Fálkinn - 17.08.1960, Page 21
Ælunnið þiö aö tjtira
hntfppaf/öt ?
Handsaumuð hnappagöt í léreft eru
tvenns konar: lárétt og lóðrétt. Lá-
rétt hnappagöt (mynd le) eru notuð,
þegar hnappagötin eru hornrétt á
faldbrúnina og eru þau ávöl þeim
megin, sem að brúninni veit. Lóðrétt
hnappagöt (mynd lf) eru notuð, þeg-
ar hnappagötin eru höfð samhliða
faldbrúninni, t. d. á skyrtu og blússu-
lista, og einnig oft á sængurver og
koddaver.
Lárétt hnappagöt.
Klippið hnappagöt í bút af efninu
og mátið töluna við, til að finna
hæfilega stærð hnappagatanna, sem
sauma á (mynd la). Merkið stað og
lengd hnappagatanna nákvæmlega
eftir þræði (mynd lb). Þræðið í kring
um þau ef efnið er laust í sér. Gott
er að þræða í saumavél (mynd lc).
Klippið hnappagötin og varpið brún-
irnar (mynd lc). Varpsporin eiga að
vera laus, svo að brúnirnar herpist
ekki. Varizt einnig að hafa varpspor-
in of löng.
Kapmellið hnappagötin frá hægri
til vinstri með hnappagata-kapp-
mellluspori (mynd ld). Gætið þess
að kappmellusporin séu regluleg, bæði
hvað snertir lengd og millibil milli
spora. Þegar búið er að kappmella,
eru tekin 2—3 þverspor jafnlöng og
breidd hnappagatsins og saumað yfir
þau með venjulegu kappmelluspori
(tunguspori, mynd le).
MyNDI
LóÖrétt hnappagöt.
eru gerð á sama hátt, nema hvað
þau liggja samhliða faldbrúninni, eins
og fyrr er sagt, og eru heft i báða
enda (mynd lf).
vandamálið, þegar vetrarfötin koma
fram í dagsljósið. Flíkin, sem var
mátuleg i vor, er orðin allt of lítil.
Hér fáið þið nokkrar hugmyndir
um, hvernig lagfæra má kjóla án þess
að hann beri með sér, að hann hafi
verið of lítill.
Bönd og leggingar úr öðru efni og
lit, sem fellur vel við kjólinn, geta
gert kraftaverk.
Ef kjóllinn er orðinn of þröngur,
er hægt að klippa hann í sundur að
framan, setja leggingu framan á,
hneppa kjólinn, og lengja svo kjól-
inn með sama efni.
Ef kjóllinn er of stuttur i mittið,
er hægt að breyta honum í „bolero-
kjól“, eins og myndin sýnir. Sama
efni er svo haft í blússuna og til
að síkka pilsið.
*
YUL BRYNNER,
„gull-skallinn“ í Hollywood, sem
er 42 ára, er nýgiftur Doris Kleiner,
sem er ættuð frá Jugoslavíu, en hef-
ur átt heima í Chile undanfarin ár,
eins og „Esja“ gamla. Brynner hefur
verið gift lækninum Virginia Gil-
more í sextán ár.
Flestum telpum á þessum aldri mun hæfa svona röndóttar
stuttbuxur og tilheyrandi einlitur jakki.
Og sé mamma vön að sauma, er henni ekkert auðveldara
en að stæla þessa fyrirmynd. En munið, að velja eitt hinna
hentugu bómullarefna, sem nú fást og ekki þarf að straua.
Börnin vaxa svo fljótt upp úr
fötunum.
Flestar mæður verða á haustin að
standa augliti til auglitið við sama
Fálkinn, 26. tbl. 1960
21