Fálkinn - 14.03.1966, Side 19
AGFA umboðið og Fálkinn efna til ljósmyndasam-
keppni, og hefur hún staðið síðan í sumar. Þátttaka hef-
ur ekki verið mikil og af þeim ástæðum var samkeppn-
in framlengd. Nú hefur frestur til að skila myndum í
keppnina verið ákveðinn til 30. april, og verður skýrt
frá úrslitum eins fljótt og unnt er eftir þann tíma.
I fyrsta flokk hafa verið valdir fimm þekktir ljós-
myndarar til að glíma innbyrðis við verkefnið „Frá hinni
hliðinni séð.“ Þeir senda inn eina svarthvíta mynd hver
um sig, stærð 18X24 eða 24X30 límd á karton. Veitt
verða ein VERÐLAUN, KR. 5.000,00.
I 2. flokki er verkefnavalið frjálst, og þar geta allir
aðrir en fimmmcnningarnir í 1. flokki tekið þátt. Senda
skal svarthvítar myndir, stærð 18X24 eða 30X40, límd-
ar á lcarton.
Veitt verða þrenn verðlaim. KR. 3.000,00 í PENING-
UM OG KR. 2.000,00 OG KR. 1.000,00 f VÖRUÚTTEKT
hjá ljósmyndavöruverzluninni TÝLI í Austurstræti.
í 3. flokki á að senda inn litfilmur, sem eingöngu
má taka á lítfilmuna AGFA COLOR CT 18 (pósitív) og
þar er verkefnið bundið við landslagsmyndir eða myndir
úr atvinnulífi. AGFA umboðið setur það skilyrði ein-
göngu í þessum flokki — i hinum flokkunum ráða menn
hvaða Ijósmyndaefni þeir nota. Vinningar eru þeir sömu
og í 2. flokki. Allir mega taka þátt í þessum flokki,
einnig þeir sem taka þátt í 1. og 2. flokki.
SKILYRÐI
AGFA umboðið setur þau skilyrði að myndirnar hafi
ekki verið birtar áður ’og ennfremur er birtingarréttur
eða sýningarréttur áskilinn á öllum myndum sem ber-
ast til keppninnar. Þátttakendur eiga að merkja myndir
sínar dulnefni, en nafn og heimilisfang skal fylgja með
í lokuðu umslagi merktu með sama dulnefni og á mynd-
inni. Litfilmurnar skal merkja á sama hátt og skal
vel um þær búið, helzt að senda þær í glerrörum.
Myndirnar skulu sendar til ritstjórnar Fálkans, Grettis-
götu 8, pósthólf 1411 fyrir apríllok. Starfsfólk Fálk-
ans og AGFA umboðsins tekur ekki þátt x keppninni.
FÁLKINN