Fálkinn - 14.03.1966, Qupperneq 5
» 4
I.
PÓIVIK TIL HAMBORGAR
Ekki fyrir ýkjalöngu hitti ég að máli Magnús Eiríksson,
hljómsveitarstjóra Póniks.
— Það hefur lítið borið á ykkur undanfarið?
— Það er ekki nema eðlilegt, svaraði Magnús, um leið
og hann kveikti sér í pípu. Við höfum ekki spilað saman
af þeirri einföldu ástæðu, að ég og Sævar erum nýkomnir
heim úr sérstaklega skemmtilegri ferð til Hamborgar og
Kaupmannahafnar, en ferðin var farin til að kynna sér
þarlendar „beat“-hljómsveitir. Við heimsóttum meðal ann-
ars BEATKLÚBBINN í Hamborg, sem þú hefur reyndar
minnst á í Fálkanum. Strákarnir, sem spiluðu þarna sögðu,
að það yrði auðsótt mál fyrir íslenzkar ,,beat“-hljómsveitir
að koma þarna fram, en það þykir góð auglýsing, því þetta
er mjög viðurkenndur táningaklúbbur.
— Ertu kannski að hugsa um að fara með hljómsveitina
til Hamborgar?
— Auðvitað er þetta freistandi hugmynd, en það er
vafamál, hvort nokkuð verður úr þvi, m. a. vegna þess, að
við erum allir í fastri atvinnu.
— Þið látið þá Stapann og Suðurnes nægja, fyrst um
sinn?
— Já, fyrst um sinn, svarar Magnús og brosir við.
Þá kvað við grátur og gnístran tanna
Það er búið að klippa hann Herman litla Hermits, en
vægast sagt er hann ekki ánægður með útlitið og gefur
það ótvírætt til kynna eins og sjá má á myndinni. Sá,
sem er í hlutverki hárskerans er trommuleikari hljómsveit-
arinnar, Barry Witham.
Það er sagt að Herman moki inn peningum af ágóðan-
um af plötusölunni. Nú, það er svo sem ekkert einsdæmi
í POP-sögunni. En hvað ætlar pilturinn að gera við þessa
fúlgu, kann einhver að spyrja. Þá liggur beinast við að
gefa Hermanni orðið:
Ég ætla að kaupa hótel og reka það sjálfur.
Donni gefur vinsælustu plötuna frá
Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helgadóttur
FDfflMD®^ IMtð'u’QSIM
Galdurinn er sá að finna plötuna, sem er falin einþvers
staðar á síðum Fálkans. — Að verðlaunum fær sá fundvísi
nýja plötu, sem liann velur scr eftir listanum hér að neðan
og platan er auðvitað frá Hljóðfæraverzlun Sigríðar Helga-
dóttur í Vesturveri. — Dregið verður úr réttuin lausnum.
Vinsælar plötur í dag:
1. GIRL — THE BEATLES
2. YESTERDAY MAN — CHRIS ANDREWS
3. A MUST TO AVOID — HERMANS HERMITS
4. MY GENERATION — THE WHO
5. A LOVERS CONCERTO — THE TOYS.
Platan er á blaðsíðu
Nafn:
Til vara nr
Vinning síðast hlaut:
VINNINGS MA VITJA A SKRIFSTOFU FALKANS.
**** ÞIÐ flfi lí ☆ ☆ ☆ ☆
SJÓVEIKIR Á
SUÐURL/IIVDSBRAIJT
Þetta er bara smá athuga-
semd sem ég vil koma á fram-
færi. Ég hef nefnilega uppgötv-
að að það er hægt að verða
sjóveikur á þurru landi (nei
ekki bilveikur, það er allt ann-
að) og það meira að segja á
Suðurlandsbrautinni, svo mikl-
ar dýfur tekur strætisvagninn
á öldóttu malbikinu að maður
skyldi forðast að sitja aftast i
honum.
Landkrabbi.
Þessi kafli wr bréfi til Fálk-
ans er liér meS birtur athuga-
semdalaust.
„ÞEGAR KONAN
ER EIN”
Kæri Fálki!
Ég þakka fyrir greinina
„Þegar konan er ein“, og þó
að ég sé ekki sammála öllu sem
þar er haldið fram, kemur þar
fram margt sem skýrir viðhorf
••••••••••••••••••••••
okkar, smekk, sem höfum ekki
valið okkur það hlutskipti að
giftast og eignast fjölskyldu. Eg
held fyrir mitt leyti að forsjón-
in ætli alls ekki öllu fólki að
ganga í hjónaband, guð hefur
víst áreiðaniega skapað sumt
fólk til að pipra. Sumir eru
víst ekki hæfir til fjölskyldu-
lífs, og í þeim flokki held ég,
hreinskilnislega sagt, að ég sé.
Samt langar víst allar konur
til að giftast, en sumar bara af
því að það er ekki frítt við að
það sé talin einhver minnkun
að vera ógift kona. En ég sé
ekki eftir þvi að hafa valið mér
að vera ein og frjáls, og mér
þykir vænt um að það er talið
umtalsvert að ekki eru allar
konur giftar, að þeirra líf sé
eðlilegt og þægilegt og ekki
einmanalegt eins og annarra,
því að einmanaleikinn getur
auðvitað komið yfir alla.
Piparkona.
Svar:
Viö þökkum bréfiö, og þykir
voent um aö greinin hefur likaö
vél.
FALKINN
5