Fálkinn


Fálkinn - 23.08.1965, Page 27

Fálkinn - 23.08.1965, Page 27
' Klukkan hálfátta um kvöldið fer hún heim frá kvikmyndaverinu til hins smekklega húss, sem foreldrar hennar eiga í Lundúnum. Húsið liggur nokkuð langt frá alfaraleið, þannig að hávaðinn frá Lundúnaumferðinni, sem þykir ekki fýsilegur, heyrist eins og í fjarska. Stór arinn hitar eina dagstofuna, þar sem fjölskyldan situr oft á kvöldin. Þau borða venjulega klukkan hálfníu, en Hayley fer að hátta klukkan tíu, — að minnsta kosti ef hún á að vinna dag- inn eftir. — Það er nefnilega svo vont að vinna syfjuð, útskýrði hún fyrir forvitnum blaðasnáp, og sá spurði ekki mikið meira. Herbergi hennar er annars eins og táningaherbergi gerast. Þar er gler og postulínsglingur, plötuspilari og transis- torútvarpstæki, sem hún stillir gjarnan á Luxemborg. Hún er mjög gefin fyrir dægurlög. — Ég safna plötum, segir hún, — ég veit ekki einu sinni hversu margar ég á, en þær skipta hundruðum. Hayley hefur sjálf sungið inn á plötu. Þegar hún var eitt sinn í New York söng hún inn á tólf laga plötu þar sem lagið Lets get toge- ther var efst á blaði, en það lag hlaut heimsfrægð og met- sölu. Henni finnst þó sjálfri, að hún hafi alls ekki góða rödd. Hennar mestu uppáhaldssöngv- arar eru Johnny Mathis, Frank Sinatra, Harry Belafonte, Peggy Lee, Helen Saph- Framh. á bls. 35.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.