Fálkinn - 31.05.1961, Page 27
heyrði kannski einhvern koma á eftir
sér og nálgast óðum, og þegar hún nam
staðar og ætlaði að hyggja að þessu, þá
var hann allur á bak og burt, og allt
varð kyrrt og hljótt á augabragði. Eða
það var eins og einhver læddist að
henni og hyrfi í skuggann undir ljós-
keri eða dökkum skíðgarði, þegar hún
gætti að.
Hún gat ekki sagt, að hún hefði áður
orðið þessa vör, eða hún hafði að
minnsta kosti ekki hirt um það. — En
þetta í dag — það gat ekki verið ein-
leikið.
Auðvitað var þetta einhver vitleysa,
en hún gat ekki að því gert. Það var
eins og kvikt væri umhverfis, enda þótt
hvergi sæist lifandi vera. Hrörleg hús-
in með alla svörtu gluggana — þau
báru svip þess, að eitthvað illt og leynd-
ardómsfullt byggi þar inni. — í hvert
skipti sem hún varð að fara inn í ein-
hvern þessaru gínandi, dimmu húsa-
garða með blað, átti hún von á því að
hitta það fyrir. — Hún hafði hraðan á
að losa sig við blöðin og hljóp svo við
fót.
Það var einhver, sem veitti henni eft-
irför allan tímann. Og hún var orðin
svo máttlaus í hnjánum, að það var
ekki til neins að ætla að reyna að kom-
ast undan. Næmi hún staðar aftur, þá
veitti hann henni eftirför. Og það dró
æ meira saman með þeim.
Guði sé lof fyrir,' að hún var senn bú-
in og gat farið heim aftur.
Hún flýtti sér af stað aftur. Af gilda,
þunga stranganum voru aðeins örfá
blöð eftir. Þarna í hornhúsinu bjuggu
tveir, sem áttu að fá blaðið, og svo var
það mjólkurbúðin og tvö hús enn, og
þá var hún búin.
Nú höfðu þeir slökkt á ljóskerunum.
Himinninn var alhvítur, en húmið hélzt
enn við undir húsveggjunum, grá og
óhugnanleg skíma hvíldi yfir öllu. Ein-
hvers staðar heyrðist skrölt í tómum
vagni. Það var þó ekki neitt til að hræð-
ast.
Enn var hún komin að niðurlotum.
Hún varð að setjast á tröppur og kasta
mæðinni. Hún fann hvergi til sársauka,
en hana svimaði, og það var eins og
dregið hefði úr henni allan mátt.
Að hugsa sér, ef hún gæti nú ekki
framar staðið upp! — Hún fann sig allt
í einu svo algerlega hjálparvana, þar
sem hún sat. Hún ætlaði þegar að
standa upp aftur, en orkaði því ekki.
Hún sat bara kyrr og horfði framfyrir
sig starandi augum. Það var ekkert vit
í þessu, það dugði ekki að sitja svona
hér! — Hún var þó að komast heim!
Þarna stóð hann og beið hennar. Og
nú kom hann, já, nú kom hann!
— Guð minn góður, muldraði hún
fyrir munni sér. Hún bandaði frá sér
höndunum eins og til að bera af sér
blak. Svo lét hún fallast aftur á bak.
Nokkrum sinnum fóru krampadrættir
um líkama hennar, — eftir það lá hún
grafkyrr.
Frh. á bls. 40
Nú fer amma alveg að koma, sagði Kristín.
En sjálf var hún líka smeyk. Þetta var
svo undarlegt. Tíminn var svo hræði-
lega tengi að líða og myrkrið að skella á.
SMÁSAGA EFTIR ARNULF ÖVERLAND
Þýðing: Helgi Sæmundsson - Myndskr.: R. Óskarsdóttir
UOSASKIPTI
FALKINN 27