Fálkinn - 31.05.1961, Síða 23
ir þeirra Norðmanna, er hér dveljast,
eru Höydal, sem verður 90 ára í sum-
ar, og Andres Bertelsen, sem er 85 ára
gamall.
Formaður Normannslaget er Einar
Farestveit, varaformaður Indrid Björns-
son, ritari Arvid Hoel og vararitari Odd
Didriksen.
★
Það var skemmtilegt að vera viðstadd-
ur, er Norðmenn og íslendingar -héldu
17. maí hátíðlegan í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Þar mátti sjá margan fagran þjóð-
búning og það var ekki síður yngra
kvenfólkið, sem klæddist þjóðbúningi.
Meðal skemmtiatriða var söngur Fóst-
bræðra, sem komu í stutta heimsókn,
en þeir kváðust vera að þakka fyrir
góðar móttökur fyrr og síðar í Noregi
— móttökur, sem þeir kváðu ógleym-
anlegar.
í dag kemur hingað góður gestur,
sjálfur konungurinn yfir Noregi, Ólafur
5. Norðmenn búsettir á íslandi og ís-
lendingar munu áreiðanlega taka hönd-
um saman um að gera dvöl hans hér
á ísiandi sem ánægjulegasta.
Einar Farestveit og kona hans Guð-
rún. Guðrún er íslenzk, en hefur
klæðzt norskum þjóðbúningi í tilefni
dagsins. Einar hefur dvalið hér í 28
ár og er nú framkvæmdastjóri hjá
G. Helgason & Melsted.
Talið frá vinstri: Bernhard Petersen, sem hefur dvalið hér lengst núlif-
andi Norðmanna á Islandi. Bernhard kom til landsins árið 1905; Harald
Faaberg, sem hefur dvalið hér í 34 ár; sonur Haraldar og kona hans.
Fremst til hægri: Sonur Jóns Gíslasonar, Hafnarfirði, og við hlið hans
dóttir Haralds Faaberg. Næst þeim er kona Bernhards Petersens og kona
Haralds Faaberg.
NORÐMENN Á ÍSLANDI
FÁLKINN
23