Fálkinn - 14.03.1966, Page 41
ORÐ | 900 KRÓNA VERÐLAUN |
AFÖRÐÍ
Verðlaun í 6. umferð hlutu: ,
Hafsteinn Þórðarson, Bræðraborgarstíg 23, Reykjavík,
526 stig, Bergur Ingimundarson, Melhól, Meðallandi, Vestur-
Skaftafellssýslu, 496 stig, og Árni Júl. Árnason, Grænu-
mýri 16, Akureyri, 472 stig.
Lausn Hafsteins: afristar — fiktarar — afristar —
risatarf — krafsari — ofristar — skrifara — tarfar —
iktar — risatarf.
Lausn Bergs: afritar — faktorar — afritar — rakastir
— kraftar — orsakar — skartar — tarfar — iktar —
rakastir.
Lausn Árna: afritar — fraktar — afritar — raforka —
kraftar — orsakar — skrifara — tarfar — irr — raforka.
Næsta þraut:
Næsta lykilorð er ÆTTARBLÓMI. Nýjum þátttakendum
skal bent á, að eing'óngu má nota þá stafi sem koma fyrir
í lykilorðinu og ekki oftar í hverju orði en þá er að finna
í lykilorðinu. Ekki má nota i fyrir í, a fyrir á, o. s. frv.,
og ekki i fyrir y, þá ekki persónuheiti eða staðaheiti,
heimatilbúin orð eða orðskrípi. Rita skal orð samkvæmt
ríkjandi stafsetningarreglum.
SAwr.
Sj \ \ \ \
\ \ \ \ kj
■Vj \ \ \ \
Ss \ \ k
V \ \ k
\ \ \ k
V \ \ k k
\ \ \ k \ \
\ \ \ \ \j
Samtals:
Nafn: ......................................
Heimilisfang: ..............................
Verðlaun: lausnum. Skilafrestur er tvær vikur. Gerið svo vel að
Fálkinn veitir vikulega þrenn verðlaun, kr. 300,00 fyrir merkja umslagið ORÐ AF ORÐI 10.
hverja lausn, en þær eru dregnar úr fimmtán hæstu réttu Utanáskrift: Vikublaðið Fálkinn, pósthólf 1411, Reykjavík.
Kæri Astró!
Ég er ein af þessum stúlkum, sem brenn í skinninu um að
vita eitthvað um framtíðina og þá helzt um ástamálin. Einnig
hef ég mikinn áhuga á að vita livers konar manneskja ég
eiginlega er. Ég á stundum dálítið erfitt með að umgangast
sumt fólk og ég er oft voða þunglynd en samt þykir mér
gaman að skemmta mér þó ég eigi stundum erfitt með að
drífa mig út. Ég er mjög hrifin af pilti, sem ég þekki þó
lítið, en langar til að vita livort ég á eftir að kynnast meira.
Ég er hrædd um að ég giftist ekki, eða að minnsta kosti
seint, hvað heldur þú um það. Og svo Iangar mig til að vita
þetta venjulega hvort ég verð hamingjusöm og hvort ég eign-
ast börn og hvernig fjármálin verða. Ég vona að þú getir
svarað mér.
Með fyrirfram þakklæti. Billa.
Svar til Billu:
Það fyrsta sem þú verður að
gera er að reyna að vinna bug
á þunglyndi þínu. Þér hættir
til að draga þig of mikið í hlé,
jafnvel óeðlilega fyrir unga
stúlku. Ég vil endilega ráð-
leggja þér að taka þátt í ein-
hverri félagsstarfsemi, eða fá
þér eitthvert tómstundastarf,
sem þú getur unnið við innan
um annað ungt fólk. Einnig
vildi ég benda þér á að mjog
hagstætt er fyrir þig að læra
tungumál og þar sem þú ert
ekki í skóla væri mjög gott
fyrir þig að fara á tungumála-
námskeið. En fyrir alla muni
lokaðu þig ekki eina heim. Þú
ert feimin og mjög næm fyrir
öðru fólki og ert sífellt á verði
um að á þig sé horft og um
þig sé talað og þú villt ekki
gefa fólki tilefni til þess. í
þessu tilliti og einnig fleiri
verður seinni hluti ævinnar
mikið hamingjusamari en fyrri
hlutinn. Um það leyti sem þú
er tuttugu og átta til þrjátíu
og eins árs verður mikil breyt-
ing í lífi þínu og eftir það verð-
ur þú mikið ánægðari. Þú þarft
ekki að hafa áhyggjur út af
því að þú giftist ekki, en þú
munt giftast fremur seint eftir
nútíma mælikvarða, enda er
það heppilegast fyrir þig þvi
viðhorf þitt til þessara mála
á eftir að breytast mjög mikið
á næstu árum. Næsta sumar
ættir þú endilega að reyna að
komast í einhverja skemmti-
ferð til útlanda, það mundi
verða meira virði fyrir þig en
þú gerir þér grein fyrir nú.
Pilturinn, sem þú minntist á
er áreiðanlega eftirsóknarverð-
ur en ég held að ef þú kynn-
ist honum betúr, þá væri ýmis-
legt í fari hans, sem þér mundi
alls ekki falla í geð, og ég held
að þið gætuð aldrei orðið vinir.
Snúðu þvi huganum í aðra átt
en eyddu ekki aðdáun þinni
á þennan herra. Fjármálin
verða dálítið erfið framan af,
ekki þó þannig að þú hafir
ekki nóg. Þú ert hagsýn og
getur því efnast með tímanum.
Það er ekki að marka þótt þér
haldist ekki vel á peningum
nú, heldur þegar þú hefur lært
að fara með fjármuni. Þú munt
ekki eignast mörg börn, varla
fleiri en tvö.
FÁLKINN 41