Fálkinn - 14.03.1966, Blaðsíða 29
Þess vegna gæti hann ekki gert
að því, að hann...
Nei, fjandinn sjálfur hafi það!
Ég er ástfanginn af Louise. Ég
hef aðeins áhuga á Marianne
vegna þess að hún er svo ... svo
sérkennileg...
Hann leit yfir borðið á Lou-
ise. Talaði til hennar. En hann
fann ekki til nálægðar hennar.
Hún var eins og ilmlaust blóm..
og fjarlæg, eins og hann sæi
hana í öfugum kiki.
Hann og Marianne voru um-
vafin ósýnilegum hjúpi, sem úti-
lokaði alla aðra, tengdi þau
saman með ómótstæðilegum
krafti, hlýr, djúpur straumur ...
andlit hennar var nakið, spennt
... eins og daginn, sem hann
hafði haldið henni i faðmi sín-
um uppi í steinnámunni... kysst
hana...
— Sub luna bibo. Myrkt er
mitt öl, þrumaði Hákon hlæj-
andi og lyfti glasi sínu með
léttu, svalandi rínarvíni. Maður
verður nú líklega að vitna í
Karlfeldt, þegar maður er stadd-
ur í Dölunum. Skál!
Eldur brann í augum Ulfs.
Hann lyfti sinu eigin glasi og
þvingaði sig til að hugsa ekki
um íramhald kvæðisins. Það
var hættulegt... ljóðlínurnar
höfðu þegar náð tökum á hon-
um.
— Ég er svo fegin, að við
skulum hafa fengið hvítvín að
drekka, sagði Louise. Mér geðj-
ast ekki að pilsner af neinu tagi,
jafnvel þó hann sé kallaður
inyrkt öl.
Ulf rak upp hlátur. Pilsner!
Hvilík fjarstæða. Svo ófyrirgef-
anlega jarðbundið! Louise, sem
var svo rómantísk. Og samt
skildi hún ekkert af hinu þung-
lyndislega líkingamáli i ljóði
Karlfeldts! Hún var blátt áfram
hversdagsleg — eins og ódýr
eftirprentun.
Hann gat ekki setið kyrr leng-
úr. Með snöggri hreyfingu hratt
hann stólnum aftur fyrir sig og
hneigði sig fyrir Marianne. Hann
hirti ekki um að biða þangað til
Hákon hefði boðið Louise upp.
Þessa stundina stóð honum á
sama um, hvort hann væri kurt-
eis eða ekki, eða hvað þau hin
hugsuðu um hann. Hann lagði
handlegginn yfrum bak Mari-
anne og þrýsti henni að sér, fast
eins og I örvæntingu. Augu
hennar námu við munn hans.
Hann langaði til að kyssa úr
þeim maurildin...
— Þú lítur út eins og þú hefð-
ir hita. Hvað hefur komið fyrir
þig, Marianne? spurði hann lágt.
Varir hans strukust við eyra
hennar.
— Ekkert. Ekki nokkur hlutur,
svaraði Marianne fljótmælt.
— Jú. Við skógarmennirnir
búum yfir sjötta skilningarvit-
inu. Ég sé það á þér, að eitthvað
hefur gerzt. Þú ert ekki með
sjálfum þér.
— Néi. Ég fullvissa þig um ...
Hann þrýsti henni fastar að
sér. Nú gat hann fundið hjarta
hennar slá... rétt hjá sínu...
Hann fann ylinn af hörundi
hennar, sá hana fyrir sér í vot-
um sundbolnum, langlimaða, tá-
granna og með eins konar svala
mýkt í hreyfingum.
— Þú ert þó líklega ekki að
gera þér rellu út af þessum list-
um? spurði hann eftir stundar-
korn.
— Jú, það er ég, svaraði Mari-
anne, fegin því, að haf fundið
einhverja afsökun fyrir uppnámi
sinu.
— Láttu þá lönd og leið. Að
minnsta kosti í bili. Ef verka-
mennirnir hefðu í raun og veru
fengið ranglega greitt, þá hefðu
þeir áreiðanlega gert aðvart
undir eins. Skilurðu?
— Já. ?
— Að visu voru listarnir kvitt-
aðir, þannig að í sjálfu sér gætu
mennirnir krafizt greiðslu á ný,
en þeir gera það ekki. Þremill-
inn sjálfur! Um hvað var hann
að tala? Hann heyrði sína eigin
rödd mynda hvert orðið af öðru
— en ekki þau, sem hann hefði
viljað segja henni.
— Marianne... hvers vegna
ertu ekki glöð? Leiðist þér á
Malingsfors?
— Nei. Ég... kann mjög vel
við Malingsfors, hvíslaði hún svo
lágt, að varla heyrðist.
Það fór kippur um andlit henn-
ar. Ef hann hætti ekki bráðum
að spyrja hana, myndi hún fara
að gráta. Hún þorði ekki að líta
upp til hans. Hún fann andar-
drátt hans á gagnauga sínu.
Uppi í steinnámunni höfðu regn-
dropar runnið niður vanga hans,
í andlit henni... Hann hafði
kysst hana ...
— Hvers vegna ertu svona
óhamingjusöm? spurði hann.
Það er eitthvað, sem kvelur þig,
það geta allir séð.
— Sub luna vivo. Myrkt er
mitt líf.
Hún reyndi að láta tilvitnunina
hljóma glettnislega. Framhald á
gamansemi Hákons, þegar hann
talaði um myrkt öl þótt hann
drykki hvitt vín. Rödd hennar
átti að hafa léttan hljómblæ,
vera hláturmild — en í stað þess
titraði hún af ekki, sem hún
myndi bráðum ekki geta bælt
niður lengur.
Fast samanslungin gáfu þau
sig á vald hljómfallinu og ná-
lægð hvort annars. Ulf óskaði að
hann gæti séð í hug hennar og
komizt að því, hvers vegna hún
var svona... hlédræg. Hann
langaði til að hjálpa henni, en
hún leyfði honum ekki að gera
það. Honum fannst ráðleysið
vera að kæfa sig. Hvers vegna
treysti hún honum ekki?
Danslaginu lauk, en Ulf hélt
áfram að dansa. Hljómfallið
hafði hann á valdi sínu og hann
gat ekki sleppt taki sínu um
Marianne.
— Músíkin er löngu hætt,
benti Hákon þeim á, þegar hann
var á leið til borðsins með Lou-
ise.
Rödd hans vakti þau eins og
úr dái. Umhverfið varð aftur
sýnilegt. Kvöldkætt fólk, sem
sneri aftur til borða sinna. Augu
Louise, hörkuleg eins og bláir
steinar. Marianne þorði ekki að
líta á Ulf, þegar hann þakkaði
henni I lágum hljóðum fyrir
dansinn.
Óstyrkir fingur Louise fitluðu
við eldspýtustokk, sem lá á borð-
inu. Restaurant Kullen stóð á
honum. Hún iðraðist þess, að
hafa tekið boði Hákns um að
koma hingað. Vandalaust hefði
verið að koma í veg fyrir það.
En hvern hefði getað grunað, að
svona myndi fara? Ulf og Mari-
anne virtust hafa gleymt öllu
nema hvort öðru. Það var eins
og vorleysing hefði brotið af sér
allar stíflur.
Hún yrði að minnsta kosti að
hindra þau í að dansa saman.
Annað gæti hún ekki gert í
gert í bili... En bráðum yrði
komið miðsumar ... Ef hún byði
nú mörgum gestum til Maling-
fors? Þá gæfist honum ekki
tími til að dansa við hana, varla
einu sinni að tala við hana.
— Eigum við ekki að stofna
til smá miðsumarsgleðskapar,
meðan Hákon er hérna? spurði
hún.
— Jú, vissulega, sagði Ulf.
Það virtist ekki skipta hann
miklu máli, hvað hann sam-
þykkti.
Hákon maldaði í móinn yfir
þvi að dvelja um kyrrt yfir
helgi, en lét ,þó fljótt telja sér
hughvarf. Miðsumar á sænskum
herragarði var nokkuð, sem
skemmtilegt yrði að minnast,
þegar hann væri kominn aftur
til Ameríku, hugsaði hann. Þegar
næsti dans byrjaði, bauð hann
Marianne upp en Ulf hneigði
sig fyrir Louise. Marianne horfð-
ist í augu við hann yfir höfuð-
ið á Louise. Það nísti hjarta
hennar að sjá þau saman. Þau
tilheyrðu hvort öðru ... en samt
sem áður... núna áðan ... nei,
hún gat ekki skilið það. Það
höfðu verið eins og töfrar ... en
ef til vill hafði hún ein fundið
til þeirra.
Hún fann, að Ulf var rétt við
hliðina á henni á dansgólfinu,
en hún neyddi sig til að horfa
ekki á hann. I þess stað leit hún
í átt að borðunum, sem stóðu
uppi á pallinum, nokkrum þrep-
um hærra en dansgólfið. Yfir-
þjónninn var að vísa gesti til
sætis við borð hjá grindverk-
inu, og tók af því rautt kort,
sem þýddi að borðið væri upp-
tekið. Eftir kurteislegum hneig-
ingum hans að dæma, var þetta
annað hvort mjög háttsettur
maður, eða fastagestur, sem van-
ur væri að eyða miklum pen-
ingum.
Skjálfti fór um hana. Gestur-
inn var herra Vilhelmsson. Þjón-
ustustúlkan heilsaði honum
kunnuglega og rétti hnum mat-
seðil og vinlista.
— Hæ, þarna! Viltu gjöra svo
vel að snúa þér ögn að mér
núna, sagði Hákon i gamansöm-
um aðvörunarrómi. Að vísu á
ég ekki skilið ...
— Nei.
— ... en ég ætla samt að kref j-
ast athygli þinnar nógu lengi
til þess að segja þér, að þú ert
orðin fjári hrífandi kona. Þú
ert ekki falleg.
— Það er mér kunnugt um.
— Taktu ekki fram í fyrir
mér! Þú ert meir en falleg. Ég
myndi segja að þú værir fögur
á sérkennilegan hátt...
Marianne leit á hann og kímdi.
— Ofreyndu þig ekki! sagði hún.
Herra Vilhelmsson var borin
vínblanda og hann breiddi úr
dagblaði sínu. Liturinn á andliti
hans hafði dökknað töluvert frá
því frá er hún sá hann í verzl-
uninni í Ásgötu.
— Dirfist ég að spyrja, hvað
það er, sem vekur svo áhuga
þinn, að þú heyrir varla hvað
ég segi? spurði Hákon.
Það lifnaði yfir Marianne.
Hákon vissi reyndar ... Við hann
gæti hún talað um það sem húr\
hélt...
— Líttu á manninn þarna, sem
leggur frá sér blaðið og fær sér
spa úr glasinu! sagði hún áköf.
Hákon leit þangað, sem húr*
benti með hæverskri höfuðhreyí-
ingu. Framh. á bls 37.
HÚN HAFÐI VERIÐ DÆMD SAKLAUS FYRIR AÐ HAFA ORÐIÐ MANNSBANI — MUNDI HÚN NOKK-
URN TIMA FINNA HINN ÓÞEKKTA MANN SEM RAUNVERULEGA VAR VALDUR AÐ SLYSINU? EÐA
ÁTTU SKUGGAR HINS LIÐNA AÐ VALDA ÞVÍ AÐ HÚN FENGI ALDREI MANNINN SEM HÚN ELSKAÐI?
FALKINN
29