Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 23

Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 23
LKI anum verður þetta sennilega einnig gagnfræðaskóli. Það vantar hér nauð- synlega gagnfræðaskóla. Voruð þið í Hólui^ium í nótt? -— Já við komura þar í gærkvöldi og gistum í nótt. — Þeir eru miklir höfðingjar heim að sækja í Hólminum, segir prestur brosandi. Það lifir þar einhver gamall selskapsandi. Maður getur ekki farið þangað til að skreppa, maður verður að stoppa þar — og það sem verra er: maður verður að hafa með sér bíl- stjóra. — Ert þú með stórt bú hér? — Nei ekki er nú hægt að segja það. Ég er með rúmt hundrað fjar og leigi hálfa jörðina fyrir hirðingu á þeim. Sjálfur heyja ég fyrir þeim og sé um að öllu leyti. Það er mikið að gera um sauðburðinn og svo fer maður í göngur. — Hvernig kanntu við þig hér? — Alveg sérstaklega vel. Þetta er alveg stórkostleg opinberun fyrir mann og hér er alltaf eitthvað til að hugsa um. Ég var orðinn hálfleiður þarna í Reykjavík sVo ég fór í þetta og ég hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Ég þekki mig líka vel hér því hér var maður mikið sem strákur og svo er fólkið alveg prýðisgott. Það er held ég skemmtilegra að vera sveitaprestur heldur en prestur í þorpi. Hér er aðeins ein stétt manna, bændur og sjálfur er maður bóndi. Þetta hjálpar mikið því áhugamálin eru þau sömu og við getum rætt mikið saman. f þorpunum er þetta öðruvísi því þar er viss hópur sem heldur saman. —- Sýslumaðurinn, lækn- irinn, skólastjórinn, kaupmaðurinn. kaupfélagsstjórinn og svo auðvitað presturinn. Þetta myndar hálfgerðan aðal og ef eitthvað er um að vera er þessi hópur kallaður saman. Ég held að presturinn komist þar ekki í eins náin kynni við sóknarbörnin og í sveitunum. Og nú brosir prestur þegar hann held- ur áfram. — Ég skal segja ykkur eina sögu sem skeði hérna um daginn. Ég fann lamb sem einn ágætur bóndi hér átti og fór með það til hans. Ég hef ekki séð hann við messu hjá mér og ég segi við hann: „Þetta þarf að borgast.“ „Já, það er sjálfsagt,“ segir hann og seilist eftir buddunni. „Nei, ekki þannig,“ segi ég, „þú skalt koma til kirkju.“ „Já ég skal gera það,“ segir hann. Þannig er þetta hér. — Er góð kirkjusókn? — Já hér er góð kirkjusókn og aldrei verður messufall. Menn leggja það ekki á prestinn sinn að láta hann fara erind- isleysu. En hér er oft fátt fólk á vet- urna því unga kynslóðin fer öll í verið og hefur góðan pening. Á þrem mánuð- KRISTJÁN Á SNORRASTÖÐUM — las efnisyfirlitið tvisvar. um þéna þeir 60—80 þúsund. 40 þús- und þykir ekki neitt. Þegar hér er komið samtalinu kemur húsfreyjan og skólastjórinn Rósa Þor- bjarnardóttir, og spyr hvort við ætlum ekki að borða og þótt við segjum okkur á hraðri ferð er það hvergi nærri tekið til greina svo við þökkum fyrir boðið. — Eru draugar hér, Árni? — Ekki hef ég orðið var við þá. Ætli mesti móðurinn sé ekki farinn úr þeim. En það var víst mikið af þeim hér í eina tíð. — Þú varst á Stóra-Hrauni? — Ég var strákur á Stóra-Hrauni og svo var ég hér í vegavinnu. Það hefur mikið breytzt hér á ekki löngum tíma. Brúin á Haffjarðará var byggð 1911 SVEINBJÖRN Á SNORRASTÖÐUM — heldur viðreisn en brennivín. eða 1912 og þá náði vegurinn rétt þar vestur fyrir. 1930 er hann svo kominn í Miklaholtshreppinn, en nú er vegur kominn hér um allt. Þegar vegurinn verður kominn fyrir Ennið og Heydal- inn þá verður hann skemmtilegur hringakstur. Honum afa, nafna mínum, Árna Þórarinssyni, gekk ekki vel að komast hingað í fyrsta sinn. Hann fór með skipi vestur og áður en hann náði Stykkishólmi, varð hann að þvælast vestur á ísafjörð í leiðindaveðri. — Já, ég var strákur á Stóra-Hrauni og mér er minnisstæður maður sem lengi var í vinnumennsku hjá afa. Þetta var sérkennilegur maður en einhver sú bezta sál sem ég hef kynnzt. Hann Framh. á bls. 53. MAGNÚS í HRAUNHOLTI — draugamir sjálfsagt dauðir. JÓNAS ÁJORVA — tíu rök á móti einu. FALKINN 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.