Fálkinn - 17.08.1960, Qupperneq 4
VjölmenmtÉsta nertuen i tnát á íslandi:
Lögfræðingamótið
um komið fyrir hjá fólki úti í bœ,
og þeir gestirnir, sem komu með
Gullfossi bjuggu um borð. Skipið
hafði nokkru lengri viðstöðu vegna
mótsins en ella mundi, en með því
að sleppa viðkomu í Leith í þessari
ferð getur skipið þó haldið réttri á-
ætlun framvegis eigi að síður.
Margar undanfarnar vikur hefur
hvert norræna mótið rekið annað í
Reykjavík og má sérstaklega nefna
þing Norðurlandaráðsins, með fast
að hundrað þátttakendum, þar af
tæpum 30 ráðherrum. Og nú síðast
kom lögfræðingamótið, sem sett var
á fimmtudaginn var. Þar voru sam-
an komnir um 500 lögfræðingar,
þar af 360 erlendir og er þetta því
langfjölmennasta norðurlandamót,
sem haldið hefur verið hér á landi.
Það er sem sé samband norðurlanda-
lögfræðinga, sem heldur mótið.
Mótið var sett í Þjóðleikhúsinu kl.
10 á fimmtudagsmorguninn. Karla-
kór Reykjavíkur söng Völuspárlag
Þórarins Jónssonar, „Ár vas alda“,
en þá bauð Árni Tryggvason hæsta-
réttardómari, formaður Islandsdeild-
arinnar, gestina velkomna, minntist
meðlima sambandsins, sem látizt
hafa síðan síðasta mót var haldið, og
vék því næst máli sínu að íslenzkri
lagamenningu og norrænu samstarfi
um lögfræðileg efni. Var erindi hans
einkar glöggt og skilmerkilegt og
prýðilega flutt. Að því loknu söng
kórinn hið þjóðfræga lag ,,Þér land-
nemar“ úr kantötu Sigurðar tón-
skálds Þórðarsonar.
Olavi Honka þakkaði heimboðið fyr-
ir hönd erlendu gestanna. Stakk hann
því næst upp á Árna Tryggvasyni
sem forseta mótsins og var það sam-
þykkt samhljóða. Hver deild kaus
síðan varaforseta og ritara, en að
auki eru fastir þingritarar á mótinu,
sem skrifa allar ræður.
Því næst flutti Gunnar Thoroddsen
f jármálaráðherra fyrsta erindið á
dagksrá, um Friðhelgi einkalífsins.
Rakti hann þar í stuttu máli algeng-
ustu árásir á þá friðhelgi, en gerði
hverju atriði svo glögg skil, að furðu
ANNIE TEDCASTLE
í Wallasey, Englandi, rak upp stór
augu þegar hún fékk þakkarbréf frá
Elizabeth Bretadrottningu fyrir hinn
smekklega barnafatnað, sem hún
hefði sent til Buckingham Palace í
tilefni af fæðingu síðasta drottning-
arbarnsins, Andrews prins. Svo var
mál með vexti, að bezta vinkona
Annie, Mabel Kesley, eignaðist son
um líkt leyti og drottningin, og þess
vegna sendi Annie henni böggul með
barnafatnaði. Og í gamni skrifaði hún
í hornið á bögglinum:: „Til hans há-
tignar drengsins". En póstmaðurinn
sem afgreiddi böggulinn, mun hafa
hugsað svo mikið um drottningarson-
inn í Buckinghamhöll, að hann sendi
böggulinn þangað í ógáti. „En ég er
ekkert reið honum fyrir það,“ segir
Annie.
NÝ MANNDRÁPSTÆKI. — Myndin er af nýrri gerð tundurspilla, sem Bret-
ar hafa látið smíða síðustu árin og einkum er œtlað að gera út af við kaf-
báta. Fyrsta skipið af þessari gerð hét ,,Torquay“. Sýnir myndin djúp-
sprengjuvarparana á afturþilfari þessara skipa.
legt mátti heita. Síðdegis hófust um-
ræður um þetta erindi, en að lokn-
um fundi bauð Reykjavíkurbær full-
trúum til mannfagnaðar í Lido og
flutti Geir Hallgrímsson borgarstjóri
þar bráðsmellna og um leið fræðandi
ræðu.
Daginn eftir var m. a. á dagskrá
erindi Ólafs prófessors Lárussonar
um félagsmálalöggjöf á 12. öld og
auk þess fundir í þremur deildum
þingsins, og hafði hver deild sín sér-
mál til umræðu. Um kvöldið voru
erlendu lögfræðingarnir gestir ís-
lenzkra starfsbræðra sinna.
Lengra verður sagan ekki rakin
að sinni. En margir munu spyrja:
hvernig er hægt að hola öllum þess-
um mannfjölda niður? Gistihúsin
voru auðvitað troðfyllt, f jölda af gest-
Árni Tryggvason hœstaréttardómari,
forseti þings norrænna lögfrœðinga-
4
Fálkinn, 26. tbl. 1960