Fálkinn - 14.03.1966, Qupperneq 4
Samkvæmt upplýsingum sem Haraldur Ólafsson forstjóri
hljómplötudeildar Fálkans gaf þættinum mun verða gefin
út á vegum EMI tveggja laga hljómplata með piltunum
fimm frá Keflavík sem nú nefna sig Thorshammers. Þetta
þekkta hljómplötufyrirtæki mun annast sölu, dreifingu
og auglýsingu þessarar hljómplötu fyrir erlendan markað.
Þá hefur einnig verið áætlað að gefa út fjögurra laga EP
plötu og LP plötu á vegum sama fyrirtækis. Haraldur
kvaðst hafa gefið piltunum frjálsar hendur með sölu á
þessum hljómplötum hérlendis, vegna hins mikla kostn-
aðar sem þeir hafa sjálfir lagt í útgáfuna.
Á fyrrgreindri LP plötu verða ekki lög úr kvikmynd
þeirri er Reynir H. Oddsson hefur nýlokið við, eins og
upphaflega hafði verið ráðgert, heldur munu þau lög koma
út á annarri plötu, og þá ekki á vegum Fálkans.
Haraldur sagði að lokum, að það mætti teljast góð
byrjun hjá íslenzkri hljómsveit, að fá gefna út hljómplötu
á vegum þessa þekkta fyrirtækis.
Á myndinni sjáið þið Gunnar Þórðarson ásamt einum
af meðlimum The Hollies. Myndin var tekin á hljómleikum
i Háskólabíó.
JACKIE DE SHANNON
FALLEG SEEDANDI
OG DÁIR THE BEATLES
Jackie de Shannon, hin ljóshærða 23 ára blómarós er fædd
í Bandaríkjunum í Hazel Kentucky. Fyrsta hljómplatan
hennar var I remember the boy og hún gerði meira en að
syngja það, stúlkan sú arna, því hún samdi bæði lagið og
textann, auk þess, sem hún sá um útsetninguna. í maí 1963
söng hún' lagið Needles and pins fyrir brezkan markað.
Það náði ekki miklum vinsældum, en skömmu seinna kom
THE SEARCHERS með þetta sama lag á plötu og seldist
þeirra útgáfa mjög vel. Það sama endurtók sig, þegar
Jackie söng When you walk in the room. Aftur stálu
Searches senunni frá henni, en nú hafði sú ljóshærða
snör handtök og flaug til Bretlands. Það var ekki að sökum
að spyrja, aðdáendurnir þyrptust að henni og blöðin keppt-
ust við að hlaða lofi á hana. Bandaríska þokkadísin frá
Kentucky kom, sá og sigraði.
FALKINN