Fálkinn - 17.08.1960, Síða 3
t
FÁLKINN
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM
Afgreiðsla: Vesturgötu 3,
Reykjavík. Opið kl. 10—12
og iy2—6. — Sími 12210.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Félagsprentsmiðjan h.f.
^kraddafaftankar
Sjö óforsjálar meyjar hafa orðið
til þess að sanna gildi þess gamla
orðtækis, að „engin regla er án und-
antekningar“. Þær voru í skóla
lengst suður í Danmörku og varð
það á að gerast sjálfráðari en sam-
rýmst gat reglum skólans. Kennslu-
kona þeirra setti ofan í við þær og
lét reka þær út af skemmtistað, sem
þær undu sér of vel á, en í stað
þess að biðja afsökunar á yfirsjón
sinni, gerðu þær samtök um að sækja
ekki kennslustundir hjá þessari konu.
Afleiðingin: forstöðukonan rak þær
úr skóla, og nú iðrast þær væntan-
lega ofstopa síns.
Sem betur fer er þetta undantekn-
ing, sem staðfestir regluna. Því að
það er mála sannast, að íslenzkt
námsfólk erlendis getur sér gott orð
fyrir dugnað og ástundun við nám
og sýnir þannig, að það metur vel
þá hjálp, sem aðstandendur og hið
opinbera ver til þess, að hinir ungu
borgarar þjóðfélagsins geti menntað
sig og leyst af hendi þarflegt ævi-
starf.
En það virðist mega rekja tilfelli
hinna sjö óforsjálu meyja til upp-
runa síns og finna orsakirnar. Því
miður er það nú tízka, að uppvax-
andi æskulýður gerist frakkari og
sjálfráðari en hollt er. Agaleysið i
mörgum skólum er meira en góðu
hófi gegnir og margir foreldrar hirða
minna en skyldi um, að innræta börn-
um sínum hlýðni, stundvisi og góða
siði. Sumir halda því fram, að það
sé beinlínis skaðlegt að banna böm-
um nokkurn skapaðan hlut, þau eigi
að gera hvað sem þeim sýnist, —
á þann hátt verði þau „frjálsir
menn“.
En öll saga mannkynsins sýnir og
sannar, að þetta er skaðlegur mis-
skilningur. Agaleysið hefur ávallt
reynzt skaðlegt og afleiðingar þess
hafa reynzt mörgu góðu mannsefni
þungur og erfiður baggi, þegar hann
átti að fara að standa einn í lífsbar-
áttunni. Engum manni eða konu hef-
ur nokkurntíma orðið það til tjóns
að sýna fágaða framkomu, stundvísi
og hlýðni við þá, sem yfir þá voru
settir. Dæmi hinna sjö óforsjálnu eru
aðvörun, sem ungu fólki er gott að
festa sér í minni.
SEMPERIT
Hjólbarðar og slöngur eru
viðurkennd fyrir gæði
Einnig hagkvæmt verð
\ lager er:
590x14 - kr. 689,20
600x16 snjódekk — kr. 1037,00
G. HELGMON & MELSTED H.F.
SÍD.ii 11644
TIL LESENDA FÁLKANS
Ritstjórnin vill gera sér far um að hafa sem nánast sam-
band við lesendur sína um land allt.
Sendið okkur línu og látið okkur vita hvað af efni blaðs-
ms ykkur líkar bezt og sömuleiðis tillögur um efm, sem
yður finnst vanta.
Þá reynum við að fullnægja öllum sanngjörnum óskum
eftir því sem hægt er.
Með beztu kveðju.
Ritstjórn Fálkans.
Fálkinn, 26. tbl. 1960
3