Fálkinn - 14.03.1966, Qupperneq 30
PARKET GÓLFFLÍSAR
PARKET GÓLFDÚKUR
-Glæsilegir litir-
DÖNSKU IMAK GÚMÍHANSKARNIR RYÐJA
SÉR BRAUT. ÞEIR. SEM HAFA NDTAÐ IMAK
VILJA EKKI ANNAÐ. - IMAK ÁVALLT MJÚKIR DG
LIPRIR. LÉTTA STDRFIN. ÞAD BDRGAR SIG AÐ
KAUPA IMAK FÆST í 6 MI5MUNANDI GERÐUM.
Heilverzlun AINIDRÉSAR GUÐIMASOIMAR
HVERFISGÖTU 72 SÍMAR ZD54D. 1623D.
• Mahalia Jackson
Framh. af bls. 7.
Arið 1954 námu nettótekjui
hennar 50.000 dölum. Hún
hafði sinn eigin útvarpsþátt á
hverjum sunnudegi og sjón
varpsþátt í einni Chicagostöð.
Árið eftir fór hún til Newport
til að syngja útdrátt úr söng-
verki Duke Ellington „Black,
Brown and Beige,“ með hljóm-
sveit Duke Ellingtons en aðeins
vegna þess að útdrátturinn var
trúarlegs eðlis.
1959 söng hún fyrir Eisen-
hower í Washington á afmselis-
degi hans. Árið 1961 ferðaðist
hún til Evrópu og Landsins
Helga. Kaflar úr dagbókinni,
sem hún hélt á leiðinni sýna
hve miklum vinsældum hún
átti að fagna á því ferðalagi.
í Tel-Aviv skrifaði hún:
„Þeir viðurkenna ef til vill
ekki frelsara minn, en þeir
viðurkenna þó að minnsta
kosti söngva mína um hann.‘
Eftir hljómleika hennar í
Berliner Sportspalats kom.
framkvæmdastjóri hljómleik-
anna með eftirfarandi yfirlýs-
ingu: „Síðasta skiptið sem ég
varð vitni að slíkum fagnaðar-
látum, var árið 1938 þegar
Hitler stóð nákvæmlega á þess-
um sama stað og hvatti til
hernaðaraðgerða."
í dag getur hún virt fyrir sér
frægðarferil, sem komizt hefur
í snertingu við flestar listgrein-
ar innan skemmtanalífsins.
Hún lék í Hollywood kvik-
myndinni „St. Louis Blues““
og hefur komið fram í ótal
sjónvarpsþáttum. Fimm mín-
útna þættir hennar — þar sem
hún syngur aðeins eftir minni
— er endurvarpað um mörg
s j ónvarpssvæði.
Mahalia er óþreytandi. Þegar
bún er ekki að syngja fyrir
greiðslu, taka á móti heiðurs-
skjölum, syngja í fangelsum, á
sjúkrahúsum eða fyrir stjórnar-
meðlimL leitar hún uppi litlar,
afskekiahr kirkjur. — í þessar
litlu kirkjur sæki ég endur-
nýjaðan styrk og þrótt, segir
hún. — Ef ég fengi ekki að
koma inn í þær öðru hvoru,
myndi ég gefast upp.
Hún hefur gefið fé til ótal
góðgerðahreyfinga. Hún hefur
stofnað Mahalia Jackson sjóð
til styrktar guðfræðistúdent-
um við Roosevelt háskólann i
Chicago. Hún er með ráðagerð-
ir um að byggja evangeliskt
musteri í Chicago.
Hún segir: — Guð tók mig
að sér og ég var ekki neitt,
en hann byggði mig upp. Ef
Guð getur komið mér svona
langt — tekið mig burt frá
þvottabölunum og skúringaföt-
unum — þá getur hann gert
nákvæmlega það sama fyrir
aðra.
Hún telur þetta vera skyldu
sína. — Ég held að ég eigi
köllun — að syngja fyrir fólk.
Þegar ég geri eitthvað fyrir
aðra, þá líður mér vel.
Ekkert — hvort sem um er
að ræða skort á umburðarlyndi
í suðri eða óþægilega atburði
í norðri — getur aftrað henni
frá að syngja Negro spirituals
söngva sína. Þegar hún flutti
inn í húsið, sem hún á nú í
hverfi, sem eingöngu var byggt
hvítum mönnum, varð uppi
fótur og fit. Það rigndi yfir
hana grjóti og ókvæðisorðum
og það endaði með því, að hvíta
fólkið flutti burt. — Sömu
fuglarnir búa enn í trjánum.
Þeim datt ekki í hug að flytja
þótt við kæmum hingað, var
það eina, sem Mahalia sagði við
þessu öllu.
Þegar hún ræddi þetta mál
fyrir skömmu, sagði hún: —
Mér finnst það stórbokkaskap-
ur, að hvítir menn og negrar
skuli ekki geta búið saman.
Það er ákaflega særandi. Einu
sinni, þegar ég vann hjá hvítri
konu, eftirlét hún mér barn
sitt og þetta barn varð eins
og hluti af mér. Það verður aS
fara að stinga á þessari mein-
semd. Hvíta fólkið mun brátt
átta sig svo mikið að það segir
sem svo: „Við verðum að binda
endi á þetta. Heimurinn gef-
ur okkur gætur.“ Og það eru
ekki allir negrar sem óska eftir
samneyti við hina hvítu. Negr-
inn vill fá að ganga í skóla;
hann vill gjarnan finna, að
hann sé maður — sú tilfinning
hefur komizt inn hjá honum,
að hann sé strákhvolpur með
niðurlútt höfuð og þessa tilfinn-
ingu hefur hann haft svo lengi,
að það getur tekið hann fimm-
tíu eða hundrað ár að rétta við
aftur.
Á síðustu árum hefur Mah-
alia helgað dr. Martin Luther
King starfskrafta sína í æ
ríkara mæli. Hún syngur enn
á hljómleikum og í kirkjum en
upp á síðkastið hefur hún eytt
meiri og meiri tíma í stuðning
við prédikara þá, sem eru leið-
togar „Freedom Now“ hreyf-
ingarinnar. Hún söng i kröfu-
göngu negranna í ágúst 1963.
Hún hefur boðist til að syngja
fyrir samtök negranna. í Con-
necticut og Californíu. f Pitts-
burgh hlýddu 19000 af áhang-
30
FALKINN