Fálkinn - 23.08.1965, Blaðsíða 25
BORÐ\Ðj£
METI OGlft^
• Greftruit eða...
Framh. af bls. 6.
mjög verið stillt í hóf. Og nú eru hér í Reykjavík fullkomin
tæki til líkbrennslu, svo að hverjum manni er í sjálfsvald
sett hvort hann kýs fremur að láta eyða líki sínu í heitu
lofti eða greftra það í jörðu. Bálfarafélaginu tókst með fjár-
söfnun meðal einstaklinga og félaga og framlögum frá Al-
þingi og Reykjavíkurbæ að stuðla að byggingu fyrstu bálstofu
á fslandi. Það keypti og sá um uppsetningu tveggja líkbrennslu-
ofna með tilheyrandi tækjum, og fer líkbrennsla í þeim fram
ókeypis enn þann dag í dag. Ennfremur lét það útbúa hinn
einfalda og smekklega duftreit í Fossvogskirkjugarðinum og
reisa þar afsteypu af Kristsmynd Thorvaldsens, KOMIÐ TIL
MÍN. Þegar félagið var lagt niður, afhenti það Kirkjugörðum
Reykjavíkur eftirstöðvar þess fjár sem safnazt hafði, „til að
fegra og skipuleggja duftgarða Reykjavíkur," en með því að
gera líkbrennslu mögulega hér á landi hafði það raunverulega
þjónað tilgangi sínum og þurfti því ekki að starfa lengur nema
þá helzt sem upplýsingaþjónusta og áróðursmiðstöð varðandi
bálfarir.
EN lengi má um flest efni deila, og það sem bæði getur
verið trúaratriði og persónulegt tilfinningamál hvers ein-
staklings verður aldrei ákveðið fyrir alla með reglugerð eða
lagasetningu. Frjálst val er bezt í þessu sem öðru, og hér-
lendis eru nú öll skilyrði fyrir hendi til að framfylgja óskum
manna hvort sem þeir kjósa að láta greftra sig eða brenna
eftir dauðann... eða jafnvel setja sig í spíritus, læknanemum
og lífeðlisfræðingum til hægðarauka við nám og rannsókn-
ir. ★ ★
FÁLKINN 25