Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Síða 56

Fálkinn - 12.12.1962, Síða 56
J ólasvcinar Framh. af bls. 50. innanlands, heldur hefur hann líka farið til útlanda. — Ég byrjaði á þessu fyrir löngu síðan, ætli þetta séu ekki fimmtándu jólin, sem ég er í þessu. Tildrögin voru þau, að ég fór eitt sinn á jólatrés- skemmtun með krakkana mína og þegar jólasveinninn birtist, urðu þau hrædd, því karlinn lét svo illa. Þá datt mér í hug að gaman væri að reyna. Ég kom svo fyrst fram hjá Verði. Jú, ég hef verið í útvarpinu líka, en það er nú nokkuð öðruvísi heldur en að vera á skemmtunum. Það versta við þetta er, hve mikið maður hefur að gera. Það getur komið fyrir að maður sé á þrem og kannski fjórum skemmtunum yfir daginn og það er ákaflega þreytandi. Nú orðið kvíði ég ákaflega fyrir jólun- um og er þeirri stundu fegnastur þegar þeim er aflokið. — Þú hefur gert víðreist í þessu starfi þínu? — Já, ég hef ferðast mikið á vegum Flugfélagsins. Ég hef komið á alla þá staði hér innanlands, sem Flugfélagið flýgur til. Eitt sinn fór ég til Kaup- mannahafnar. Þar var heimsóttur spítali fyrir lömuð börn. Ég söng fyrir þau íslenzka og danska jólasöngva og þeim voru að lokum gefnar gjafir. Þegar heim kom var mikil móttöku- athöfn á flugvellinum og þar mættu um 3000 börn. Þau fengu öll poka með sælgæti og svo var happdrætti fyrir þau líka. — Hvernig er að fara út um landið? — Það er ágætt en nokkuð erfitt. Áður en við komum hafa skólarnir dreift miðum sem eru hvort tveggja í senn, aðgöngumiðar og happdrættis- miðar. Svo koma börnin, ég syng fyrir þau og spjalla við þau, gef þeim gjafir og dregið er í happdrættinu. Stundum hefur aðsókn orðið slík að halda hefur orðið tvær skemmtanir á sama stað. — Hvernig er þetta á skemmtunun- um? — Mörg þessi litlu grey eru hrædd og maður verður að fara rólega í þetta. Oft þykist maður vera búinn að gleyma söngvum sem þau kunna og biður þau að hjálpa sér við að muna og fá þau þannig til að vera þátttakendur. En maður má gæta sín að æsa þau ekki upp svo ekki fari allt í bál og brand. Strákar, sem eru orðnir dálitlir menn vilja fletta ofan af þessu mikla leyndar- máli og neyta til þess allra bragða. Ég hef séð jólasveina fara út bæði húfu og skegglausa. Svo verður að gæta þess að vera ekki of lengi, því þá verða börnin þreytt og missa áhugann. Tíu mínútur er ágætur tími. — Þú ert Kertasníkir? — Já, en áður fyrr var maður Gilja- gaur og svoleiðis, en það vakti hræðslu hjá börnunum, svo að ég gerðist Kerta- sníkir. Oft byrja ég á því að spyrja hvort þau eigi ekki kerti að gefa mér og sum koma með þetta í bréfum að heiman frá sér. Þess vegna er maður oft hlaðinn kertum þegar út er farið og níðþungur, því allir vasar eru fullir. Ég segi þeim, að ég eigi kerti fyrir hvert barn á landinu og kertin geymi ég í töfrahöllinni minni. Á þessu kerti sé ég hvernig þau haga sér, sé það á ljósinu. Ef Siggi fer að hanga aftan í bíl kemur það fram á ljósinu hans. Ég áminni þau um að vera stillt og prúð og að taka lýsi. Það hefur komið fyrir, að manni hafi verið þakkað fyrir þetta því börnin segja, að jólasveinninn hafi sagt að þau eigi að taka lýsi og hafa rukkað um það. En maður er nú farinn að þreytast dálítið á þessu og vill eigin- lega fá hvíld. ★ Svo kveðjum við Ólaf og höldum út. Það er farið að dimma og bráðum koma jólin. Þá fara jólasveinarnir á stjá og þeir krakkar sem eru þægir og góðir fá frá þeim gjafir. En okkur, þessum fullorðnu, gefur hann ekki neitt því við þekkjum leyndarmálið á bak við jólasveininn. Or. Jratnletíuttt: í allá að liáiiin oj* einiiig með vaxi öðrnm eða báðum megin: /------------------------------\ Fáið upplýsingar hjá oss, ef þér þurfið á ofangreindri prentun að halda, eða annarri. <_____________________________/ /-------------------------------------- Hér er aðeins talið hið helzta, sem hægt er að framleiða. ---------------------------------------/ ★ Súkkulaðiumbúðir og aðrar sælgætisumbúðir. ★ Karamellupappír í rúllum og örkum. ★ Umbúðapappír í rúllum og örkum, fyrir kjöt, fisk, brauð o. fl. ★ Smjör- og smjörlíkisumbúðir úr staniol-, folíu- og pergamentpappír. ★ Flösku- og glasmiðar. ★ ANILINPRENT H.F. Sími 1-1640 — Pósthólf 1396 — Reykjavík. Límrúllur áprentaðar í öllum breiddum. ★ Sellophan-umbúðir í rúllum og örkum. FÁLKINN 52

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.