Fálkinn - 17.08.1960, Qupperneq 23
Óli fjósamaður er kominn í nýja
vist. Honum leið vel að öðru leyti
en því, að maturinn var lélegur, og
fór Óli ekki dult með skoðun sína
á honum.
— Jæja, Óli, segir bóndinn, — mér
er sagt, að þú sért ekki ánægður
með matinn. Finnst þér hægt að
setja nokkuð út á grautinn, til dæm-
Ss?
— Spurðu grautinn að því, en ekki
mig. Hann er nógu gamall til að
geta svarað fyrir sig sjálfur.
Kapphlaupsspilið
Það er fljótgert að búa það til.
Fáðu þér pappaspjald, 31x9 cm, og
strikaðu það eins og myndin sýnir,
3 cm milli langstrika og 1 cm milli
þverstrika. Merktu línurnar tölunum
1—30.
Skopparakringluna gerir þú úr
pappa, eins og myndin sýnir, og
stingur blýantsstúf í hana miðja. Og
svo getið þið byrjað.
Hver spilari hefur hnapp, sem hann
leggur á enda plötunnar. Svo skipt-
ist þið á um að snúa kringlunni og
hver flytur fram sinn hnapp um jafn
háa tölu og stendur á kringluborð-
inu, sem kemur niður þegar kringl-
an stöðvast. Ef kringlan stöðvast á
h- 10 verður að flytja hnappinn 10
aftur á bak, eða þangað sem byrjað
var. Þegar kemur að markinu 30 er
um að gera að vera heppinn. Ef þú
t. d. stendur á 20, verður þú að fá
2, til þess að vinna, eða halda áfram
í réttri röð þangað til þú fær 2. Það
stoðar ekki þó að þú fáir 3 eða meira.
Þau höfðu keypt sér bíl og frúin
hafði fengið ökuleyfi og var byrjuð
að aka upp á eigin spýtur.
— Hvernig gengur þér aksturinn?
spurði vinkonan.
— Bara vel, svaraði frúin. — 1
gær komst ég upp í áttatíu, og á
morgun ætla ég að reyna að loka
ekki augunum þegar ég mæti bíl.
★
— Takiö þið nú eftir, drengir, þegar
þrýstiloftssprengjuflugvélin lcemur
hérna út úr kassanum.
Þessi vinalegi kettlingur fannst í
járnbrautarlest, sem var á leiö til
London. AuÖvitaÖ vissi enginn hvað-
an hann kom eða hvert hann œtlaöi,
svo aö dýraverndunarfélögin uröu aö
taka greyiö til uppfósturs.
Fálkinn, 26. tbl. 1960
23