Fálkinn - 17.01.1962, Blaðsíða 27
Efri mynd: Oft er nóg a& skola
sveppina úr köldu rennandi
vatni. — Neðri mynd: Skeri'ð
ætíð neðan af fætinum.
saman við hann eða rækjum
og fiskibollum.
SVEPPIR í RJÓMA-
JAFNINGI.
250 g sveppir
50 g smjör
IVz dl rjómi
1 msk. saxaður laukur
2 tsk. sítrónusafi
1 tsk. kartöflumjöl.
Sjóðið sveppina og laukinn
í 5—8 mínútur í smjöri, ásamt
sítrónusafanum. Rjómanum
hellt yfir, soðið í 2—3 mínút-
ur. Kartöflumjölið hrært út í
1 msk. af köldu vatni, hrært
saman við. Kryddað með V2
tsk. af salti. Borið fram á
smjörsteiktum hveitibrauð-
sneiðum. Einnig ljúffengt með
pönnusteiktum kjötréttum og
hænsakjöti.
SVEPPASÓSA.
250 g sveppir
40 g smjör
4 dl kjötsoð
2 msk. hveiti
2 eggjarauður
1 tsk. sítrónusafi
(1—2 msk. hvítvín)
Salt, pipar.
Smjörið brætt, niðursneidd-
ir sveppirnir soðnir þar í 10
mínútur, hveitinu hrært sam-
an við, þynnt út með soðinu,
soðið 5—8 mínútur. Eggja-
rauðurnar hrærðar með sitr-
ónusafanum (og víni), sósunni
hrært varlega saman við.
Krydduð. Þess skal gætt, að
láta sósuna ekki sjóða, þurfi
að hita hana upp.
Borin fram með soðnu
hænsakjöti, soðnum fiski,
steiktum kjötréttum o. fl.
SVEPPIR MEÐ OSTI.
300 g sveppir
50 g smjör
1 dl rjómi
Frh. á bls. 32
Hringir með kaffinu
fiaí m AOeppi
irnir soðnir við mjög vægan
hita í 10 mínútur undir hlemm.
Afgangnum af soðinu -hellt út
í, jafnað með smjörbollu
(smjörl. og hveiti hrært sam-
an í deig), þegar sýður. Soðið
10 mínútur.
Eggjarauðurnar þeyttar með
rjómanum, nokkrum dl af
súpu þeytt varlega saman við.
Hellt út í súpupottinn, hitað,
þeytt vel í á meðan, má ekki
sjóða. Súpan krydduð, sérstak-
lega er gott að keima hana
með hvítvíni.
SVEPPASÚPPA II.
150—200 g sveppir
1 msk. smátt saxaður
laukur
2 msk. smjörlíki
3 msk. hveiti
114 1 kjötsoð
1 dl rjómi
Salt
2 tsk. sítrónusafi.
Smjörlíkið brætt, lauknum
og niðursneidduim sveppunum
hrært saman við, látið malla
í 20—30 mínútur. Hveitinu
hrært saman við, þynnt út
með heitu kjötsoðinu, soðið 5
—10 mínútur. Rjómanum bætt
út í soðið 2—3 mínútur. Súp-
an keimuð með salti, sítrónu-
safa og víni, ef til er. Borin
fram með ostastöngum.
S VEPPA J AFNIN GUR.
200 g sveppir
2 msk. smjör/smjörlíki
2 mks. hveiti
3y2 dl sveppasoð eða
rjómabland
Sítrónusafi
Salt.
Sjóðið niðursneidda svepp-
ina í smjörinu við vægan hita
20—30 mínútur. Hveitinu
hrært saman við, þynnt út
með vökvanum. Kryddað með
salti og sítrónusafa. Jafning
þennan er ágætt að nota í
eggjakökur eða brauðkollur.
Gott er að blanda t. d. skinku
1 lítri hveiti
40 g smjörlíki
160 g sykur
2 dl mjólk
2—3 egg
3 tsk lyftiduft
2 tsk kardemommur
V2 tsk salt
Venjulegt hnoðað deig, ekki má hnoða deigið mikið, þvi þá
verður það seigt. Flatt út nokkuð þykkt, skornir út hringir,
sem soðnir eru i tólg eða plöntufeiti eins og kleinur. Velt upp
úr flórsykri, þegar búið er að steikja þá.
FÁLKINN 27