Fálkinn - 21.02.1966, Side 33
☆
O.JHHHI 8 KAABER HF.
HVAD GERIST ÞESSA VIKU
Hrúturinn, 21. marz—20. avríl:
Aðaláherzla skal lögS á að taka lífinu sem
mest með ró þessa viku, og einnipr er tæki-
færi til að l.iúka ýmsu sem þú hefur byrjað
á en átt í erfiðleikum með að l.iúka. Sam-
starfsmenn þínir valda þér erfiðleikum.
NautiS, 21. avrll—21. maí:
Þú hefur tilhneigingu til að taka skyndi-
legar ákvarðanir en ekki að sama skapi
viturlegar. Þetta á ekki sízt við um ásta-
málin. Hugsaðu þig þvi tvisvar um áður
en þú tekur mikilvægar ákvarðanir. Þú
munt eignast ný.ia vini.
Tvíburarnir, 22. maí—21. iúni:
Búast má við að þessi vika hafi mikil
áhrif á stöðu þína og vinsældir. Þótt Þú
leggir þig allan fram til að þóknast yfir-
mönnum þínum og reynir um leið að ná
ákveðnu takmarki þarf ekki mikið til að
allt fari út um þúfur.
Krabbinn, 22. júni—23. júlí:
Þú hefðir gott af því að létta þér dálitið
upp og taka meiri þátt í félagslífi. Finndu
þér ný viðfangsefni að glíma við. Þú átt
í nokkrum erfiðleikum með að gera ætt-
ing.ium þínum til hæfis. Reyndu að koma
í veg fyrir deilur.
LjónvB, 2h. júlí—23. ápúst:
Þú færð tækifæri til að ná ákveðnu tak-
marki í næstum hvaða málefni sem þú hef-
ur áhuga á. Þetta er einnig gott tækifæri
til að sinna sameiginlegum fjármálum, en
það væri heimskulegt að hætta f.iármunum
sínum að óþörfu.
Mevjan, 21,. áaúst—23. sevt.:
Þetta tímabil getur á margan hátt reynzt
þér erfitt nema þú hafir vilja og getu til
að snúa öllu til betri vegar, en þá verður
það mjög þér í hag. Umfram allt er það
framkoma þín við aðra, sem máli skiptir
Vor/in, 2i. sevt.—23. olct.: . ....
Það hefur mikið að segja fyrir starf þitt
að heilsa þín sé góð og ættir þú að nota
þessa viku til að ganga úr skugga um að
allt sé eins og Það á að vera. Þá fyrst er
hægt að hefja starfið af fullum krafti.
Drekinn, 2i. okt.—22. náv.:
Þú ættir að reyna að finna þér félaga
sem væri viljugur að taka þátt í Þeim
skemmtunum og félagslífi sem er þér svo
mikils virði nú. Ástarævintýri sem stofnað
er til á þessu tímabili geta haft óvæntan
endi og valdið vonbrigðum.
Boamaöurinn, 23. nðv.—21. des.:
Það er mjög mikið undir framkomu þinni
komið hvort þér hlotnast sú viðurkenning
sem þú sækist eftir. Smá yfirsjón af þinni
hálfu gæti spillt mikið fyrir. Heimili þitt
er dálítið undir smásjá annarra.
Steinaeitin, 22. des.—20. janúar:
Það er um að gera fyrir þig að gera rétta
hluti á réttum tíma. Á því veltur raunveru-
lega meira en þú gerir þér grein fyrir.
Brjóttu heilann ekki of mikið um það
hvaða álit aðrir hafa á þínum málum.
Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar:
Þetta er ekki sem hagstæðastur timi fyrir
þig að hefja ný viðfangsefni. Biddu þar til
þú veizt um afstöðu samstarfsmanna þinna,
þvi óvist er hvernig þeir reynazt þegar til
kastanna kemur. Einbeittu þér að fjármál-
unum.
Fiskarnir', 20. febrúar—20. marz:
Þú hefur tækifæri til að ná miklum fram-
förum. Þetta verður á margan hátt upp-
skerutími fyrir Þig. Það er aðeins ef Þú
ert of fljótfær að þér mistekst að fá það
sem þér ber.
FALKINN