Fálkinn - 23.08.1965, Blaðsíða 37
þá er ekki unnt að birta
mynd af hljómsveitinni, þar
sem piltarnir voru ekki farn-
ir að æfa saman, þegar þessi
grein er skrifuð. En allt
um það, þá er enginn vafi
á því, að hinir fjölmörgu
aðdáendur Ragnars Bjarna-
sonar munu fjölmenna í
Súlnasalinn eftir 1. septem-
ber.
CLARK
er nú kominn í hóp kvik-
myndaleikara og að sjólf-
sögðu kom hljómsveit
hans fram í fyrstu mynd-
inni. Þessi skemmtilega
mynd sýnir Dave í ó-
nefndri sundlaug, íklædd-
an froskmannabúningi. —
Já, vel á minnzt, hann
heldur á einni af þeim
gullplötum, sem þeir
félagar hafa fengið, en
ekki þori ég að fullyrða,
hvað platan er mörg
karöt.
sérstaklega ánægður að
að vinna fyrir Konráð Guð-
mundsson, hótelstjóra í Sögu
og hvað fólkinu viðkemur,
sem sækir þennan stað, sagði
Ragnar, að betri og þægi-
legri gesti væri tæplega hægt
að hugsa sér.
egna þes, hve Fálkinn er
inn langt fram í tímann,
GEIME KRUPA
Þetta er Gene Krupa, trommuleikarinn frægi. Myndin er
tekin um 1953. Fyrir nokkru var sýnd í Stjörnubíói kvik-
mynd, sem byggð var á ævi Gene Krupa og fór Sal Mineo
með hið vandasama hlutverk og gerði því góð skil. Nú er
Krupa að mestu hættur að snerta trommurnar, en hann
á ennþá sína aðdáendur, sem hlusta hugfangnir á gömlu
trommusólóarnar hans á nýjum L.P. plötum.
* þid 01; vie
IT’S A LOIXIG WAY
Kæri Fálki,
Ég var í Þórsmörk um
Verzlunarmannahelgina við
söng og glens og gaman.
Ekki ætla ég að segja þér frá
ævintýrum þaðan, heldur var
það eitt mikið sungið lag, sem
vakti upp mikið þras og leið-
indi: „It’s a long way, to
Tipperary, it’s a long way,
to go“. Menn fóru að deila
um, hvar Tipperary væri. Ég
uppástóð, að það væri á Eng-
landi, en það komu fram einar
3 eða 4 uppástungur í viðbót.
Hafði ég rétt fyrir mér?
Með fyrirfram þökk fyrir
svarið.
Þórsmerkurfari.
Svar: Tipperary er lítill bær
með um það bil 5000 íbúum
og er í Irska lýðveldinu. Lag-
ið sem þú talaðir um er samið
árið 1911, og var vinsæll her-
mannasöngur í fyrri heim-
styrjöldinni.
HÁRÞVOTTUR
Gamalt húsráð kennir, að
það sé hollt fyrir hárið að þvo
sér upp úr keytu. Þetta heíur
áreiðanlega ekki verið reynt
lengi hérlendis, en það væri
gaman að fá að vita, hvort
nokkuð mæli á móti þvi að
það sé gert.
Bína.
Svar: Já þetta húsráð er orð-
ið gamalt og úr sér gengið
Ef þú ætlar til að mynda á
ball, ættir þú ekki að þvo
þér úr keytu áður. Það er
margvíslegur sóðaskapur, sem
þessu fylgir, en ef þér dytti
samt í hug að reyna þetta,
þá lætur þú okkur kannski
vita um árangurinn, þvx að
eflaust hafa fleiri áhuga á
málinu.
HVAR ER
GRÆIMLAMD?
Kæri Fálki,
Við erum hérna tvær stelp-
ur, sem erum að rífast um,
hvort Grænland sé í Evrópu
eða Ameríku. Við vonum að
þú leysir úr þessari deilu okk-
ar. Vertu svo blessaður og
sæll. Fálki minn.
Ein 12 ára og eih 11 ára.
P. S.. Hvernig er skriftin?
Svar: Grænland telst tií Ame-
ríku, stelpur mínar, svo sú
11 ára hefur haft rétt fyrir
sér, eða hvað? Skriftin er
allsæmileg.
FJÖLSKYLDUTEIMGSL
Kæri Fálki,
Míg langar til að spvrja
þig að dálitlu. Það er strákur
hérna i sveitinni, sem segir að
John Lennon og Jack Lemon
séu nokkurs konar bræður og
að Jack Rugby sé stjúpi
þeirra. Er þetta satt eða er
strákurinn að skrökva?
Stubbur.
Svar: Þið hljótið að ræða
margt þarna í sveitinni. Þeir
kumpánar eru ekki bræður
svo vitað sé og ennþá síður
hitt, að Rugby sé stjúpi þeirra.
En það er ekki nema von að
þú trúir þessu, því fornafn
þeirra allra byrja á sama
staf. Ef þú kemst aftur í
svona mikil vandræði, þá
viljum við gjarnan hjálpa þér,
því að þú ert greinilega mikið
mannsefni.
HÁLF HOLA
Kæri Fálki,
Þú þekkir eflaust gátuna
„Hvernig er hægt að grafa
hálfa holu?“ o. s. frc. Ég var
spurður að þessu í gær, og ég
sagði strax að það væri helm-
ingurinn af heilli holu, þá
var hlegið mikið af þeim sem
heyrðu. Ég vildi hins vegar
alls ekki viðurkenna, að þetta
væri sannað. Hvað segir þú
um þetta?
Svar: Þetta er orðaleikur,
sem má deila endalaust um.
Vissulega má tala um hálfa
holu með fullum rétti, ef um
er að ræða helming þeirrar
holu, sem átti að grafa. Hins
vegar er þessi hálfa alltaf ein
hola ... Svo niðurstaðan verð-
ur: Öleysanlegt.
★
Jóhann Hafsteín, rámsmála-
/áðherr.-g flytur r;vðu siha~l
aðalfundi Vinnuveitendasam-
bandsins. Á myndinni eru auk
ráðhcrrans, taliö frá vinstri:
Óli M. ísaksson, Kjartan
Thors, formaður V.f., Guð-
mundur Vilhjálmsson og Gut
jón Einarsson.
Morgunblaðið.
Send.: Helgi Guðbergsson
eips og fisk. Skrokkana sveiö
hann svo, og þau átu eins og hau
torguóu, hjónin. Hún hét María
Bjömsdóttir og var vestfirzk,
þau áttu barn þarna um vetur-
inn. Hitt vur saltað. Hann g.i
Austurland.
Send.: Antonía Sveinsdóttir.
37
FALK.INN