Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 48

Fálkinn - 12.12.1962, Blaðsíða 48
Heimkoman Framhald af bls. 25 Hann hafði ekki heyrt niðurlag orða hennar. — Þú hélzt þá að ég kæmi, sagði hann. — En þau heima? — Komdu inn með mér, sagði stúlk- an. Það hefur margt breytzt, Það er ekki allt, eins og þegar þú fórst. Þú verður að fá að vita það, áður en þú ferð heim. — Nei, sagði hann. Það er orðið fram- orðið, ég vil helzt komast heim, áður en þau taka á sig náðir. Ég er vanur að ganga hreint til verks. Það, sem ég verð að fá að vita, eins og þú orðar það, geta þau alveg eins sagt mér. — En ef það er nú eitthvað leiðinlegt, sem bíður þín . . . . ? Komdu aðeins inn fyrir, Andreas. — Ég er ekki vanur neinu dekri, sagði hann og horfði heim að húsinu. Ætl- arðu að segja mér, að Jens fiskimaður sé orðinn svo hirðulaus, að hann sendi þig út á bátnum í slíku veðri? — Hann dó í vor, sagði stúlkan hljóð- lega. Ósjálfrátt gekk hann feti framar og greip í handlegg hennar. — Guð minn góður, sagði hann. — Guð minn góður....... Þau stóðu svona dálitla stund, hann fann ekki fleiri huggunarorð, og hvað gögnuðu þau svo sem henni? — Ég lít bráðum inn til þín. Það er bezt, að ég fari heim núna. Góða nótt. Ann Margit. — Andreas.......Hún hrópaði á eftir honum. Þú verður fyrst að fá að vita. .... Það er ekki eins og þú heldur.. Hann gekk hratt í burtu og heyrði ekkert meira. Myrkrið var svart. Hann skeytti engu, þótt haglið biti andlit hans. Það var komið fjúk, og vindurinn þaut í hæðunum. Þegar hann gekk inn um hliðið með snjókornin dansandi í kringum sig, fannst honum að það væru ekki nema nokkrir dagar síðan hann gekk hér um. En fimm ár eru langur tími. Hundurinn gelti ekki eins og sá. sem hann mundi eftir, og þegar hann gekk í áttina til hans urraði hann, og þefaði af stígvél- um hans. Hann skeytti því engu, hann starði aðeins á eldhúsgluggann. Það logaði á tveimur ljósum í eld- húsinu, annað var á borðinu, hitt á vegg- hiilu. Hann sá í bakið á konu, sem hann kannaðist ekki við. Það var feitlagin, mjaðmabreið kona, og hann sá ljóst hár gægjast neðan undan klútnum. Það minnti hann á unnustu hans á nágranna búgarðinum, hún hafði haft svona Ijóst hár, en mitti hennar hafði verið grannt og stælt. Við borðið sat drengur, um fjög- urra ára, hann var niðursokkinn í að búa til mynd úr kökudeigi, sem var fjórfætt og átti sennilega að tákna hest. Hann var jafn ljóshærður og konan. Svo að bróðir hans var kvæntur.......... hverri? Og þetta var sonur hans. Maðurinn stóð kyrr, eins og hann væri á báðum áttum. Svo opnaði hann dyrnar hljóðlega og gekk yfir þrösk- uldinn. Drengurinn sá hann koma, og HONIG Súputeningar Spaghetti Makharónur kaldir Búóingar augu hans urðu kringlótt af undrun. Áður en hann náði að heilsa, snéri hún sér við. Þá þagði hann, og hún þagði líka og fölnaði eins og hún hefði séð vofu. — Mamma, hver er þetta, sagði dreng- urinn. Það komu viprur á munn hennar, þegar hún horfði á hörkulegt andlit mannsins. Augu hennar námu staðar við ör, sem teygði sig frá gagnauga hans og niður á kinn. Það var hvítt, þar sem hann kom inn úr kuldanum. Nú roðnaði það við hitann. Henni tókst að ná valdi yfir röddinni. — Andreas.......Þú ert lifandi. — Það lítur út fyrir það, sagði hann hásróma, og starði kipruðum augum á konuna, á bústið, dálítið þrútið andlit hennar, starði, eins og hann vildi með augnaráði sínu hverfa fimm ár aftur í tímann, til stúlkunnar, sem hann hafði þá skilið við. Svo kom geifla á munn hans, eitt- hvað, sem átti að líkjast brosi. — Já, ég er lifandi, sagði hann. Það kemur sér kannske illa? — Við .... við héldum, að þú hefðir dáið erlendis. Þú lézt ekkert frá þér heyra......Og svo........ Hún þagnaði, en maðurinn hélt á- fram: — Og þá fannst ykkur betra að eyða ekki tímanum til einskis. Þið voruð ekki lengi að sætta ykkur við að ég væri dáinn. Hvað gamall er þessi dreng- ur? Fjögurra ára? Hún hörfaði aftur á bak, eins og hún vildi skýla barninu, snéri sér við og greip hann í faðm sér, og kallaði um leið inn um stofudyrnar með brostinni röddu: — Jakob .... Jakob. — Hvað er um að vera? Höfum við feng ið gesti? Maðurinn sá aldrei bróður sinn birtast í dyrunum. Hann var orðinn dálítið lotinn, og hárið farið að grána. — Hver .... hóf hann máls, en sperrti svo upp augun. Ert það þú, Andreas? Þú kominn heim — við héld- um...... — Nei, sagði Andreas. Heim er ég ekki kominn, og nú fer ég. Nú átt þú tvær jarðir, sé ég. Þú átt þína eigin og líka næstu jörð, þá sem ég átti að fá, en ég var jú á meðal hinna dauðu. Unnustu mína fékkstu í kaupbæti, það er víst ekkert fleira, sem þú getur ginið yfir. Verði þér að góðu. Nú fer ég. — Andreas. En hurðin skall að stöfum. Eldri bróðirinn stóð andartak kyrr í sömu sporum, svo hljóp hann út eftir hinum, og greip í handlegg hans. — Þú verður að hlusta á mig, Andre- as, ég verð að útskýra fyrir þér....... Ég gat ekki sagt það þarna inni........ Maðurinn snéri sér snöggt við og greip í hinn. Hann hélt honum járn- greipum. — Meiri lýgi.......Fyrst Ijúgið þið mig dauðan og svo. .... Svei mér að þú Framh. á bls. 46. 44 FÁLKINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.