Fálkinn - 17.08.1960, Side 11
Þetta er taflan, sem blasir viS á-
horfendum á Ólympíuleikvanginum í
Róm og birtir jafnharðan úrslit í
hinum ýmsu keppnisgreinum leik-
anna. Það þarf varla að taka það
fram, að þetta er fullkomnasta og
stærsta tafla sinmar tegundar í heim-
inum, t. d. eru í henni 8500 rafmagns-
perur.
★
EIN 150 ÁRA Á BORNEO.
Kerling ein á Borneo heldur því
fram, að hún sé orðin 150 ára og
eigi 272 afkomendur á lífi. Hún er
orðin heyrnardauf, en hefur góða
sjón. Og minnið er sæmilegt. Hún
man Vel eftir eldgosi, sem varð þar
eystra árið 1821. ,,Þá var ég gift og
búin að eiga tvo krakka," segir hún.
★
KONUR OG SPEGLAR.
Allir speglar hafa verið teknir úr
klefunum í baðhúsum í Japan. Er
þelta gert til að rúmið nýtist betur
og að fólk sé styttri tíma í klefun-
um. Síðan speglarnir hurfu, er kven-
fólkið að meðaltali 8 mínútum skem-
ur en áður í klefunum, og karlmenn-
irnir þrem mínútum.
★
Flippy, tamda sœljónið í Marineland-
kerinu í Florida, liefur þann háttinn
á, þegar hann langar í eitthvað, að
hoppa upp, kippa í kúluna og hringja
með því bjöllu, sem dregur atliygli
gestanna að honum, og þá er auð-
vitað alltaf von um eitthvað sœlgœti.
5
MÍNÚTUM
TILHREINSUN I ST. PAULI.
Skemmtihverfið St. Pauli i Ham-
borg, með „Reeperbahn" og öðrum
alræmdum stöðum, er nú í deiglunni.
Stendur til að gera þetta hverfi
mannsæmilegra en áður, banna ó-
smekklegar auglýsingar og setja há-
marksverð i þeim veitingastöðum,
sem okra mest á veitingunum. St.
Pauli á framvegis að verða staður,
„sem bæði útlendingar og Þjóðver.i-
ar uni sér vel á“, segir í tilkynning-
unni um breytingarnar.
★
Það er ýmislegt um að vera í Can-
nes, þar sem hin frœga kvikmynda-
liátíð er haldin árlega. Allir vilja
láta á sér bera og grípa í því skyni
til furðulegustu hluta. Hér hefur
franska kvikmyndadisin Mona Car-
ras troðið sér inn í fuglabúr og lœt-
ur svo sirkusfífl mata sig á sykri.
Ekki er öll vitleysan eins.
★
DOWNING STREET 10 RIFIÐ.
Steinhúsið í Downing Street 10 í
London, sem forsætisráðherrar Breta
hafa búið í kringum 200 ár, verður
rifið í ágúst, enda þykir orðið lifs-
hætta að búa í því. Tvö hæstu húsin
verða rifið niður, og nýr, veglegur for
sætisráðherrabústaður byggður á lóð-
inni. Síðan i stríðslok hafa forsætis-
ráðherrafrúrnar — Churchill, At-
tlee, Eden og Dorothy Macmillan —
kvartað sáran undan húsakynnunum
og látið í veðri vaka, að þær þyrðu
ekki að taka á móti gestum, af
hræðslu við að húsið hryndi undir
þeim. — Enn hefur ekki verið látið
neitt uppi um hvernig húsið verður.
En þó er talið víst, að framhliðin
út að götunni verði lík því, sem var
á gamla húsinu. En þegar inn verð-
ur komið, verður allt nýtt, og stór-
um þægilegra en áður var.
Þeir, sem ferðast til Ítalíu, reka
sig stundum á, að það er alls ekki
svo létt, að borða spaghetti með rétt-
um tilburðum. En ef maður hefur
útlærðan aðstoðarmann, eins og Be-
linda Lee, þá œtti maður nú aö klára
sig að hlutunum. Aðstoðarmaðurinn
er ítálski kvikmyndaleikarinn Folco
Lullu.
★
SPAGHETTI-SAMKEPPNI.
13 horaðir ítalir og 7 feitir, efndu
til samkeppni um hver þeirra gæti
hámað mest í sig af hinum þjóð-
fræga mat Itala, spaghetti. Sigur-
vegarinn varð Enrico Busi, 43 ára og
102 kíló á þyngd. Hann át 5,5 kíló
á tæpum þrem tímum.
★
NINA AVERY
í Los Angeles er 49 ára og gefin
fyrir fuglinn. Hún var nýlega að fá
skilnað frá fjórtánda manninum sín-
um. Blaðamaður spurði hana hvað
hún ætlaði að taka fyrir næst, en hún
svaraði: „Ég hef aðallega fengizt
við að giftast og skila, meirihlutann
af ævinni, svo að það er eiginlega
ekkert annað sem ég kann.“
★
Breyttur hagur fólks í Englandi, ekki
sízt hefðarfólks, hefur orðið til þess,
að margir hafa orðið að breyta lífs-
venjum sínum. Markgreifinn af Ex-
eter seldi fyrir nokkru ýmislegt af
gömlum skrautgripum af lieimili sínu
í Stamford. Hér er listaverkakaup-
maðurinn með einn hlutinn, silfurlik-
an af frönsku skipi, gert í París 1505.
Skipið notast sem salt og piparbauk-
ur og verðið er ca. 800.000,00 krónur.
Fálkinn, 26. tbl. 1960
11