Fálkinn


Fálkinn - 23.08.1965, Page 32

Fálkinn - 23.08.1965, Page 32
Á flótta undan blöðum. Það verður undarleg breyt- ing hjá þessum börnum, sem eru alin upp við það að hafa nóg af öllu, að þurfa að byrja að lifa upp á nýtt. Árið 1964 byrjaði umtalið um Mikael. Hann flaug úr hreiðr- inu í Sviss og fór að selja græn- meti í verzlun í Hampstead fyrir 10 punda laun á viku. — Ég held að ég hafi ekki verið fjarri því að setja heims- piet í þessu starfi mínu. Ég fann upp söluaðferð, sem átti ekki að bregðast. Ég stillti mér upp fyrir framan búðarglugg- ann, og þegar gömlu konurn- ar gengu á gangstéttinni strengdi ég alla vöðva í and- litinu og brosti blítt. Þetta bros mitt hefði getað orðið góð aug- lýsing fyrir tannkremsverk- smiðju. — Þær gömlu áttu það kannski til að reyna að milda í móinn, en það var forsenda, að lokum komu þær með mér inn í verzlunina. Og þar inni brosti ég og byrjaði á verzlun- arstörfunum. Og án þess að hugsa um, „já“ þeirra eða „nei“ fyllti ég töskur þeirra af kart- öflum, gulrótum og salötum og klingdi svo út með 2—3 agúrk- um. Svo brosti ég ennþá blíð- ara, og bauðst til að spila fyrir þær sinfóníur á lítinn kassa ... Gott og vel, þetta gekk í tæpa viku, en þá fóru kvartanirnar frá gömlu konunum að streyma til atvinnurekanda míns, og ég veit ekki hvort hann tók það nærri sér, en hann sem sagt rak mig. Síðan nam Mikael við kon- unglegu akademiuna í Lund- únaborg. En hann verður bit- ur þegar hann minnist á það. — Þarna finnur maður per- sónu sína og hugmyndir. En í staðinn fyrir að þroska persónu- leikann og hæfileikana, koðnar maður niður og verður að engu. Þarna mátti maður ekki mót- mæla. En þarna var matstofa og þar gat maður fengið sér sérstaklega góða máltíð fyrir 2Vi shilling! Nú fer að nálgast sá tími, þegar hádegisverður er fram- reiddur. Patrika Chaplin hefur lagt son þeirra á dívaninn og er farin út til innkaupa. Svo kemur hún aftur, og er þá með fiskiflök, kartöflur, salt og edik. — Og nú, heldur Mikael áfram, — skuluð þér fá að heyra rómantísku söguna ... Tveimur dögum eftir að ég fór frá akademíunni, ákváðum við Patrika og ég að fara til Spán- ar. Þar ætluðum við að gifta okkur. Við vorum sammála um það. En það er engan veginn auðvelt að láta gifta sig á Spáni. Þeir vilja pappíra. Og ég var ekki einu sinni nógu gamall. Þá var það, að Frakki einn ráðlagði okkur að fara til skuli hafa 10 pund á viku í atvinnuleysisstyrk. Jafnvel i þinginu leggur einn íhaldsþing- maðurinn fram fyrirspurn, og svarið lætur ekki á sér standa: Mr. Chaplin hefur fullan rétt til þess að njóta atvinnuleysis- Skotlands. Þriggja vikna uppi- hald var ekki dýrt, og þar var allt í lagi. Við fórum til Skotlands og dvöldum þar í hálfa þriðju viku. Við fórum nær huldu höfði, því ég vildi ekki láta blanda föður mínum í þetta. Blaðamennirnir voru komnir á hælana á okkur. En við létum þá ekki raska ró okkar. Við reyndum að leita að vígðum manni. Hann fundum við tveim- ur dögum fyrir hinn ákveðna dag. Við gengum í hjónaband 6. febrúar 1964 í Moniave, í grafhýsi Dumfris. Kona nokk- ur, Sarah Black, sem við hitt- um á götunni var vígsluvottur. Sonur Chaplins fær styrk. Mikael er nú nokkuð þekkt- ur, en samt alls ekki frægur ennþá. Þessi sonur gamallar stjörnu skemmtir fólkinu. Mönnum finnst, sem hann sé endurskin föður síns. Ríkisstjórn Breta er í vand- ræðum, og það miklum vand- ræðum. Því það vekur mikla furðu, að þau Mikael og Patrika styrks, þar sem hann hefur ekki fengið neina vinnu í þrjár vikur. Ungi Chaplin er svo sem ekki eini maðurinn sem nýtur slíks styrks. 54000 annarra atvinnu- leysingja tóku á móti styrkn- um um leið og hann. En það er skiljanlegt, að fólk, sem stritar allan liðlangan daginn, og á svo rétt í sig og á skuli gremjast þetta. Því á sama tíma og sonurinn þiggur styrkinn er faðirinn á lúxus- ferðalagi á írlandi og hefur leigt hótelherbergi í Lundún- um, sem kostar 42 pund á sólar- hring. Þetta er rakið hneyksli, segir hinn almenni borgari. Og móðir hans er heldur ekki hrifin af þessum háttum hans: — Þessi ungi maður er vanda- mál. í 3 ár hefur hann verið ráðríkur, og hann neitaði al- gerlega að ganga í skóla. Mér leiðist að hann skuli hafa tekið á móti opinberum styrk. Hann ætti heldur að fá sér vinnu. En ég get ekki fyrirgefið hon- um þetta. Með öðrum orðum, móðirin afneitar syninum. Faðir Oonu, O’Neill afneitaði sjálfur dóttur sinni, þegar hún giftist Chaplin. Óneitanlega minnir Mikael oft á gamla O’Neill. Hann var sjálfur sonur frægs gamanleik- ara, en yfirgaf fjölskyldu sína á unga aldri, og lifði þá flakk- aralífi. Og það var víst ekki alveg laust við að vera hneyksli. Meðal annars var hann eitt sinn fastur gestur á skítugri knæpu í New York, en þar var það innifalið í hverjum bjór, að viðskiptavinurinn mátti leggja sig í hálftíma fram á borðið. Og þar hvíldi oft þetta höfuð, sem seinna tók við tveimur Pulitzer verðlaunum og einum N obels verðlaunum. Nú er klukkan orðin 9 og sonurinn sefur. Chaplin yngri gengur fram og aftur um gólf- ið, undir nakinni ljósaperunni. Nú er kominn leikhústími, — leikhúsið, sem hefur verið mesti stuðningur Chaplin fjöl- skyldunnar jafnt og O’Neill. Mikael Chaplin hefur undir- ritað samning um að syngja inn á grammófónplötu. Talið er að platan muni seljast mjög vel, í einni milljón eintaka minnst. Hann fær 30—40 pund á dag fyrir að koma fram í einhverri kvikmynd með Leslie Caron. Og nú er þessi 19 ára gamli bítnik að byrja að skrifa endurminningar sínar: Hvernig það er að vera sonur föður síns, um tímabil sitt sem græn- metissali, leikhúslíf og atvinnu- leysi. Bókin kemur ef til vill bráðlega á markaðinn, og mun hún heita í lauslegri þýðingu: Ég vil ekki éta bitana, sem falla af borði föður míns. Plátan er þegar komin á markaðinn, en hún ber nafnið: — Ég er sá sem ég er. Og það er hann. Frakkur strákur, sem vill verða frægur eins og faðir hans, án þess að njóta hans hjálpar á nokkurn hátt, og án þess að skulda hon- um nokkuð. Og þegar það verð- ur, að fjölskylduvandamálin skilja þá feðga ekki lengur að, þá getur sonurinn ef til vill játað syndir sínar! En þangað til verður hann að vinna marga sigra. Gangi þér vel, Mikael! fAlkiniv FLÝ <■ UR IJT fálkinn

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.