Fálkinn


Fálkinn - 21.02.1966, Qupperneq 33

Fálkinn - 21.02.1966, Qupperneq 33
☆ O.JHHHI 8 KAABER HF. HVAD GERIST ÞESSA VIKU Hrúturinn, 21. marz—20. avríl: Aðaláherzla skal lögS á að taka lífinu sem mest með ró þessa viku, og einnipr er tæki- færi til að l.iúka ýmsu sem þú hefur byrjað á en átt í erfiðleikum með að l.iúka. Sam- starfsmenn þínir valda þér erfiðleikum. NautiS, 21. avrll—21. maí: Þú hefur tilhneigingu til að taka skyndi- legar ákvarðanir en ekki að sama skapi viturlegar. Þetta á ekki sízt við um ásta- málin. Hugsaðu þig þvi tvisvar um áður en þú tekur mikilvægar ákvarðanir. Þú munt eignast ný.ia vini. Tvíburarnir, 22. maí—21. iúni: Búast má við að þessi vika hafi mikil áhrif á stöðu þína og vinsældir. Þótt Þú leggir þig allan fram til að þóknast yfir- mönnum þínum og reynir um leið að ná ákveðnu takmarki þarf ekki mikið til að allt fari út um þúfur. Krabbinn, 22. júni—23. júlí: Þú hefðir gott af því að létta þér dálitið upp og taka meiri þátt í félagslífi. Finndu þér ný viðfangsefni að glíma við. Þú átt í nokkrum erfiðleikum með að gera ætt- ing.ium þínum til hæfis. Reyndu að koma í veg fyrir deilur. LjónvB, 2h. júlí—23. ápúst: Þú færð tækifæri til að ná ákveðnu tak- marki í næstum hvaða málefni sem þú hef- ur áhuga á. Þetta er einnig gott tækifæri til að sinna sameiginlegum fjármálum, en það væri heimskulegt að hætta f.iármunum sínum að óþörfu. Mevjan, 21,. áaúst—23. sevt.: Þetta tímabil getur á margan hátt reynzt þér erfitt nema þú hafir vilja og getu til að snúa öllu til betri vegar, en þá verður það mjög þér í hag. Umfram allt er það framkoma þín við aðra, sem máli skiptir Vor/in, 2i. sevt.—23. olct.: . .... Það hefur mikið að segja fyrir starf þitt að heilsa þín sé góð og ættir þú að nota þessa viku til að ganga úr skugga um að allt sé eins og Það á að vera. Þá fyrst er hægt að hefja starfið af fullum krafti. Drekinn, 2i. okt.—22. náv.: Þú ættir að reyna að finna þér félaga sem væri viljugur að taka þátt í Þeim skemmtunum og félagslífi sem er þér svo mikils virði nú. Ástarævintýri sem stofnað er til á þessu tímabili geta haft óvæntan endi og valdið vonbrigðum. Boamaöurinn, 23. nðv.—21. des.: Það er mjög mikið undir framkomu þinni komið hvort þér hlotnast sú viðurkenning sem þú sækist eftir. Smá yfirsjón af þinni hálfu gæti spillt mikið fyrir. Heimili þitt er dálítið undir smásjá annarra. Steinaeitin, 22. des.—20. janúar: Það er um að gera fyrir þig að gera rétta hluti á réttum tíma. Á því veltur raunveru- lega meira en þú gerir þér grein fyrir. Brjóttu heilann ekki of mikið um það hvaða álit aðrir hafa á þínum málum. Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar: Þetta er ekki sem hagstæðastur timi fyrir þig að hefja ný viðfangsefni. Biddu þar til þú veizt um afstöðu samstarfsmanna þinna, þvi óvist er hvernig þeir reynazt þegar til kastanna kemur. Einbeittu þér að fjármál- unum. Fiskarnir', 20. febrúar—20. marz: Þú hefur tækifæri til að ná miklum fram- förum. Þetta verður á margan hátt upp- skerutími fyrir Þig. Það er aðeins ef Þú ert of fljótfær að þér mistekst að fá það sem þér ber. FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.