Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 29

Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 29
 glamra í árum og bátur lagði að landi, rétt við fætur hans. —■ Þú varst lengi aö þessu, sagði hann, og röddin var hrjúf, en þó glaðleg. Hann steig niður í bátinn og kastaði kveðju á hina dökk- klæddu veru, sem sat á þóftunni og stakk við árum, til þess að bátinn ræki ekki frá bakkanum. — Hér sé Guð, gott kvöld. Honum var svarað með bjartri stúlku- rödd og hann sagði undrandi: — Hvers konar ferjumaður ert þú? Þegar honum var ekki svarað strax bætti hann við: — Er orðið svo fátt um karlmenn í þessu héraði, að þeir verða að láta kven- mann ferja? Stúlkan lét strauminn taka bátinn og réri skáhalt yfir ána. — Úr því að þú á annað borð kemst yfir .... sagði hún kuldalega; henni gazt ekki að gamni hans. Hann sat á afturþóftunni, mikill að vexti og teygði úr stígvélaklæddum fótunum. Þeir náðu næstum að stúlk- unni. Hann horfði forvitnislega á hana, en gat aðeins greint fölar útlínur and- lits hennar undir höfuðfatinu. Svo sagði hann með varfærnis hreim, sem virt- ist hæfa illa hrjúfri rödd hans: — Ég get mér til, að þú sért Ann Margit, dóttir Jens fiskimanns. Stúlkan þagði og réri ákaft með vinstri árinni til að fá bátinn til að taka stefnu móti ljósinu í fiskimanns- húsinu. Svo sagði hún móð: — Hver ert þú? — Ég heiti Andreas. Við dönsuðum víst nokkrum sinnum saman á sínum tíma, Ann Margit, ja, eiginlega oft og mörgum sinnum......... — Andreas .... þú er kominn heim. Rödd hennar titraði, en það var víst vegna stormsins. — Já, ég er kominn heim. Þú segir þetta, eins og enginn hefði búizt við að sjá mig framar. — Nei, það hefur víst enginn búizt við því .... að minnsta kosti enginn á búgarðinum. — Jæja, ekki það, sagði maðurinn kaldranalega. Nei, stundum bjóst ég heldur ekki við því sjálfur. — Það eru fimm ár síðan .... og enginn hefur frétt neitt af þér, sagði stúlkan. Þú hvarfst þarna fyrir sunnan, í Holsten. Tókstu þátt í stríðinu? — Já. ég var tekinn .... hvort sem ég vildi eða ekki. — Þau fréttu ekkert af þér. Þau héldu, að þú hefðir látið lífið. Þú skrif- aðir aldrei. .... — Ég hef aldrei verið gefinn fyrir skriftir, sagði maðurinn. Fyrst skrifaði ég ekki, af því að ég fékk ekkert tæki- færi til þess, seinna átti ég of erfitt með það. Svo hugsaði ég með mér, að það væri betra að bíða, þangað til ég færi sjálfur heim. En það leið langur tími, þar til það varð að því. — Já, þú hefur beðið lengi, Andreas. Hann leit hvasst á hana. í myrkrinu sáust engin svipbrigði á andliti hennar, en var ekki eitthvað í rödd hennar . . . . ? — Of lengi .... var það kannski það, sem þú ætlaðir að segja? Stúlkan losnaði við að svara, því að báturinn var nú kominn að landi. Hún stóð á fætur og stökk upp á bakkann og batt bátinn. Litla fiskimannshúsið lá nokkru ofar í brekkunni, það var ljós í glugganum. — Ég hugsaði oft, þegar ég heyrði til plógjárnsins þarna hinum megin, að þae gæti verið þú, sagði stúlkan, Straum- urinn hreif brúna með sér .... ja, það eru nær þrjú ár síðan. Það hef ur verið talað um að byggja nýja brú, en það hefur ekkert orðið úr því. Frh. á bls. 44. FÁLKINN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.