Fálkinn


Fálkinn - 23.08.1965, Page 14

Fálkinn - 23.08.1965, Page 14
ÞESSI UIXIGA KONA heitir María Kristanns er 11 ára gömul, og dvelur núna handan við hafið, í Ameríkunni. Þessi mynd er tekin á Heimssýningunni í New York, en auðvit- að fer enginn þangað án þess að skoða þessa feykistóru sýningu. Clairol fyrirtækið sýnir á þessari sýningu 24 standard-hárliti, og þær kon- ur, sem hafa áhuga á slíku, geta farið inn í herbergi með þar til gerðum spegl- um, þar sem hár þeirra sýnist litað hverjum lit, og síðan valið úr, ef áhugi og vilji er fyrir hendi. i STÆRSTA IVIIIMIXIISIVIERKI sem nokkurn tima hefur verið gert mun verða af indíánahöfðingjanum Crazy Hores. Það var byrjað að reisa það árið 1948, og höggvið út í bjarginu við Mount Rushomore í Suður Dakóta í Bandaríkjunum. Það verður að höggva sex milljón tonn af steini í burtu, áður en minnis- merkið verður fullgert. Það verður 561 fet á hæð, og 641 fet á lengd. Myndhöggvarinn, Korczak Ziolkowski, lítur á það sem ævistarf sitt að fullgera þessa risastóru styttu, en hann vinnur aleinn að henni. Hann reiknar með að verkið taki 35 ár. Nú er hann fimmtugur að aldri. ★ í heiivisókiv hja IUAURICE CHEVALIER Sá víðþekkti franski kvikmyndaleikari býr í glæsilegu ein- býlishúsi skammt fyrir utan París. Hann hefur einu sinni hleypt blaðamönnum inn á landareign sína, og við það tæki- færi voru þessar myndir teknar. Hann á mikið af forngripum og hstaverkum, sem setja skemmtilegan svip á íbúðina. Þegar hann gaf blaðamönnum þetta leyfi þyrptust að sjónvarps- menn hvaðanæva úr Evrópu, en gamli maðurinn sýndi þeim allt svæðið, og var sjálfur leiðsögumaður. Hinn 78 ára gamli kvennamaður er nýstaðinn upp úr mikl- um veikindum, og sögðu læknar hans, að það hafi ekkert bjargað honum nema hin takmarkalausa lífsorka hans. Eftir öll veikindin brá hann sér í skemmtiferð til Bandaríkjanna, Japan og um alla Evrópu. Þrátt fyrir aldurinn er hann í fullu fjöri sem kvikmynda- leikari og kvennamaður og geri aðrir betur. 14 FÁLKiNN M 'ZT Vhmmum* | « Hb B n n 1 ^ f£t ).ö Híii ij

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.