Fálkinn


Fálkinn - 12.12.1962, Side 58

Fálkinn - 12.12.1962, Side 58
II já vondu fólki Framh. af bls. 53. honum þótti. Hann hafði óskaplega gaman af að spila. En sumum líkaði ekki við Árna, það voru sögurnar. Ann- ar sagði þetta og hinn sagði hitt. Báðir sögðu satt. — Var hann góður ræðumaður? — Hann gat verið það. Ef hann hafði skemmtilega menn í kringum sig þá gekk hann um gólf og sagði sögur og hló. Síðan settist hann niður og samdi ræðurnar og það voru oft afbragðs ræð- ur. Er ekki borgin alltaf að stækka? — Jú hún stækkar ört. — Það má nú fyrri vera. Ég man að fyrir mörgum árum var ég fyrir sunn- an og gekk þá frá Árbæ í bæinn, það var varla umferð fyrr en niður undir Tungu. Nú er þetta allt breytt. komin samfelld byggð þarna inneftir. Mér þykir alltaf gaman þegar ég fer í bæ- inn að tala við rakarana. Það eru and- skoti miklir spjallmenn og vita allt sem gerist. Þið hefðuð átt að verða rakarar. — Hvernig lízt þér á ungdóminn? — Þetta er bráðmyndarlegt fólk og duglegt. Nú eru allir miklu stærri en hér áður fyrr. Þá var ég með stærstu mönn- um, en nú eru margir stærri en ég. Það er ekki nauðsynlegt að vera stór, ég man eftir mörgum glímumönnum sem voru ekki háir í loftinu en voru skæðir samt. Þegar við erum að fara segir Jónas, að það sé bezt að vera okkur samferða. — Maður verður að fylgja ykkur til dyra. Þið eruð sjálfsagt á bíl en ekki á hestum, þó það hefði verið miklu skemmtilegra. En nú vilja allir fara í bílum enda ekki nema eðlilegt því það er miklu fljótlegra. Allt fyrir hraðann, segja menn. Það sagði mér einhver mæt- ur maður um daginn að hraðinn væri orðinn alltof mikill. Ætli það verði ekki hraðinn, sem drepur alla að lokum. Svo ókum við frá Jörva. ★ í Hraunholti. Við höfðum hug á að spyrja Magnús í Hraunholti um skrímsli sem átti að hafa verið í Hlíðarvatni. — Var ekki einhver eltur af skrímsl- inu, Magnús? — Það var maður eitt sinn á ferð hér í Hlíðinni í svarta myrkri. Þá heyrir hann allt í einu öskur mikil eða væl og hesturinn tryllist. Hann kom titrandi og frávita af hræðslu til bæjar eftir þessi ósköp. Menn vildu út að athuga þetta, en hann vildi hvergi fara. Daginn eftir var þetta athugað og þá fundust vegs- ummerki eftir hestinn þar sem hann hafði fælzt en annað ekki. Hvað þetta hefur verið, veit ég ekki, sennilega kind eða eitthvað þess háttar. — Þú hefur aldrei orðið var við skrímslið? — Nei. En einu sinni var ég á ferð með sr. Árna Þórarinssyni hér með- fram vatninu. Þetta var um vetur og vatnið lagt og það heyrðust brestir í svellinu svo sem oft vill verða. Þá sagði ég: „Það lætur fallega í þér núna.“ Árni hélt að ég hefði átt við skrímslið. — Hefur þú aldrei orðið var við drauga hér? — Nei, ekki hef ég það. Þeir eru sjálf- sagt dauðir flestir. — Var séra Árni trúgjarn? — Hann hefur sjálfsagt verið það. Annars hafði hann mjög gaman af sög- um. ★ Að Snorrastöðum. Þegar við komum að Snorrastöðum var orðið náttsett og við vorum hræddir um að við mundum halda vöku fyrir fólk- inu. — Það er enginn selskapsmaður sem ekki getur vakað eina nótt og alltaf er gaman að fá gesti. En þið hafið senni- lega ætlað að hitta Kristján bróður, sagði Sveinbjörn bóndi Jónsson. — Ekkert frekar. Er hann ekki heima? — Það er þannig, piltar, að alltaf er verið að setja lög hér í landi og þegar ný lög eru sett er venjulega verið að spilla lögum. Það var t. d. sett í nýju kosningalögin, að ef sýslunefndarmað- ur félli frá yrði að kjósa annan í stað- inn en varamaður ekki taka við. Og nú hefur það skeð hjá okkur að aðalmaður hefur fallið frá og þá þarf að kjósa aft- ER BÖKBANDIÐ BEZT HVERFISGÖTU 78 - SÍMI 11906 FÁLKINN 54

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.