Fálkinn - 17.08.1960, Side 5
SKttÍTL UR
Móðirin kallaði fyrir sig fjóra syni
sína og sagði við þann elzta:
— Þú átt að ganga í háskólann. JÉg
vil ekki að þú verðir jafn ómenntað-
ur og hann faðir þinn er.
Við þann næsta sagði hún: — Og
þú átt að fara í tónlistarskólann. Ég
vil að þú verðir ekki laglaus eins og
hann faðir þinn.
Svo segir hún við þann þriðja: —
Þú átt að verða kaupsýslumaður. Ég
vil ekki að þú verðir jafn latur og
hann faðir þinn.
Og við þann yngsta segir hún: —
Þú átt að verða tannlæknir. Ég vil
að þú græðir peninga og verðir ekki
alltaf staurblankur eins og hann
faðir þinn er.
En yngsti sonurinn svarar: — Nei,
ég vil ekki verða tannlæknir. Ég ætla
að giftast undir eins og ég er kominn
úr menntaskólanum.
Þá brýnir faðirinn raustina og
segir:
— Ég harðbanna þér það. Þú mátt
ekki vera jafn heimskur og hann
faðir þinn var.
★
Ólína yfirsetukona rakst einu
sinni á Sánkti Pétur, þegar hann
var í kynnisferð á jarðríki. Hann
sagði henni, að hún mætti óska sér
einhvers ef hún vildi, og hún þáði
það og sagðist óska þess, að fram-
vegis fengi feðurnir fæðingarþján-
ingarnar en ekki mæðurnar, þegar
þær væru að ala börn. Nokkru síð-
ar var hún sótt upp að Hlíð. Hann
Óli hafði gifzt í þriðja sinn fyrir
nokkrum mánuðum. Hann var orð-
inn nokkuð gamall, en konan var
ung.
Og nú þurftu þau á yfirsetukon-
unni að halda. Og Ólína var forvit-
in um hvernig fara mundi. Jú, allt
gekk vel og rólega og móðirin
skrækti aldrei meðan barnið var
að koma.
En uppi á lofti lá Jói vinnumað-
ur og engdist sundur og saman af
kvölum. Hann var frá vinnu í nærri
því viku.
★
Síminn er ágæt og ómissandi upp-
götvun, en til þess að geta notað
hann þarf að vera sæmilega hljótt
kringum mann. Ef of mikil háværð
er í stofunni, er hætt við að maður
heyri ekki það, sem sagt er „hinu-
megin við vírinn“. Þess vegna sagði
Jónas hérna um daginn: — Viljið
þér bíða augnablik, ég ætla að lækka
í útvarpinu.
Maðurinn í símanum beið lengi og
Jónas kom lafmóður til baka. Og svo
sagði hann:
— Afsakiið, að ég lét yður bíða
svona lengi. En þetta var útvarpið
frúarinnar hérna á neðri hæðinni.
★
—- Konan mín er að gera mig vit-
lausan. Hún er alltaf að tala um
fyrri manninn sinn.
— Þú sleppur vel, kalla ég. Konan
mín er alltaf að tala um næsta mann-
inn sinn.
Garðyrkjusýning í Hveragerði
ið úrval fagurra blóma og hefði þó
húsnæðið mátt vera stærra, því að
af nógu er að taka í Hveragerði.
Fyrir 30 árum var fyrsta gróður-
húsið reist í Hveragerði, aðeins 45
fermetra stórt. Nú eru þar 36 garð-
yrkjustöðvar, samtals þúsund sinn-
um stærri en sú fyrsta. Ýmsar þeirra
hafa 1000 til 2400 fermetra undir
gleri. Um það bil % þessa mikla gróð-
urlands er notaður fyrir grænmeti og
tómata, en % fyrir blómarækt. Ýms-
ir gróðurstöðvaeigenda framleiða yf-
ir tíu tonn af tómötum á ári og einn
yfir 100.000 gúrkur.
En blómaræktin er líka í stöðugri'
framför, svo sem sýningin bar vitni
um. Bæði eru þar blóm, sem seld
eru afskorin, svo sem rósir, nellikur,
gladiolur o. fl. í mörgum afbrigðum
og einnig alls konar pottablóm. Þar
finna allir eitthvað, sem þá langar
til að eiga.
Fálkinn óskar garðyrkjubændun-
um í Hveragerði til hamingju með
sýninguna og þakkar fyrir ánægj-
una af að fá að sjá hana.
★
AUÐVELDARA.
—• Það er hörmulegt með æskuna
nú á dögum. Það er svo að sjá, sem
hún hafi meiri hug á að eignast bíl;
en giftast.
— Ójá. En það er líka miklu auð-
veldara að bakka út úr bílskúrnum
en út úr hjónabandinu.
Þó það sé eftir dúk og disk vill
Fálkinn minnast með nokkrum orð-
um hinnar undurfögru blómasýning-
ar, sem Hvergerðingar opnuðu fyrra
laugardag. Þar var samankomið mik-
Radarstöðin við „Alte Liebe“ í Gux-
haven er nýr áfangi á leið til auk-
ins öryggis í siglingum á nálœgum
slóðum. Með aðstoð stöð'varinnar á
skipum að vera fært að sigla við-
stöðulaust þó skyggni sé ekkert, en
þarna er, eins og kunnugt er, mikil
skipaumferð.
Fálkinn, 26. tbl. 1960
5