Fálkinn - 31.05.1961, Síða 28
TASKA MEÐ FRÖNSKU SNIÐf
Prjónaðar töskur eru mjög í tízku
nú, einkum yfir sumartímann. Þær eru
fallegar og svo rúma þær ein ósköp. Hér
er fljótprjónuð fyrirmynd.
Efni: 350 g gróft prjónagarn. Prjónar
nr. 7 og töskulás, trúlega til af gamalli
tösku. Þar sem betra er að fóðra tösk-
una, þarf að áætla 50X50 cm af fóðri.
Aðferð: Fitjið upp 50 1. og prjónið
klukkuprjón. 1. umf. * 1 sl., slegið upp
á, næsta 1. tekin fram af, endurtekið frá
* endað á 2 sl. 2. umf. 1 sl., * slegið upp
á, næsta 1. tekin fram af, prjónið lausa
bandið og næstu 1. slétt saman, endur-
tekið frá * endað á 1 sl. Endurtekið
þessar 2 umf., þar til stykkið er 50 cm.
Fellt af.
Frágangur: Brjótið prjónaða stykkið
í tvennt á lengdina og saumið saman
hliðarnar, skiljið eftir 4 cm. op í hvorri
hlið. Saumið jafnstóran poka úr fóðrinu,
einnig með opi í hliðunum, festið þau
í töskuna, á þann hátt að festa því með-
fram opunum.
Til þess að móta toskuna eru hliðarn-
ar brotnar inn nál. 6—8 cm, þannig áð
það myndast eins og fellingar hjá opun-
um. Taskan fest á lásinn, athugið að láta
prjónið hafast við.
Snúran er snúin úr 15 þráðum, höfð
nál. 1 m. löng.
Það eru lirfurnar, sem valda tjóni.
Fullvaxnar eru þær nál. 1 sm á lengd.
Svona lítur
ullarefni út,
er það hefur
verið möl-
étið.l
VetiÍ á
í)atiketai
yecjh ml!
Eins og flestir vita, getur mölur oft
og tíðum stórskemmt verðmæta hluti.
Hættast er ullarflíkum, eða ullarefn-
um, skinnavörum, teppum og bólstruð-
um húsgögnum. Allan ársins hring þurfa
húsmæður að vera vel á verði gegn
þessum vágesti, en mest er hættan þó
frá maí til ágústmánaðar.
Það er ekki mölflugan sjálf, heldur
lirfur mölsins, sem valda skemmdunum,
er flestir kannast vel við af smáum og
stórum götum á ullarflíkum. Það er
því frekar þýðingarlítið að eltast við
fljúgandi melflugur, því að þær hafa
þegar verpt eggjum sínum og deyja
eftir skamma hríð. Hins vegar benda
þær okkur á hættuna.
Mölurinn verpir 100—150 litlum, hvít-
leitum eggjum, sem ógerningur er að
koma auga á, því að þau liggja hulin
í fellingum eða ofan í lónni, en fyrst
og fremst á dimmum stað. En eggin
eru viðkvæm og sé vel ryksugað, eyði-
leggjast þau. Venjulegur stofuhiti flýtir
fyrir.því, að lirfan komist úr egginu,
en kuldi tefur fyrir vexti hennar. En
venjulegur klaktími er 4—8 dagar. Við
0°C eða lægri hita, deyja eggin á 3
vikum, án þess að klekjast út. Lirfan,