Fálkinn - 17.08.1960, Síða 20
HEIMILIÐ
Nú eru tómatamir að lækka í verði,
og því sjálfsagt að nota þá eins og
hægt er, þar sem þeir eru mjög fjör-
efnarikir. Hér er uppskrift að ágæt-
um rétti á kvöldborðið, einnig má
nota hann sem forrétt til miðdegis-
verðar. Veljið meðalstóra tómata,
skerið þá í kross, þó svo að þeir hangi
saman, takið tómatkjötið úr (1).
Hrærir 2 smurosta lina með dálitlum
rjóma, kryddið með salti og pipar (2).
Hrærið smáttklipptum graslauk eða
steinselju saman við, setjið kremið
í tómatana (3). Dálitlum graslauk
stráð yfir, og tómatarnir bornir fram
á salatblöðum. 1 miðjuna er staflað
brauðpinnum; smurð hveitibrauðs- og
rúgbrauðssneið lögð saman, síðan
skornar í lengjur (4). Tómatkjötið
er notað í súpu eða sósu.
NYLON
Straujárnið verður með tímanum
brúnt að neðan. Hreinsið það með
klút, sem dýft hefur verið í edik
eða natron.
Œititj 'óri: -JJriitjana ^teing.rimidóttii'
i' 7„, ; . »' -i ■ ■
^-Áleilrce&i
Þegar prjónaðar eru peysur og
kjólar á börn, er skynsamlegt að
byrja efst og prjóna niður á við. Þá
er hægðarleikur að lengja flíkina og
bæta úr, ef t. d. ermin slitnar að
framan.
Brauðkassinn verður oft leiðinleg-
ur að innan. Fóðrið hann með alu-
miniumpappír. Auðvelt er að festa
pappímum með límbandi.
Nylon er eitt þeirra gerviefna, sem
hafa rutt sér til rúms á seinni árum.
Fyrst var það einkum notað í sokka,
seinna meir í flestan kvennærfatn-
að, blússur og kjóla, og allir kann-
ast við karlmannsskyrtur úr nylon.
Nylon er lauflétt, og því hentugt
í ferðalög, sterkt og áferðarfallegt,
heldur lagi án þess að vera strauað,
dregur aðeins til sín ea. 5% vatn,
þ.e.a.s. þornar mjög fljótt.
Nylonfatnað þarf að þvo daglega
úr mildum sápuvötnum eða sérstök-
um nylon-þvottalögum, og á ferða-
lögum má notast við handsápu. Aldr-
ei má sjóða nylon; festast þá smá-
brot I efninu, sem ógerningur er að
ná úr. Hengja skal blússur og skyrt-
ur úr nyloni upp rennandi blautt á
plastic herðatré, aldrei á lituð herða-
tré, þvi að nylon tekur mjög auð-
veldlega í sig lit, og er nær ógern-
ingur að ná litnum úr.
Ekki þarf að straua nylonfatnað,
en hafi það verið gert einu sinni,
verður óhjákvæmilega að halda því
áfram. Straujárnið má aðeins vera
Jórturleðri er hægt að ná úr fatn-
aði með því að láta ísmola liggja á
blettinum stundarkorn.
Nylon bráönar, sé járniö of heitt.
KVENÞJDÐIN o$
Tómatar með
ostafyllingu
volgt, því að nylon bráðnar við mik-
inn hita.
Sýra eyðileggur nylon, aðeins einn
dropi á nylon veldur skemmdum, og
ekki er ráðlegt að standa fyrir aft-
an púströrið á bíl, sem er að fara
af stað. Verður þá lítið eftir af nylon-
sokkunum.
Hvítum nylonfatnaði hættir til að
gulna. í verzlunum í Reykjavík fæst
sérstakur hvitur litur fyrir nylon
(Dylon super white), fylgir honum
nákvæmur leiðarvisir. Einnig má
bleikja nylon í vægri klórupplausn.
☆
Sumar í borginni
Léttur dragtarkjóll úr þunnu hör-
efni, fínu bómullarefni eða skant-
ungi er þægilegasti bæjarklæðnaður-
inn á heitum sumardegi. Hann á að
sitja laus og frjáls, eins og þessi
franska fyrir mynd, sem einkum er
ætluð miðaldra konum. Hálsmálið,
með lágum, hnýttum kraga, er eink-
ar klæðilegt.
20
Fálkinn, 26. tbl. 1960