu efni.
Ritstjórinn.
★
Trúlofiunarhrtiigir
Ijósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. —
Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur,
plett. — Úr fyrir dömur og herra, gull og stál.
Tegundir: Marvin, Dames, Tissot, Certina, Eterna.
Laugavegi 50. — Reykjavík.
2
Fálkinn, 26. tbl. 1960