Fálkinn - 23.08.1965, Síða 13
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. apríl:
Þú ættir að leggja sérstaka rækt við atvinnu
l>ína, og ekki skaðar það að þú sért lipur við
samstarfsmenn þína. Seinni hluta vikunnar
gæti heilsan verið eitthvað léleg og ættir þú
að leita til læknis ef með þarf.
Nautið, 21. apríl—21. maí:
Þú virðist einna mest hafa hugann við að
skemmta þér þessa viku, en allt er bezt í hófi.
Óvænt breyting á kunningjahóp þínum kemur
á einhvern hátt óþægilega við þig og veldur
þér vonbrigoum.
Tvíburarnir, 22. maí—21. júní:
Málefni varðandi heimilið verða mest. áber-
andi þessa viku. Þó þú viljir gera fjölskyldu
þinni allt til þægðar, gæti komið til smá
árekstra seinni hluta vikunnar vegna atvinnu
þinnar. Þú ættir að skipuleggja störf þín betur.
Krabbinn, 22. júní—23. júlí:
Ef þú hefur vanrækt að halda góðu sambandi
við ætt.ingja þína eða nágranna, þá láttu það
verða þitt fyrsta verk í þessari viku að hringja
í þá eða skrifa þeim. Seinni hluta vikunnar
muntu heyra eitthvað fréttnæmt.
Ljónið, 2U. iúlí—23. ápúst:
Fjármálin verða til að valda þér mestum
heilabrotum þessa viku og átt þú á hættu að
hlaupa nokkuð illa á þig ef þú athugar ekki
vel hvað þú mátt ganga langt í þessum efnum.
Reyndu að ráða fram úr vandanum fyrir helg-
ina.
Meyjan, 2U. ágúst—23. sept.:
Leggðu þig fram við að bæta sambúð þína
við aðra, því ef þú gerir það ekki er hætta á
sprengingu. Það er hagstætt að hefja ný verk-
efni á nýju tungli og gera tilraun t.il að koma
reglu á einkamál þín.
Vopin, 2U. sept.—23. okt.:
Reyndu að hugleiða í rólegheitum, á hvern
hátt þú getur bezt notfært þér þá reynslu, sem
undanfarnir mánuðir hafa fengið þér. Þessi
vika mun á ýmsan hátt verða upphaf að ein-
hverju óvenjulegu.
Drekinn, 2U. okt.—-22. nóv.:
Þú ættir að grípa tækifærið, þessa viku, og
koma á framfæri þeim hugmyndum þínum, sem
líklegar væru t.il að færa þér hagnað. Þú skalt
ekki gefast upp þó það gangi treglega í fyrstu.
Bittu ekki miklar vonir við skemmtifélaga þína.
Boqmaðurinn, 2H. nóv.—21. des.:
Þér mun bjóðast tækifæri t.il að sýna yfir-
mönnum þínum hvað í þér býr, en gættu þess
að ganga ekki of langt því hætt er við að þú
yrðir þá ekki sem vinsælastur meðal samstarfs-
manna þinna.
Steinpeitin, 22. des.—20. janúar:
Vertu varkár í umgengni þinni við nágranna
þína og ættingia og gefðu þeim ekki tilefni til
að setia út á þig á einn eða annan hátt. Hafir
þú ráðgert langferð muntu að öllum líkindum
verða að hætta við það.
Vatnsherinn. 21. janún.r—19. febrúar:
Gefðu þér t.íma til að íhuga hvernig hag-
kvæmast er að skipuleggia sameiginleg fjár-
mál. Nokkur tregða virðist vera í þessum mál-
um eins og er og þegar þú reyrlir að levsa
vandann er um að gera að fara rólega að öllu.
Fiskarnir, 20. febrnar—20. marz:
Samband þitt við annað fólk verður nokkuð
erfitt hessa viku og mun það sýna þér nokkra
hvermóðsku í samskiptum. Leggðu sérstaka
rækt við að bæta samkomulagið því það er
wíkið undir því komið hvernig þér tekst. það.
Tetf"4*
- ***** «
*'.• ....••• ............i...... ........................................■.................
ELDHÚSRÚLLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI
FÁLKINN
13