Fálkinn - 21.03.1966, Page 4
4
BENEDIKT VIGGÓSSOW SKRIFAR FYRIR UN6A FÓLKID
Slá DÁTAR í gegn mei
sinni fyrstu hifómplötu?
Það hafði kvisazt út fyrir alllöngu, að í bígerð væri að
gefa út plötu með Dátum og þessi hugmynd varð að óve-
fengjanlegum veruleika þriðjudaginn 22. febrúar 1966, ná-
kvæmlega 12 dögum eftir að frétt þess efnis, að umrædd
upptaka hefði þegar farið fram birtist í Vikunni. Plata þessi
er gefin út af S. G.-hljómplötum og ætti það eitt að vera
nægileg trygging fyrir góðri framleiðslu.
Klukkan 20,30 voru fjórmenningarnir mættir í stúdíó 2 á
6. hæð Fiskifélagshússins, þar sem Ríkisútvarpið er til húsa, og
klukkan 21,05 voru fyrstu tónarnir af laginu Cadilac komnir
inn á segulbandið hjá upptökumeistaranum, Pétri Steingríms-
syni, en honum til aðstoðar var Jón Þór Hannesson, fyrrver-
andi bassagítarleikari.
Á þessari hljómplötu verða fjögur lög, en þau eru: Cadilac
með hinum upprunalega enska texta, en lag þetta var geysi-
lega vinsælt í Danmörku, sungið af þarlendri hljómsveit, sem
nefnir sig Lollipops. Hin þrjú eru eftir Þóri Baldursson í
Savanna, Leyndarmál og Kling Klang, en þriðji textinn var
ekki ákveðinn, er þessi grein var rituð. Textarnir eru eftir
Ólaf Gauk og Þorstein Eggertsson, en hann samdi einmitt
textann við hið hugljúfa lag Þóris, Ást í meinum, sem Savanna-
tríóið söng inn á hljómplötu. Útsetningu á íslenzku lögunum
þrem annaðist Þórir sjálfur.
Allar líkur eru til þess að umrædd plata komi út 1—2 vik-
um eftir að þessi grein birtist.
Þeir nefna sig DÁTA og til eru þeir, sem eru stórhneyksl-
aðir á þessari nafngift, en hvað um það, þetta eru fjörugir
og tápmiklir strákar, sem vita, hvað þeir vilja og stefna
sigurvissir að föstu marki, allir sem einn; Hilmar, Rúnar,
Jón Pétur og Stefán. Það er ekki lengra síðan en í fyrra-
sumar, að hljómsveitin var stofnuð. Rúnar Gunnarsson aðal-
söngvari og rythmagítarleikari og Hilmar Kristjánsson sóló-
gítarleikari stóðu að því, en nú vantaði tvo í viðbót, og hófst þá
skipuleg leit að liðtækum mönnum og eftir að búið var að
reyna tvo eða þrjá bassaleikara var Jón Pétur ráðinn, svo
að nú var aðeins eftir að uppgötva hæfan trommuleikara. Þá
var hreinlega auglýst eftir einum slíkum og tilboðunum rigndi
yfir. Þegar búið var að reyna 6 trommuleikara, gekk Stefán
Jóhannsson í salinn og þar með var málið útrætt.
Nú var hljómsveitin fullskipuð og næsta skref var að æfa
baki brotnu, og til að láta þetta bera ríkulegan ávöxt hjá pilt-
unum var Þórir Baldursson fenginn til að stjórna æfingum. í
heilan mánuð, næstum því daglega, var æft og aftur æft. Þeir
komu fram fyrst á Keflavíkurvelli við fádæma hylli áheyrenda.
Síðan í Glaumbæ og núna eru þeir í LÍDÓ. Þeir komu, sáu,
en þessi væntanlega hljómplata sker úr um það, hvort þeir
sigra.
-K ☆-K ☆-K ☆-K ☆-K ☆☆-K ☆-K ☆ -K -K ☆
4
FALKINN