Fálkinn - 17.08.1960, Síða 8
ur fengizt, sem orðinn er. Áréttaði
hann þetta enn betur síðar, í ræðu,
er hann hélt yfir borðum við Irufoss.
Sá maður, sem einna mest hefur
komið við virkjunarframkvæmdir
Sogsins, Kay Langvad verkfræðing-
ur, var þarna einnig staddur ásamt
frú sinni, Selmu Þórðardóttur Guð-
johnsen, en sonur þeirra Sören, hefur
og verið starfandi verkfræðingur
bæði við Irufoss og Steingrímsstöð.
Kay Langvad tók við yfirstjórn
Ljósafossvirkjunarinnar nokkru eftir
að hún var hafin, og stjórnaði henni
af mikilli prýði, fyrir vekfræðinga-
félagið Höjgaard & Schultz. Síðan
var hann driffjöðurin í félaginu Foss-
kraft, sem ásamt Almenna Bygging-
arfélaginu tók að sér Irufossvirkjun-
ína, en í millitiðinni hafði hann fyrir
hönd Höjgaard & Schultz framkvæmt
merkilegasta stórvirki þessarar ald-
ar: hitaveitu Reykjavíkur. Fram-
kvæmd bygginga og annara mann-
virkja hefur verið í höndum þriggja
aðila: Almenna byggingafélagsins,
Verklegra framkvæmda og danska
verkfræðifirmans E. Phil & Sön, en
Langvad er meðeigandi i því fyrir-
tæki. Auk þess tók Langvad að sér
byggingu Skeiðsfossvirkjunarinnar
fyrir Siglfirðinga og fleira.
HÁDEGISVERÐUR
VIÐ iRUFOSS.
Að lokinni vígsluathöfninni var
stöðin nýja skoðuð, en síðan haldið
niður að Irufossi og snæddur ágætur
hádegisverður: kaldur lax með alls-
konar góðgæti, hamborgarhryggur
og loks ostur og kex og kaffi. Tr.
Þorfinnsson skólastjóri sá um hinn
ágæta mat. Stjórnaði Hjörleifur Hjör-
leifsson skrifstofustjóri hófinu. Ræð-
ur hófust ekki fyrr en forsetahjónin
voru farin, en þá tók til máls Geir
Hallgrímsson borgarstjóri og ávarp-
aði sérstaklega Steingrim Jónsson og
færði honum að gjöf frá Reykjavík-
urbæ silfurskrín, mikið listaverk, og
er lágmynd sú, sem prýðir stöðina
á Ljósafossi, greypt á lokið — ,,Ljós-
ið“ eftir Ásmund Sveinsson. 1 svar-
ræðu sinni rakti Steingrímur ítarlega
byggingarsögu hinnar síðustu virkj-
unar og þakkaði sérstaklega þeim
mörgu aðilum, sem stutt hefðu að
framkvæmd stöðvarinnar, en fulltrú-
ar margra þeirra voru þarna við-
staddir. Ávarpaði hann hina útlendu
aðila á þeirra eigin tungu, ýmist
ensku, þýzku og þremur norðurlanda-
málunum, og tókst fimlega og mátti
heyra hve heimavanur hann var i
öllum þessum málum. Og sérstaklega
beindi hann máli sínu til þeirra, yfir-
boðara og undirgefinna, sem lagt
hafa hönd á plóginn við framkvæmd
Sogvirkjunarinnar.
Af hálfu hinna þriggja verktaka
talaði Kay Langvad yfirverkfræðing-
ur og þakkaði góða hamvinnu. Hann
minntist hins geigvænlega óhapps 17.
júní í fyrra, er bráðabirgðastiflan
við upptök Sogsins sprakk og vatnið
flæddi gegnum stöðina og olli stór-
skemmdum, og þótti ýmsum fyrirsjá-
anlegt, að verkinu mundi seinka af
þeim sökum. Dómstólarnir voru ekki
kvaddir til að skera úr hver skað-
ann skyldi bera, heldur var samið
um það milli aðilanna á þann veg,
að allir mega vel við una. Og þrátt
fyrir áfallið varð stöðin fullger á
skemmri tíma en tilskilinn var og
farin að „mala gull“ fyrr en til stóð.
Bandaríkjasendiherrann, Thomp-
son, var meðal gesta, en stjórn hans
og ýmsar stofnanir vestra hafa verið
fyrirtækinu hjálpleg með ýmsar fyr-
irgreiðslur. Óskaði sendiherrann
Steingrímsstöð og öðrum viðreisnar-
fyrirtækjum islenzkum allra heilla,
og brá meira að segja fyrir sig ís-
lenzku við og við. — Fyrir hönd
hinna erlendu firma, sem selt hafa
virkjuninni vélar og tæki, talaði Vret-
heim, aðalforstjóri hinna miklu
ASEA-smiðja í Váster&s. Berdal verk-
fræðingur minntist i fróðlegri ræðu
undirbúnings hinna ýmsu Sogsvirkj-
ana og þess hve samvinnan við Stein-
grim Jónsson hefði jafnan verið á-
nægjuleg og skemmtileg. Síðastur
ræðumaður var Jakob Gíslason raf-
orkumálastjóri, sem gaf áheyrend-
um fróðlega útsýn yfir það, sem
koma skyldi í rafvirkjunarmálum
þjóðarinnar. Árið 2000 væru horfur
á að allt það kynjaafl, sem Þjórsá
geymir, yrði nýtt að fullu, sagði
ræðumaðurinn.
Að loknu borðhaldi og ræðuhöldum
var gengið niður að hinu nýja lista-
SteingrímsstöÓ
viS Efra-Sog. —
Oestirnir eru að
koma út frá
vígsluathöfninni.
8
Fálkinn, 26. tbl. 1960