Fálkinn - 14.03.1966, Síða 8
Bað§trandarbíll
Margvíslegt er mannlífið í útlandinu og
það er margt skrýtið í harmónikkuleysinu,
sagði Kjarval einhvern tíma. Þetta, sem við
sjáum hér á myndinni er nefnilega sérstakur
baðstrandarbíll, sem farið er að framleiða í
Bretlandi og ku ekki kosta mikið fé, en ein-
kennilegur er hann óneitanlega. Líkastur
jeppa að framanverðu, en gamaldags hjóna-
rúmi fyrir aftan húddið með sængurhimni,
pífum og krúsidúllum.
Sonarbetrungur
Faðir bítilsins John Lennons er 53 ára gamall og heitir Freddie
Lennon. Hann hefur tekið þá ákvörðun að feta í fótspor sonarins
og er þegar búinn að syngja inn á hljómplötu) sem heitir „Svona
er líf mitt“. Platan er að vísu ekki komin út, svo ógerningur
er að segja hvort hann sé „sonarbetrungur" í þessu efni. Annars
hefur gamli maðurinn lifað all ævintýralegu lífi. Hann strauk til
sjós, þegar hann var 16 ára gamall og sigldi um öll heimsins höf,
eins og það er orðað í rómantískum reyfurum. Hann hefur tekið
þátt í leiksýningum um borð í skemmtiferðaskipum, gert lög við
fjölda texta, sungið í klúbb í New York og nokkrum sinnum tekið
að sér að stjórna hljómsveit í Lissabon. Hann kvæntist 25 ára að
aldri og John er árangurinn af hjónabandinu. Nú hefur gamli
maðurinn bitið í sig, að fjölskyldan geti borið ofurlítið meiri heims-
frægð.
IÐNAOARTBZKA
Búningurinn hér á myndinni er ekki skíðabúning-
ur, né heldur er hann ættaður úr James Bond mynd-
unum. Hér er um að ræða sérstakan búning fyrir
kvenfólk, sem vinnur við fíngerðan iðnað, þar sem
gæta verður fyllsta hreinlætis, svo sem við fram-
leiðslu transistora og alls konar nákvæmnistækja.
Búningurinn, sem er einkar klæðilegur, er brezkur
og gera má ráð fyrir að stúlkan sé það líka. Hún
er nú reyndar anzi löguleg, ef maður lítur á þá hlið
málsins.
8
FALKINN