Fálkinn - 17.08.1960, Síða 18
Hann barðist
Trúin á skrimslið i Loch Ness í
Skotlandi er lífseigari en trúin á
Lagarfljótsorma eða Þverárskötur,
og stafar það líklega af þvi, að Skot-
ar eru íhaldssamari en við. Síðan
froskmenn fóru að kafa í sjó og
vötnum, hefur skrímslistrúnni meira
að segja vaxið fylgi. Fjórir frosk-
menn hafa kafað í Loch Ness siðustu
árin til að leita að skrímslinu, —
en þeir komu ekki upp aftur! Þetta
er dularfullt, og margir láta sér
nœgja þá nærtæku skýringu, að
skrímslið hafi drepið þá og étið.
En 15. ágúst í fyrra varð kunnur
froskmaður, John Newold að nafni,
til þess að kafa niður á 70 feta dýpi
í Loch Ness til þess að skoða skrímsl-
ið. Hann kom upp aftur og sagði
nýstárlega ferðasögu: Hann hitti
skrimslið og það greip í löppina á
honum og reyndi að draga hann með
sér niður í undirdjúpin, en John
slapp! Þess má geta, að það var
sirkusstjóri einn, Bernard Mills, sem
fékk kafarann til að gera þetta, og
rná nærri geta, að fólk hefur viljað
sjá hetjuna á Circus Mills á eftir.
Hugsum okkur bara ef einhver, sem
fullyrti að hann hefði „siglt“ á Þver-
árskötu inn I Þórsmörk í sumarfrí-
inu, sýndi sig í Austurbæjarbíói. Þá
mundi ekki vanta áhorfendur!
------ John Newbold er 32 ára og
hefur verið froskmaður í tíu ár, og
hefur kafað dýpst 67 metra. Fyrir
8 árum var hann gerður út til að
leita uppi japanskan kafbát, sem
sokkið hafði nálægt Singapore mörg-
um árum áður. Hann fann bátinn,
í honum voru lík 40 manna, þeir voru
allir með kúlugat á hauskúpunni —
höfðu skotið sig til þess að komast
hjá köfnunardauðanum. Enskan kaf-
bát hefur Newbold lika fundið á mar-
arbotni. Þar hafði áhöfnin ekki viljað
stytta sér aldur með kúlu, heldu dáið
af köfnun. — Newbold hefur líka
barizt við hákarl, er hann var að
kafa með innfæddum manni við Bor-
neo 1955. Sá innfæddi skarst á steini,
blóðið rann úr honum í sjóinn og
þá kom hákarlinn og drap hann, en
Newbold komst undan með furðu-
legum hætti.
Það var þessi maður, sem sirkus-
stjórinn — sem auðsjáanlega kann
auglýsingatækni — fékk til að ganga
úr skugga um, að skrímslið væri til.
„Ef þér finnið það, er ég fús til að
borga yður allt að því 30.000 pund.
Finnið skrímslið og segið mér hvar
það er, þá skal ég ná í það,“ sagði
hann við Newbold.
Og Newbold var til í það. Þ. 15.
ágúst i fyrra héldu þeir af stað,
við skrímslið
Lesandinn ræður hvort hann
trúir frásögninni, sem hér fer
á eftir. — En John Newbold
fullyrðir, að hann hafi „bar-
izt við“ Loch Ness skrímslið.
Frásögn hans bendir þó frem-
ur til þess, að hann hafi að-
eins káfað á því“. En hvað
um það, — frásögnin er
skemmtileg.
fóru á vélbát út á mitt vatnið, báðir
tveir, en það er talið 200 metra djúpt.
Newbold var með tvo súrefnisdunka
á bakinu.
GAMANIÐ GRÁNAÐI.
Af hálfu Newbolds var þetta engin
alvara. Hann vissi að hann gæti ekki
kafað nema sjöttung dýpisins (ca. 30
metra) og áður en komið yrði á tæp-
an helming þess dýpis, mundi verða
algert myrkur í vatninu, því að það
er ekki tært.
Þegar hann kom niður á 16 metra
dýpi, sá hann aðeins hálfan metra
frá sér. En á 20 metra dýpi varð
hann allt í einu hræddur. „Mér
fannst eiltthvað dularfullt vera nærri
mér, — eitthvað hættulegt,“ segir
hann. „Ég hnikaði skrúfunni ofur-
lítið til að fá meira loft, og tróð
marvaðann og reyndi að herða upp
hugann.“
Svo synti hann 15—20 metra til
hliðar og síðan í hring og fannst
alltaf að hann mundi rekast á eitt-
hvað þá og þegar. „Vatnið var svo
gruggugt, að ég sá ekki höndina á
mér þegar ég rétti hana frá mér.
Þess vegna þreifaði ég fyrir mér
með vinstri hendinni, með hnífinn í
þeirri hægri, til þess að vera við
öllu búinn.“
Svo færði hann sig niður á 25 metra
dýpi. Þar sá hann ekki höndina á
sér á 25 sm færi. Synti í hring, og
nú setti aftur að honum hræðslu.
Og nú rak hann höndina í eitthvað
slímkennt, sem hann gat ekki náð
taki á. Hann hélt að þetta væri gam-
all trédrumbur og reyndi að glenna
fingurna um hann, en missti af. Og
nú fann hann að þetta hreyfðist
snöggt, og kom við hann sjálfan.
Hann missti hnífinn, sem sökk.
„Mér var hrundið 2—3 metra beint
niður," segir hann, „og ég náði ekki
andanum um tíma. Til þess að fá
meira loft sem fljótast, setti ég súr-
efnisstrauminn á 3A, og ég var hrædd-
í Loch Ness!
ur, án þess þó að æðrast, því að það
getur kostað mann lífið.“
Hann leit upp, en sá enga skímu.
Þess vegna hlaut eitthvað ógagnsætt
að vera milli hans og vatnsborðsins.
Hann var á 70 feta dýpi, eða kannske
meir, en hvað gat verið þarna fyrir
ofan hann? Stór trjádrumbur? Hver
veit?
Nú afréð hann að synda upp á
vatnsborðið að skipinu og hvila sig,
og kafa svo aftur eftir hádegisverð.
En eftir nokkur sundtök rakst hann
aftur á þetta svarta flykki fyrir of-
an sig og þreifaði á einhverju sleipu
og slímkenndu. Hann tók í það, en
það kippti sér undan, alveg eins og
gripið væri um sporð á fiski. „Þetta
var svo nærri mér,“ segir Newbold,
„að ég sá móta fyrir grásvörtu fer-
líki, sem liðaðist áfram í vatninu eins
og einhver tröllaukinn ormur, og
hringsólaði í sífellu fyrir ofan mig,
alveg eins og það vildi varna mér
að komast upp.“
— -— Þannig sagðist Newbold frá
daginn eftir, i sjúkrahúsinu, þar sem
hann lá með marinn fót eftir viður-
eignina við skrímslið.
Meðan hann var að berjast við að
komast upp I vatnsborðið, vafðist
eitthvað um hægri fótinn á honum,
líkt og veiðiarmur á kolkrabba.
„Fyrst fannst mér þetta ekki geta
verið annað en kolkrabbi, en svo
sá ég að það var óhugsandi. Kol-
krabbi er ekki til í Loch Ness. Ég
reyndi að slíta mig af þessum kaf-
andi draug, og losa sogskálina, sem
ég hélt vera, af fætinum. En þá fann
ég að engin sogskál var á þessum
armi, heldur var hann margsnúinn
um fótinn á mér, langur og álíka
gildur og mannsfótur."
„Næst datt mér í hug, að þetta
væri stór áll. En þeir eru ekki til
í neinu skozku vatni, að minnsta
kosti ekki á svona á miklu dýpi,“
segir Newbold. Og nú dró þessi vatns-
draugur hann langar leiðir ofan í
djúpið, unz hann loks losnaði og
komst undan, nær dauða en lifi.
IMYNDUN EÐA RAUNVERA?
Er þessi frásögn hugarburður? Ber-
um hann saman við reynslu sumra
þeirra, sem áður hafa kafað eftir
Loch Ness-skrímslinu.
Fyrir fimm árum kafaði Norman
Evans frá bát úti á miðju vatni.
Hann var mikið hraustmenni, 25 ára.
Eftir hálftíma kom hann upp aftur
og sagðist hafa séð svartan „fisk“
á 50 feta dýpi — tiu metra langan,
minnst — sem kom syndandi á móti
honum.
18
Fálkinn, 26. tbl. 1960