Fálkinn - 23.08.1965, Side 15
TÍZKURIUAR MÆTAST . . .
og báðar eru þær gerðar til augnayndis, og báðar eiga þær að túlka nútíðina.
Tízkuframleiðendur keppast við að koma með nýjar hugmyndir, hvort heldur sem myndlist
eða fatatízka á í hlut, allt er tízkunni háð.
Hvenær skyldi annars koma af stað sú tízka að fólk láti ekki einhverja tízkufrömuði segja
sér hverju' það eigi að klæðast, eða hvað því eigi að þykja fallegt?
HÁSTÖKK
eða hvað? Satt að segja vitum við ekki
hvað stelling Ursulu Andress og Peters
Sellers á að þýða, það eina sem okkur
er kunnugt um, er að myndin er tekin
við upptöku kvikmyndarinnar „Whats
new, Pussycat". Eins og sjá má er
Sellers í eins konar bítilsgerfi, en
Ursula er íklædd kyrkislöngubúningi, og
fnáske myndin eigi að tákna nokkurs
konar undirbúning að kyrkingarathöfn.!
liM 1930 . ..
vai Jean Harlow. ein vinsælasta kynbomban í kvik-
myndunum. Árið 1937 lézt hún aðeins 27 ára
gömul. Nú hefur verið ákveðið að gera mynd um
hina stuttu en viðburðaríku ævi þessarar leikkonu
og sú sem fer með aðalhlutverkið er kvikmynda-
hússgestum allkunn og heitir Carroll Baker. Mynd-
in sýnir fr. Baker, sitjandi fyrir framan ljósmynd
af Harlow sálugu.
Flest tekur unga fólkið sér til fyrirmynd-
ar nú til dags. Stúlkan á myndinni hefur
gert sér lítið fyrir og apað eftir greiðsl-
unni á hundinum, eða tíkinni (okkur er
ekki kunnugt um hvort er, en samkvæmt
svipnum að dæma, gæti þetta verið karl-
hundur, kúgaður af eigintíkinni), eða hef-
ur hundurinn, eða tíkin máske hermt eftir
stúlkunni. Það skyldi þó ekki vera.
C. C. I ERFIÐliM
SKÓLA
Það þarf engum að segja, að
vegir listanna eru torgengir, og
margt óvænt getur komið fyrir,
áður en markinu er náð. Hún var
mjög ánægð með samning sem
hún skrifaði undir hjá amerísku
kvikmyndaveri, og hún var ánægð
með mótleikarann, Rock Hudson.
En hún vissi það ekki, fyrr en
upptakan átti að fara að byrja, að
þar sem leikstjórinn var ekki
ánægður með neitt nema raunveru-
leikann, þá urðu krókódílar þeir,
slöngur og skordýr, sem fram
koma í myndinni að vera raun-
véruleg, og sólríki Flórídaskagi
var gerður að köldu og ömurlegu
umhverfi. En hún tók þessu öllu
með jafnaðargeði, og brosandi óð
hún vatn og drullu í mittishæð.
Ef einhver hefur áhuga, þá er
líklega rétt að taka það fram, að
myndin heitir „Með bundið fyrir
augun.