Fálkinn - 14.03.1966, Blaðsíða 33
hreyfði Karswell sig ekki frá
Lufford.
Loks, tæpri viku áður en sá
dagur rynni upp, sem hann
var nú farinn að líta á sem
sitt skapdægur, kom símskeyti:
„FER FRÁ VIKTORIA MEÐ
JÁRNBRAUTARFERJU
FIMMTUDAG. VERTU VIÐ-
BÚINN ÉG KEM TIL ÞÍN í
KVÖLD HARRINGTON.“
Harrington kom á tilsettum
tíma og þeir lögðu á ráðin.
Lestin fór frá Victoriastöðinni
klukkan níu og síðasti við-
komustaðurinn áður en komið
var til Dover var Croydon
West. Harrington ætlaði að
hafa auga með Karswell á
stöðinni og fylgjast með Dunn-
ing á Croydon West, kalla til
hans ef nauðsyn krefði, en nota
þá dulnefni, sem þeir kæmu
sér saman um. Dunning átti að
vera eins vel dulbúinn og kost-
ur var á og án þess að hafa
nokkuð það með sér, sem hægt
væri að þekkja hann á og um
fram allt mátti hann ekki
gleyma pappírsmiðanum.
Ég þarf ekki að reyna að
lýsa eftirvæntingu Dunnings,
þar sem hann beið á stöðinni
í Croydon. Tilfinning hans fyr-
ir hættunni hafði aðeins aukist
við það undanfarna daga, að
það var eins og þokunni um-
hverfis hann hefði verið að
létta. Léttirinn var ekki annað
en hættumerki og ef Karswell
kæmist undan honum núna,
var öll von úti. Og til þess
voru vissulega margar leiðir.
Orðrómurinn um ferðalagið gat
eins verið gildra og þessar
tuttugu mínútur, sem hann
eyddi í að ganga um gólf á
brautarpallinum og láta spurn-
ingunum rigna yfir hvern ein-
asta burðarmann um ferjulest-
ina, voru ekki hinar léttbær-
ustu í lífi hans. Samt kom lest-
in og Harrington var úti í
glugga. Auðvitað var mikil-
vægt að þeir þekktust ekki,
svo að Dunning fór inn í fjarsta
enda gangsins og þokaði sér
smám saman í áttina að klefan-
um þar sem Harrington og
Karswell voru fyrir. Hann
gladdist þegar hann komst að
raun um að lestin var langt
frá því að vera full.
Karswell var var um sig, en
sýndi þess engin merki að
hann þekkti Dunning aftur.
Dunning settist ekki beint á
móti honum og reyndi, hikandi
í fyrstu, en siðan með meiri
festu að ráða við sig, á hvern
hátt hinum bráðu skiptum yrði
haganlegast komið í kring.
Beint á móti Karswell og við
hliðina á Dunning, lágu yfir-
hafnir hins fyrrnefnda í hrúgu
á sætinu. Það myndi ekki vera
til neins að læða miðanum í
einhverja þeirra, hélt hann.
Hann myndi ekki vera örugg-
ur, eða finnast hann vera það,
nema hann byði hinum miðann
á einhvern hátt og hinn þæði
hann. Þarna var opin hand-
taska með skjölum í. Gæti
hann kannski falið hana, þann-
ig að Karswell yfirgæfi lestina
án hennar og síðan „fundið"
hana og látið hann hafa? Þetta
var augljósasta leiðin. Ef hann
gæti nú aðeins látið Harring-
ton vita, en það var ómögu-
legt. Mínúturnar drögnuðust
áfram. Oftar en einu sinni stóð
Karswell upp og fór fram á
ganginn. í annað skiptið var
Dunning kominn á fremsta
hlunn með að reyna að láta
töskuna detta á gólfið, en mætti
þá augnaráði Harringtons og
las í því viðvörun. Karswell
fylgdist með þeim framan af
ganginum, kannski til að sjá
hvort þeir þekktust. Hann kom
aftur, en var greinilega óróleg-
ur, en þegar hann reis upp í
þriðja skiptið, vaknaði veik
von, því að eitthvað rann ofan
af bekknum og á gólfið án þess
að nokkurt hljóð heyrðist.
Karswell fór enn einu sinni út
og fram eftir ganginum, þann-
ig að hann var ekki í sjónmáli
við gluggann á klefanum.
Dunning tók upp það sem
hafði fallið á gólfið og sá að
það var farmiðaveski með mið-
um í. Þessi veski eru með hólf-
um utan á og innan fárra sek-
úndna var pappírsmiðinn, sem
við höfum heyrt svo mikið um,
kominn í hólfið. Til þess að
ekkert færi í handaskol tók
Harrington sér stöðu við glugg-
ann og fitlaði við tjaldið. Það
var búið og gert í tæka tíð,
því nú fór lestin að hægja á
sér. Hún var að koma til
Dover.
Augnabliki síðar var Kars-
well kominn inn í klefann
aftur. Dunning veit ekki hvern-
ig honum tókst að hafa hemil
á skjálftanum í rödd sinni, er
hann rétti fram farmiðaveskið
og sagði:
— Leyfið mér að fá yður
þetta. Ég held að það sé yðar
eign.
Eftir að hafa aðeins litið
á miðann innan í, muldraði
Karswell það sem þeir báðir
höfðu vonað:
— Já, það er það. Ég er yður
mjög þakklátur herra minn.
Siðan stakk hann veskinu í
brjóstvasa sinn.
SEDRUS mi.
etutjltjsir;
Einsmannssvefnsófi. stœrð 145 cm lengist
upp í 185 cm með púðunum, sœngurfata-
geymsla undir. stólai fást 5 stíl viS sófann.
SEDRIJS sf.
húsgagnaverzlun
Hverfisgötu 50 — Simi 18830
Winther þrílijól
- fást í Þrem stærðum
□ RNINN
SPÍTALASTÍG B
SÍMI 14661
PDS 1 HÚLF 671.