Fálkinn - 14.03.1966, Qupperneq 7
fara í söngkennslu og ger-
ast konsertsöngkona, sagði
hún þvert nei. Hjónabandið
var fyrirfram dauðadæmt.
Hún skýrði það þannig:
— Maður, sem kvænist, á
ekki að láta konu sína flækj-
ast um landið — jafnvel
ekki fyrir Guð. Þau skildu
1943 og hún eignaðist ekk-
ert barn. Mahalia er illa við
að ræða um hjónaband sitt.
Hjónabandið var henni ósig-
ur.
Eftir skilnaðinn fór vegur
hennar á sviðinu að aukast
verulega. Fram að þessu
hafði hún haft lítilfjörlegar
tekjur af grammófónplötun-
um en árið 1946 hlaut upp-
taka hennar á ,,Move On Up
a Little Higher“ vinsældir,
sem enn eru að aukast. Árið
1954 höfðu selzt 1,5 milljón
plötur — í dag er salan
komin upp í tvær milljónir.
Eftir að platan kom út, fór
hún til New York í fyrsta
skipti. Hún hefur lýst fyrstu
áhrifunum af dvöl sinni á
lúxushóteli: „Það var eins
og að koma inn í höll. Vegg-
irnir, ábreiðurnar, húsgöng-
in, málverkin . .. ég hugsaði
til allra ungu stúlknanna í
Suður-ríkjunum í stífuðu
baðmullarkjólunum sínum.
Þær voru eins hamingju-
samar og hægt var að hugsa
sér. Þær höfðu aldrei átt
neitt. Þær höfðu ekki hug-
mynd um þetta allt. Ég sagði
við sjálfa mig: Það er ekk-
ert skemmtilegt, að þetta
fólk skuli þurfa að strita
eins og það gerir. Mig lang-
aði ekki aftur til stífuðu
kjólanna. Ég vildi halda
áfram. Nú þegar ég hafði
séð hvað hægt var að öðlast,
var engin leið fær til baka.
Það reyndist ekki nauð-
synlegt að snúa aftur. Árið
1950 kom hún í fyrsta sinn
fram í Carengie Hall —
síðan hefur hún komið þar
fram tíu sinnum. Árið 1952
fékk hún verðlaun hjá
franska tónlistaháskólanum
fyrir upptökuna á ,,I can
put my trust in Jesus“. —
Ef þeir ætla að veita mér
verðlaun þá er nú annað
hvort að ég sýni þá ræktar-
semi að fara þangað og
þakka þeim fyrir, sagði hún
og fór sína fyrstu ferð til
Parísar. Þar var hún kölluð
fram 21 sinni.
Framh. á bls. 30.
>/'x
FALKINN
7