Fálkinn - 14.03.1966, Síða 15
TEXTI; STEIIMUIXIIM S. BRIEM
MVMPIR: RIJMAR
SAMVIZKAN ER RÖDD
GUDSINNRA MED OKKUR
- segir Jóhannes Gunnarsson Hólabiskup
Jóhannes biskup er nýkominn heim af hinu mikla kirkjuþingi í Róma-
borg, og hér segir hann lesendum Fálkans frá ýmsum málum sem þar
voru tekin til meðferðar og lýsir hinum nýja anda er nú ríkir innan ka-
þólsku kirkjunnar.
„Kirkjan stefnir í átt til aukins
frjálsrœðis og sameiningar, og
kirkjuþingið markaði mikilvœg
tímamót í sögu hennar — já, ég segi
hiklaust, að það hafi valdið alda-
hvörfum. Páll páfi líkti anda þess við
vorið og sagði, að nú fœri í hönd
tími endurnýjunar og andlegrar
vakningar bœði innan kirkjunnar
og í samskiptum hennar við fólk
úr öðrum kirkjudeildum og af öðr-
um trúarbrögðum".
Jóhannes Gunnarsson Hólabiskup er nýkomiíjn
heim af hinu margumrædda kirkjuþingi í Róma-
borg sem vakið hefur athygli um víða veröld og
beint sjónum manna af öllum trúflokkum að því
sem nú hefur verið að gerast í páfagarði. Á þriðja
þúsund biskupar af hundrað og fjörutíu þjóðern-
um sátu daglega fundi, tóku þátt í umræðum um
hin ýmislegu vandamál sem til meðferðar voru og
létu í ljós álit sitt munnlega. skriflega og með
atkvæðagreiðslu. Oft var kapprætt af talsverðum
hita í byrjun, en smám saman færðist meiri ró vfir
þingfulltrúana. og að lokum fór svo, að öll mál
nema eitt voru samþykkt með 95% atkvæða
,,Og hvað var þetta eina?“
„Mér er enn ekki fullljóst hvaða skjal hefur
fengið minna en 95% atkvæða “ svarar biskupinn,
„en mig grunar, að það kunni að vera ályktunin
um ’austurlenzku kirkjurnar' eða þá ’fjölmiðlunar-
tækin'. Hinu síðarnefnda skjali þótti mörsum
kirkjufeðrum ekki nógu ýtarlega frá gengið þótt
svo til allir væru sammála innihaldinu. Lokatölur
um atkvæðagreiðslurnar hef ég enn ekki fengið,
en þekkt kaþólskt vikurit ber Bea kardínála fyir
þeirri staðhæfingu. að einungis eitt mál hafi hlotið
færri atkvæði en 95%.“
FÁLKINN