Fálkinn - 17.08.1960, Qupperneq 35
HANN VILL REYNA LlKA. — Pabbi stráksins er fallhlífarhermaður í ameríska liSinu í Vestur-
Þýzkalandi, svo að auðvitað vill stráksi læra listina líka. Og nú sést hann (t. h.) vera að stökkva
úr 11 metra háum œfingaturni, og svertingi hjálpar honum. — Til vinstri sést hann í fallinu.
FITUÐ ÓAFVITANDI. — Konan, sem situr á myndinni, hefur verið dáleidd til þess að fita hana,
og dávaldurinn, sem heitir Baron, stendur bak við hana. Hún er látin éta og drekka næringarríka
fæðu, en veit ekkert sjálf hvað hún er að gera. í fimm daga var hún meðvitundarlaus og gerði
allt, sem dávaldurihn sagði lienni, og fitnaði drjúgum og samtímis voru læknuð útbrotin, sem liún
þjáðist af. — Gœti Baron ekki megrað fólk í dásvefni? Þá mundi hann hafa meira en nóg að gera.
Fálkinn, 26. tbl. 1960
35